Lögreglustjórinn leggur sig
Afturbeygða fornafnið sig reynist okkur erfitt viðfangs í daglegri notkun.
Dæmin um ofbeldið sem það verður fyrir eru legíó á hverjum degi, allir fjölmiðlar virðast vera jafnsekir og til þess að gæta jafnræðis skulum við engan nefna, en tiltaka þó raunveruleg dæmi.
´Hún sakaði manninn um að hafa reynt að drepa sig.´
Í fréttinni kom ekki fram hvers vegna manninum leið svona illa, en enginn skyldi þó hafa sjálfsvíg í flimtingum.
´Hann sagði konuna hafa slegið sig í höfuðið með flösku.´
Sjálfskvalalosti er þekkt mannleg kennd og allajafna ekkert við hana að athuga ef hún skaðar ekki aðra, en í fréttina vantar skýringu á því hvers vegna konan kaus að valda sjálfri sér þessu tjóni á höfði.
Mjög nýlegt dæmi er ´Hún segir lögreglustjórann hafa lagt sig í einelti.´
Einelti er viðurstyggilegt og getur verið beinlínis sálardrepandi fyrir þá sem verða fyrir því.
Það tekur þó væntanlega líka talsvert á þá sem beita því.
Það er eina hugsanlega skýringin á því hvers vegna lögreglustjórinn þurfti að leggja sig í miðju eineltinu.
Hún hefur verið orðin lúin.
K.
- Maðurinn og manneskjan - 30/12/2018
- Fokking - 18/05/2018
- Mikið manndatt - 15/01/2018