Gagnbyltingin
Það er ekki vegna óverjandi stöðu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur sem ríkisstjórnin vill stofna dóms- og ákæruvaldsráðuneyti. Það er gagnbylting.
Eða betur fæ ég ekki lesið í málgagni hægri manna:
„Jóhönnu-stjórnin barði breytingar á stjórnarráðinu í gegnum þingið, enda vildi sú stjórn bylta öllu sem hægt var. Dóms- og kirkjumálaráðuneytið var vinstristjórninni þyrnir í augum. Hún breytti nafni þess strax í dóms- og mannréttindaráðuneytið og svo varð innanríkisráðuneytið til.
Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur var ríkisstjórn byltingar og öfga. Núverandi ríkisstjórn hefur þá skyldu að afturkalla nær allt það sem vinstristjórnin gerði í byltingarskyni.“
Pant ekki vera með þessu fólki í samfélagi.
- Möskvar minninganna (XXI): Gleðimont - 12/08/2019
- Um gamlar kærustur og nýjar - 02/07/2019
- Möskvar minninganna (XX): Með hitamælinn í rassinum - 30/06/2019