
Karl Th. Birgisson

Nýtt klósett fyrir Bjarna
Formaður fjárlaganefndar er skörungur, að sögn fyrrverandi formanns flokks hennar. Undir það tökum við auðvitað öll. En meira að segja skörungum er ekki allt kleift, til dæmis að koma auga á öll dæmi um útgjöld ríkissjóðs sem mætti endurskoða. Það er meira en sjálfsagt að aðstoða hana. Ríkiskaup hafa nú boðið út miklar innanhússframkvæmdir í […]

Sorrí Óli
Hann stóð þarna í rigningunni, tveir metrar upp í loftið. Ekki alveg nógu vel búinn, sýndist mér. Ekkert var hárið til að hlífa höfðinu gegn vætunni. Svo var hann í strigaskóm og hlaut að verða blautur í fæturna fljótlega. Svo grönnum manni hlyti líka að verða kalt. Við vorum báðir að bíða eftir skólarútunni sem […]

Tryggvi segir sannleikann
Tryggvi Þór Herbertsson sagði eitt ákaflega merkilegt í útvarpsviðtali í morgun. Tryggvi er sumsé sá sem sér um framkvæmdina á því, að einstaklingum verða færðir tugmilljarðar úr ríkissjóði, óháð tekjum og eignum eða hvort þeir þurfa yfirleitt nokkuð á peningunum að halda. Við munum að ríkisstjórnin hefur haldið því fram að millifærslan komi frá bönkunum […]

Spáðu í mér
Hafiði einhvern tíma spáð í því, elskuleg, hvernig tungumálið okkar breytist, og hvers vegna? Sjálfur hugsa ég mikið um hið fyrra, en hef ekki hugmynd um hið seinna. Við höfum fræðimenn til að svara því. En þegar maður er sjálfur Svanberg inn við beinið rekur ýmislegt á fjörurnar. Mér er til dæmis í ljósu minni […]

Dapurlega stutt
Við eigum að veita færeyska skipinu og áhöfn þess í Reykjavíkurhöfn alla aðstoð sem það þarf. En ekki vegna þess að það er færeyskt. Við þurfum ekki að setja á langa tölu um hversu góðir vinir Færeyingar hafa verið okkur. Og eru. Um það vitna dæmin, þeim til ævarandi heiðurs. En að nota það sem […]

Sæll, Stefán minn
Í ljós hefur komið upptaka af einum funda innanríkisráðherra og lögreglustjóra. Herðubreið birtir hana hér óstytta, að höfðu samráði við lögmenn.

Hrukkótt innísér
Mér líður eins og Úlfari Þormóðssyni: Ég fæ ekki frið fyrir sjálfum mér. Ég lít út um gluggann og sé þetta: Forsætisráðherra lýðveldisins delerar um sterakjöt og útlenzkar veirur sem gera okkur klikkuð. Þetta hlusta ég á í fréttunum um leið og ég kyngi spænsku hakki frá Íslandsnauti. Þegar eftirlitsstofnun þingsins spyr ráðherrann einfaldra spurninga […]

Sorrí
„Spurningin um afsögn ráðherrans verður mjög áleitin,“ skrifar Egill Helgason í dag. Það er næstum örugglega vanyrðing ársins. Bréf umboðsmanns alþingis fyllir upp í myndina sem þegar var komin fram af embættisathöfnum Hönnu Birnu Kristjánsdóttur: Hún sigar aðstoðarmönnum sínum á lögreglustjórann til að fá hann til að segja tiltekna hluti opinberlega. Hún sigar ráðuneytisstjóranum á […]

Gagnbyltingin
Það er ekki vegna óverjandi stöðu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur sem ríkisstjórnin vill stofna dóms- og ákæruvaldsráðuneyti. Það er gagnbylting. Eða betur fæ ég ekki lesið í málgagni hægri manna: „Jóhönnu-stjórnin barði breytingar á stjórnarráðinu í gegnum þingið, enda vildi sú stjórn bylta öllu sem hægt var. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið var vinstristjórninni þyrnir í augum. Hún breytti […]

Nýjasta nýtt
Eða hvernig segir maður eiginlega „Breaking News“ almennilega á íslenzku? Hanna Birna býr nefnilega yfir þeim. Í svolitlum mola á Eyjunni í gær segir svo um þingflokksfund sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum: „Hanna Birna gerði grein fyrir sinni hlið á lekamálinu í löngu máli á fundinum og munu þar hafa komið fram allskyns upplýsingar sem ekki hafa […]

En gaman
Ég veit ekki. Eitt sinn var Kaffistofan á Pressunni hans Binga notaleg. Eins og kunningjaskraf yfir bolla að morgni dags. Auðvitað var það aldrei þannig, en það má alltaf ímynda sér. Að fólk sé bara að spjalla saman. Um okkur og lífið okkar hér. En neinei. Þetta birtist síðla gærkvölds (þið verðið bara að þola […]

Jóhanna og Hanna Birna
Ein rökin til varnar Hönnu Birnu eru þessi: En Jóhanna braut jafnréttislög og sagði ekki af sér. Hvers vegna ætti Hanna Birna þá að gera það? Það er alveg einnar messu virði að bera saman þessi tvö mál enda verður lögbrot Jóhönnu eflaust áfram rifjað upp í þessu samhengi. Fyrst er til að taka, að […]