trusted online casino malaysia

Jean-Rémi Chareyre

rss feed

Dagur í lífi nýbúa

Dagur í lífi nýbúa

  Dagurinn í dag var svolítið sérstakur hjá mér. Hann byrjaði á því að ég mætti klukkan níu fyrir utan Mímir Símenntun, Höfðabakka 9. Þar átti ég nefnilega að taka íslenskupróf, sem átti að vera fyrsta skrefið í því ferli sem kallast „umsókn um ríkisborgararétt“. Við vorum um það bil þrjátíu nýbúar, alls staðar að […]

Jean-Rémi Chareyre 28/11/2016 Meira →
Saklaus uns sekt er sönnuð

Saklaus uns sekt er sönnuð

Saklaus uns sekt er sönnuð, segir máltækið. Þetta fannst mér rétt að hafa í huga varðandi Viðreisn. Um þann flokk hafa heyrst alls konar samsæriskenningar síðan hann var stofnaður. Að hann væri „hækja íhaldsins“, að hann væri tilraun til að framlengja pólitískt líf Sjálfstæðisflokksins, og svo framvegis. Og þar sem mér er illa við samsæriskenningar, […]

Jean-Rémi Chareyre 24/11/2016 Meira →
Frekar þann versta, en þann næstbesta.

Frekar þann versta, en þann næstbesta.

Nú er svo komið, að Donald Trump er orðinn forseti Bandaríkjanna. Það er, eðlilega, mikið flissað: „hvernig getur fólk kosið svona manneskju yfir sig?“ Við spyrjum okkur að þessu, vegna þess að við teljum að kjósendur hljóti sjálfkrafa að velja það sem þeim er fyrir bestu. Og þá virðist eina rökrétta niðurstaðan vera þessi: bandarískir […]

Jean-Rémi Chareyre 10/11/2016 Meira →
Hinir fyrstu verða síðastir

Hinir fyrstu verða síðastir

Teningunum hefur verið kastað, nýjir þingmenn raðast inn á þing. Helstu tíðindi úr nýafstöðnum kosningum voru hátt fylgi Sjálfstæðisflokksins og frekar lágt fylgi Pírata, sem höfðu þó verið á pari við Sjálfstæðisflokkinn í mörgum skoðanakönnunum. Slæmt gengi Samfylkingarinnar vakti líka töluverða athygli, en kom í raun ekkert sérstaklega á óvart miðað við kannanir. Fylgi Sjálfstæðisflokksins […]

Jean-Rémi Chareyre 05/11/2016 Meira →
Samfylkingin og Pareto-afturgangan

Samfylkingin og Pareto-afturgangan

Já, ég veit. Enn einn beturvitapistill um Samfylkinguna og fylgistap hennar. En þar er svo freistandi að bera í bakkafullan lækinn, og góður spekingur, sem ég met mikils, sagði einu sinni að besta leiðin til að losna við freistingu, væri að falla fyrir henni. Það hefur reynst mér vel. En nú verður þetta allt öðruvísi, […]

Jean-Rémi Chareyre 21/10/2016 Meira →

Píratar og málamiðlanir

Það er frábært að læra af „reynslu annarra“. Íslendingar eru mjög meðvitaðir um eigin smæð og duglegir að fylgjast með því hvað gerist í nágrannalöndum og læra af því. Það er mjög jákvætt. Hins vegar breytist sú viðleitni stundum í minnimáttarkennd, og það sem menn kalla „læra af reynslu annara“ reynist frekar vera að „herma […]

Jean-Rémi Chareyre 16/10/2016 Meira →
Framsókn og flóðið mikla: við erum öll framsóknarmenn!

Framsókn og flóðið mikla: við erum öll framsóknarmenn!

Framsóknarflokkurinn er í klípu. Formaður flokksins er löngu kominn yfir síðasta söludag, en flokksmenn þrjóskast við og styðja hann sem aldrei fyrr. Sigmundarmálið var fyrst hneyksli, svo varð það að kómískri framhaldssögu, en nú er það orðið að mannlegum harmleik. Og þessi harmleikur minnir mig svolítið á söguna um Frú Martin og sálfræðinginn, en svona […]

Jean-Rémi Chareyre 30/09/2016 Meira →
Nýfrjálshyggjuspakmæli Bjarna

Nýfrjálshyggjuspakmæli Bjarna

Vá! Haldið ykkur fast! Bjarni byrjaði kosningabaráttuna sína á því að lofa skattalækkanir! Afskaplega er þetta óvænt útspil. Hver hefði búist við þessu? Í ræðu sinni á flokksráðsþingi notaði Bjarni síðan tækifærið til að gagnrýna „vinstri flokkar“ fyrir að vilja alltaf hækka skatta (sem er að sumu leyti gild gagnrýni, hvað varðar suma alla vega), en […]

Jean-Rémi Chareyre 25/09/2016 Meira →
Leiðindanöldur um heilbrigðiskerfið – listin að styggja engan

Leiðindanöldur um heilbrigðiskerfið – listin að styggja engan

Flestir virðast vera sammála því, að umræðuþáttur Rúv á fimmtudagskvöld hafi verið frekar daufur. Ekki mikið kjöt á beinunum. Það sem vakti helst athygli er þetta tvennt: Frammistaða Sigmundar Davíðs og Bjarna Bens var sérstök. Til að gera langa sögu stutta skulum við orða það þannig, að þeir félagar hafa vaxið mjög af sinni reynslu […]

Jean-Rémi Chareyre 24/09/2016 Meira →
Bölvun vinstri-manna

Bölvun vinstri-manna

Enn einu sinni urðum við vitni að því, hversu þung bölvun hvílir á vinstri-sinnað og umbótafólk á Íslandi. Það gerðist þegar nýju búvörusamningarnir voru samþykktir á Alþingi og fréttir hermuðu að því, að Samfylkingin, VG og Píratar hefðu setið hjá. Þá fóru tveir vel þekktir, vinstri-sinnaðir blaðamenn að tjá hneykslun sína á þessu, bæði á […]

Jean-Rémi Chareyre 16/09/2016 Meira →
Kvóti eða ekki kvóti, þar er efinn

Kvóti eða ekki kvóti, þar er efinn

Þessi umræða um prófkjör Sjálfstæðisflokksins og konurnar sem eru þar ekki á lista finnst mér að sumu leyti stormur í vatnsglasi.

Jean-Rémi Chareyre 12/09/2016 Meira →

Af því bara!

Umræða um innflytjendamál hefur verið nokkuð áberandi að undanförnu. Sjónarmið sem heyrast gjarnan í þeirri umræðu eru á þessa leið: „Við verðum fyrst og fremst að hugsa um okkar eigið fólk. Íslendingar í fyrsta sæti“. Ég ætla ekki að gera grín að þessum sjónarmiðum. Þau eru að sumu leyti góð og gild. Sem manneskjur viljum við […]

Jean-Rémi Chareyre 29/08/2016 Meira →
0,983