
Úlfar Þormóðsson

Flugviskubit
Það var umræða um flugviskubit í Silfrinu í morgun. Mér finnst orðið frábærlega vel hugsað. Það er fallegt. Og ágengt. Það hristi upp í mér og ég ákvað að skrifa um það, orðið, og brot af því sem í því felst. Á meðan ég var að hugsa minn gang opnaði ég tölvupóstinn. Þar var […]

Furður stjórnsýslunnar
Hér kemur löng málsgrein með mörgum spurningum: Er það ekki furðulegt uppátæki að flytja pósthús úr Pósthússtræti, miðbæ sem er fullur af fólki, koma því fyrir vestur á Melum í leiguhorni á Hótel Sögu og selja þar súkkulaði og kerti í gjafapakningum? Hér er önnur, lík í sniði: Er það ekki furuleg ráðstöfun hjá stjórnsýslunni […]

Spurningar úr Litlu gráu hænunni
Hlustaði á þetta í strætisvagnaskýli nú í morgun: A: Hvers vegna í fjandanum lét ríkisstjórnin Wow fara á hausinn? B: Gerði hún það? A: Já. B. Hvernig þá? A: Hún lét félagið ekki hafa það lítilræði sem á vantaði svo að það gæti haldið rekstrinum áfram. B: Á ríkisstjórn að láta einkafyrirtæki fá peninga […]

Að hugsa sér annað eins!
mbl.is aðalfrétt klukkan 22:36 18. 03. 2019: „„Þetta flug rússneskra sprengjuflugvéla inn í loftrýmiseftirlitssvæðið er enn eitt dæmið um mikilvægi loftrýmiseftirlit og loftrýmisgæslu hér á landi,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, um flug rússneskra sprengjuvéla inn í loftrýmiseftirlitssvæði NATÓ við Ísland.“ *** Vélin þorði ekki inn í íslesnaka lofthelgi. Guði sé lof fyrir Nató!

Tríó örvæntingarinnar
Í fyrradag kvað Mannréttindadómstóll Evrópu upp dóm yfir réttarfarinu í landinu. Hann svipti hulunni af feysknum stoðum þess. Þess vegna brennur á þeim botninn, talsmönnum Sjálfstæðisflokksins, því það eru þeir sem lengstaf hafa haldið um og í pólitíska þræði dómsmálanna. Og gera enn. Þeir iða vegna dómsins og yfir hugsanlegum afleiðingum hans. Aka sér í […]

Vanþekking
„Staðreyndin er sú að við erum í enn eitt skiptið að sjá skipsbrot sósíalismans. Afleiðingar sósíalisma eru alltaf þær sömu fyrir almenning; eymd, volæði og hungur.“ Þetta skrifar Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir. Hún er formaður utanríkismálanefndar Alþingis. Hún heldur að hún sé að skrifa um ástandið í Venesúela. Greinin er þó lítið annað en safn af […]

Einn í áhöfn
“Pólskur skipstjóri á leiguskipi Eimskips, EF AVA, lést eftir að skipið fékk á sig brotsjó þegar það var á leiðinni frá Nýfundnalandi til Reykjavíkur,” sagði í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins nú í dag, 31. janúar 2019. Síðar í fréttinni mátti heyra þetta: “Einn Íslendingur er í áhöfn skipsins.” Þó svo að þetta sé leiguskip vakna spurningar: Af […]

Krísur siðferðis
Var að lesa ágæta grein eftir formann Eflingar, Sólveigu Önnu Jónsdóttur; Nokkur orð um leikreglur. Hún birtist á Kjarnanum. Í henni fjallar formaðurinn um siðferði og leikreglur samfélagsins. Þar segir m.a: “Þegar við látum eins og það sé sjálfsagt mál að konur vinni langa og erfiða daga en geti samt aldrei látið sig dreyma um […]

Vanþroski – Viðbót
“Braggamálið” sem svo er kallað er vandræðamál. Það dregur enginn í efa. Samt er það hvalreki. Fyrir lágkúruna. Ég hlustaði á umræðu um þetta mál í Silfrinu á sunnudag. Þar bar mikið á lágkúri. Og vanþroska. Ég ætlaði að skrifa eitthvað um málið en hafði ekki geð í mér að vitna í flatneskjuna. Eða hafði […]

Að kaupa sjálfan sig
Sá sem haldinn er aurasótt leitar í sífellu eftir meira fé. Og ef hann eygir gróðavon fer hann á stúfana til að góma fenginn. Nú hafa gróðafíklar trekkt upp einn af sendimönnum sínum. Sá er kunnur gjaldþrotasmiður frá Bóluárunum og situr á alþingi. Hann er byrjaður að tala um að nauðsynlegt geti verið að selja […]

Líf eða dauði
Það merkilegasta, það eftirtektarverðasta, það gleðilegasta sem ég heyrði úr pólitískum munni á árinu var brot úr ræðu Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra þar sem hún talaði um að kominn væri tími til að stöðva neysluhyggjuna, framleiðsluaukningarkröfuna, og huga þess í stað að leiðum til að efla hag jarðarinnar, dreifa gæðum hennar jafnt og styrkja innviði samfélags […]

Fegurð jafnræðisins
Það er gott að vita að við skulum öll vera jöfn fyrir lögunum, eða, já … eða eitthvað! Rétt í þessu, kl. 13:59 þann 18.12. 2018, mátti sjá þetta tvennt á mbl.is: “Kona á þrítugsaldri var í síðustu viku dæmd í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa stolið vörum fyrir 1.198 krónur úr verslun […]