trusted online casino malaysia

Óumbeðnar athugasemdir

En gaman

En gaman

Ég veit ekki. Eitt sinn var Kaffistofan á Pressunni hans Binga notaleg. Eins og kunningjaskraf yfir bolla að morgni dags. Auðvitað var það aldrei þannig, en það má alltaf ímynda sér. Að fólk sé bara að spjalla saman. Um okkur og lífið okkar hér. En neinei. Þetta birtist síðla gærkvölds (þið verðið bara að þola […]

Karl Th. Birgisson 20/08/2014 Meira →
Jóhanna og Hanna Birna

Jóhanna og Hanna Birna

Ein rökin til varnar Hönnu Birnu eru þessi: En Jóhanna braut jafnréttislög og sagði ekki af sér. Hvers vegna ætti Hanna Birna þá að gera það? Það er alveg einnar messu virði að bera saman þessi tvö mál enda verður lögbrot Jóhönnu eflaust áfram rifjað upp í þessu samhengi. Fyrst er til að taka, að […]

Karl Th. Birgisson 19/08/2014 Meira →
Af heiðingjum og bænunum þeirra

Af heiðingjum og bænunum þeirra

Fyrir allmörgum árum átti ég gyðingastúlku að kærustu. Það olli móður minni nokkrum heilabrotum, ég segi ekki hugarangri. Þó bara um stund. Hún kom með mér hingað heim í jólafríi úr háskólanum og við gistum auðvitað heima hjá mömmu. Og sumsé – á svipuðum tíma og við höldum jólin (og höfum gert síðan löngu áður […]

Karl Th. Birgisson 14/08/2014 Meira →
Hægri töff

Hægri töff

Stundum er okkur sagt að hægri og vinstri séu úrelt hugtök og ekki nothæf til að skilgreina pólitískar hugmyndir. Það er ekki rétt. Þetta er meðal þess sem skilgreinir ríkisstjórn sem hægri stjórn: Þau lækka veiðigjald á útgerðina þar sem hagnaðurinn lekur út um alla möskva. Þau afnema auðlegðarskattinn og lækka þannig gjöld á stóreignafólk. […]

Karl Th. Birgisson 11/08/2014 Meira →
Það sem er rangt

Það sem er rangt

Ég hef ekki gert neitt rangt, segir Hanna Birna Kristjánsdóttir. Það er alveg sérdeilis frumlegur málskilningur. Enginn heldur því fram að hún hafi sjálf lekið trúnaðarskjalinu og líklega vissi hún ekkert um lekann fyrr en það var um seinan. Í merkingunni „ólöglegt“ hefur Hanna Birna því ekkert gert rangt. Það er í eftirleiknum – öllu því […]

Karl Th. Birgisson 03/08/2014 Meira →
Hagsmunir og hentistefna

Hagsmunir og hentistefna

Ég held að ég hafi varla skrifað stafkrók um Árna Þór Sigurðsson síðan haustið 1999. Það var í landsmálablaðið Austurland. Nú er aftur tilefni. Því að stundum er samhengi nauðsynlegt. Snemma árs 1999 tók Árni Þór þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar fyrir þingkosningarnar þá um vorið. Hann var gizka ánægður með árangur sinn og sagðist hlakka […]

Karl Th. Birgisson 01/08/2014 Meira →
Því miður

Því miður

Það er nánast aukaatriði hvers vegna Stefán Eiríksson ákvað að hætta sem lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu. Jú, víst er það grafalvarlegt ef hann hrökklaðist úr embætti vegna yfirgangs og afskiptasemi Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, eins og DV fullyrðir og enginn hefur neitað, ekki einu sinni hann sjálfur afdráttarlaust. Hitt er miklu alvarlegra, að ráðherra lögreglumála hafi kallað […]

Karl Th. Birgisson 29/07/2014 Meira →
Ekki meira, Egill

Ekki meira, Egill

Mér sýnist full ástæða til að ræða aðeins meira og aftur um hann Egil. Og nei, ég er ekki að tala um Egil Helgason. Ég meina Egil Einarsson, sem ég hef aldrei hitt eða talað við, og þekki þess vegna aðeins af því sem hann lætur frá sér opinberlega. Þar hefur hann búið til persónuna […]

Karl Th. Birgisson 23/07/2014 Meira →
Dóttir mín, þjófsnauturinn

Dóttir mín, þjófsnauturinn

Hann Kristján dánlódar bíómyndum sem er svo hægt að horfa á í tölvunni. Ég var að horfa á Frozen í gær með Sólrúnu og Bjarti. Einhvern veginn svona hófst langt samtal sem ég átti við níu ára dóttur mína á leið niður Bankastrætið um daginn. Það var soldið snúið. Nei – reyndar mjög erfitt. Og samtalinu […]

Karl Th. Birgisson 17/07/2014 Meira →
Strætó bs.

Strætó bs.

Nú er alllangt síðan Strætó ákvað að merkja að því er virðist alla bíla sína með – tjah, hvað ætti eiginlega að kalla það? Merkingunum verður ekki lýst öðruvísi en sem innihalds-, merkingar- og tilgangslausum frösum og orðasúpum. Dæmi: Hoppípolla með blóðnasir. Má bjóða þér grænar baunir? Jagúar og sundlaug. Við dóttir mín höfum á […]

Karl Th. Birgisson 14/07/2014 Meira →
Já, framsóknarmönnum líður illa

Já, framsóknarmönnum líður illa

Hversu margir framsóknarmenn skyldu hafa trúað formanni sínum á fjöldasjálfshjálparfundinum í dag? Ekki margir. Þeir vita betur. Hann hefur varla trúað sér sjálfur enda veit hann eins og allir landsmenn að frambjóðendur flokksins nýttu sér andúð og ótta við innflytjendur og islam til atkvæðaveiða í vor. Hann heyrði það og við heyrðum það öll. Forysta […]

Karl Th. Birgisson 11/07/2014 Meira →
Ekkert djók

Ekkert djók

Það er auðvitað freistandi að afgreiða það sem brandara, að formaður Sjálfstæðisflokksins skuli hafa fengið Hannes Hólmstein til að rannsaka Hrunið. Það er svo hollt og gott að hlæja. En þetta er ekkert djók. Ekki einu sinni dómgreindarleysi. Miklu fremur eins konar blinda. Eða ósvífni sprottin af forherðingu. Spurningarnar, sem leita á svara við, eru […]

Karl Th. Birgisson 07/07/2014 Meira →
0,900