Pistlar

Hinir fyrstu verða síðastir
Teningunum hefur verið kastað, nýjir þingmenn raðast inn á þing. Helstu tíðindi úr nýafstöðnum kosningum voru hátt fylgi Sjálfstæðisflokksins og frekar lágt fylgi Pírata, sem höfðu þó verið á pari við Sjálfstæðisflokkinn í mörgum skoðanakönnunum. Slæmt gengi Samfylkingarinnar vakti líka töluverða athygli, en kom í raun ekkert sérstaklega á óvart miðað við kannanir. Fylgi Sjálfstæðisflokksins […]

Er kominn tími á minnihlutastjórn?
Þegar búið er telja öll atkvæði og úrslit þingkosninga orðin ljós, eru flestar ef-spurningar tilgangslausar, svo vinsælar sem þær eru allajafna fyrir kosningar. Vangaveltur um möguleg stjórnarmynstur verða nú að byggjast á rauntölum. Tvennt er alveg ljóst: Núverandi stjórnarflokka vantar þrjú þingsæti til að geta haldið áfram með minnsta mögulega meirihluta. Fyrirhugað umbótabandalag fjögurra flokka […]

Hagsmunir – en hagsmunir hverra?
Ég sest stundum niður á leið minni í sturtu eftir hlaup á brettinu og aðrar æfingar í World Class. Sendi frúnni sms um að ég ætli í pottinn svo hún geti andlega farið að búa sig undir heimkomu karlsins, veitir ekki af. Í gær vildi svo til að hleðslan á batteríinu í þráðlausu heyrnartólunum mínum […]

Varist eftirlíkingar
Pólitík er fúlasta alvara. Viðfangsefni stjórnmálanna er þjóðfélagið. Í hvernig þjóðfélagi viljum við búa ? Þeir sem hafa skoðun á því eiga einnig að láta sig stjórnmál skipta. Allir eiga að nýta kosningaréttinn. Samfylkingin er klassískur jafnaðarmannaflokkur. Við viljum jöfnuð og öflugt velferðarkerfi. Við þurfum öflugt atvinnulíf til að standa undir þessum stefnumálum. Við þurfum […]

Samfylkingin og Pareto-afturgangan
Já, ég veit. Enn einn beturvitapistill um Samfylkinguna og fylgistap hennar. En þar er svo freistandi að bera í bakkafullan lækinn, og góður spekingur, sem ég met mikils, sagði einu sinni að besta leiðin til að losna við freistingu, væri að falla fyrir henni. Það hefur reynst mér vel. En nú verður þetta allt öðruvísi, […]

Skammist ykkar
Að lágmarki þrír fjölmiðlamenn birtu í gærkvöldi dylgjur um það, hvernig Bjarni Benediktsson tengdist leka á upplýsingum úr Seðlabankanum haustið 2008.

Stefnubreyting sem þarfnast útskýringar
„Lilja sagði að sérstaklega þyrfti að fylgjast með mögulegum breytingum á fiskveiðistjórnun Breta sem mögulega þurfa ekki lengur að undirgangast sameiginlega sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins. Þar gætu mögulega verið tækifæri fyrir Ísland.“ Lilja Dögg Alfreðsdóttir utanríkisráðherra. Þetta er stórfrétt! Heldur ráðherrann kannski að tækifærin liggi aðeins Íslandsmegin? Að mögulegt samstarf við Breta í sjávarútvegsmálum verði eingöngu á forsendum Íslands […]
Píratar og málamiðlanir
Það er frábært að læra af „reynslu annarra“. Íslendingar eru mjög meðvitaðir um eigin smæð og duglegir að fylgjast með því hvað gerist í nágrannalöndum og læra af því. Það er mjög jákvætt. Hins vegar breytist sú viðleitni stundum í minnimáttarkennd, og það sem menn kalla „læra af reynslu annara“ reynist frekar vera að „herma […]

Forskot Samfylkingarinnar
Samfylkingin boðar fólki, sem ekki getur fjármagnað útborgun í fyrstu íbúð eins konar forskot á sæluna með fyrirframgreiddum vaxtabótum til fimm ára. Hámarksupphæðrnar er tvær milljónir fyrir einstaklinga og þrjár milljónir fyrir hjón eða sambúðarfólk. Þetta er líkast til kröftugasta einstaka kosningastefnumálið, sem fram hefur komið hingað til og satt að segja furðu góð lausn […]

Við þurfum að tala um krónuna
Vextir verða alltaf háir á Íslandi og hærri en í samanburðarlöndum okkar á meðan við búum við langvarandi óstöðugleika og örgjaldmiðil að auki.

Framsókn og flóðið mikla: við erum öll framsóknarmenn!
Framsóknarflokkurinn er í klípu. Formaður flokksins er löngu kominn yfir síðasta söludag, en flokksmenn þrjóskast við og styðja hann sem aldrei fyrr. Sigmundarmálið var fyrst hneyksli, svo varð það að kómískri framhaldssögu, en nú er það orðið að mannlegum harmleik. Og þessi harmleikur minnir mig svolítið á söguna um Frú Martin og sálfræðinginn, en svona […]

Við þurfum fleiri jafnaðarmannaflokka
Um þessar mundir er tilfinnanlegur skortur á jafnaðarmannaflokkum á Íslandi. Mér sýnist að fyrir þessar kosningar muni ekki nema svo sem kannski sex slíkir bjóða fram. Það er augljóslega allt of lítið. Það er nefnilega þannig að jafnaðarmenn hafa talsvert mismunandi skoðanir á fjöldamörgum málum. Jafnaðarmenn eiga það að vísu allir sameiginlegt að vilja aukinn […]