Pistlar

Bölvun vinstri-manna
Enn einu sinni urðum við vitni að því, hversu þung bölvun hvílir á vinstri-sinnað og umbótafólk á Íslandi. Það gerðist þegar nýju búvörusamningarnir voru samþykktir á Alþingi og fréttir hermuðu að því, að Samfylkingin, VG og Píratar hefðu setið hjá. Þá fóru tveir vel þekktir, vinstri-sinnaðir blaðamenn að tjá hneykslun sína á þessu, bæði á […]

Kvóti eða ekki kvóti, þar er efinn
Þessi umræða um prófkjör Sjálfstæðisflokksins og konurnar sem eru þar ekki á lista finnst mér að sumu leyti stormur í vatnsglasi.

Land ríkra útgerðarmanna og fátækra barna
Það er næstum spurning hvort nokkru sé við umræðuna um þjóðfélgasmeinið að bæta eftir að hafa lesið grein Þórðar Snæs Júliussonar í Kjarnanum. Það er þó ekki svo að blaðagreinar breyti þjóðfélaginu sem við búum til og búum í. Hvaða álit sem fólk hefur á stjórnmálum og stjórnmálamönnum þá verður það svo enn um sinn […]

Upphafning
Ríkisútvarpið bauð til veislu í kvöld, annan september 2016. Í tónum, máli og myndum. Á rás 1 Útvarpsins og í Sjónvarpinu. Hún var fyrir okkur þessi veisla, okkur sem fyrir margra hluta sakir komumst ekki í Hörpuna til þess að hlýða á stórfenglega tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Og einleikarana. Og kórana. Og einsöngvarana. Og kynnanna. Að […]

Ný gögn í Guðmundar- og Geirfinnsmálum
Eftir langt hlé bregður svo við að í sumar hafa birst nokkrar nýjar fréttir af Guðmundar og Geirfinnsmálum. Endurupptökunefnd hafa borist í það minnsta þrjú ný gögn, en hún kveður líklega upp úrskurð í september eða snemma í óktóber. Eitt þessara nýju gagna getur varla talist neitt minna en endanleg fjarvistarsönnun allra sakborninga í Geirfinnsmálinu, […]
Af því bara!
Umræða um innflytjendamál hefur verið nokkuð áberandi að undanförnu. Sjónarmið sem heyrast gjarnan í þeirri umræðu eru á þessa leið: „Við verðum fyrst og fremst að hugsa um okkar eigið fólk. Íslendingar í fyrsta sæti“. Ég ætla ekki að gera grín að þessum sjónarmiðum. Þau eru að sumu leyti góð og gild. Sem manneskjur viljum við […]

Um lögreglufræðin og gagnrýni mína
Aldeilis gáraði ég yfirborðið þegar ég gagnrýndi ákvörðun menntamálaráðherra um að fela Háskólanum á Akureyri lögreglunám á háskólastigi. Málsvarar okkar – Samfylkingarinnar – eiga að vera sanngjarnir, er sagt. Ég trúi því að sanngirnisvinkillinn sé vegna samlíkingar sem ég tók við flutning Fiskistofu. Kannski er það samt út af því sem fólk tók eftir þessu innleggi mínu […]

Já en
Þessi tvö orð allt sem segja þarf. Já, og ævinlega. Þau eru svo aldrei eins mikið notuð sem í aðdraganda kosninga, sér í lagi þingkosninga. Þetta er svona þarfaþing, eins og dósahnífur. Reyndar hafa slíkir misst nokkuð af hlutverki sínu með breyttum dósum. Já en er líklega bara eins og dósaopnunin sjálf. Jafnvel aðgerðin er […]

Maðurinn sem neitar að hlusta
Hörður Jóhannesson aðstoðaryfirlögregluþjónn sagðist í síðdegisútvarpi Rásar 2 í fyrradag ekki vera tilbúinn að hlusta á seinnitímakenningar um að rannsókn lögreglu í Guðmundar og Geirfinnsmálum hafi verið ábótavant. Ef eitthvað gerir rannsóknarlögreglumann algerlega óhæfan til að gegna starfi sínu, þá er það sennilega einmitt sá eintrjáningsháttur að neita að hlusta. Áður en svo langt er gengið […]

Breytum rétt
Varðhundar kerfisins og valdsins vilja helst engu breyta. Sumir þeirra átta sig á að því að krafan um breytingar er svo sterk að eitthvað verður undan að láta. Þegar þeir átta sig upphefst talið um hina víðtæku sátt. Aðrir eiga að nálgast þeirra sjónarmið og fallast á sem minnstar breytingar – það er víðtæk sátt. […]