Björn Valur Gíslason
Ekkert sérstaklega flókið
Margir eru eðlilega mjög hugsi yfir stöðunni á Alþingi vegna umræðu um fjárlög næsta árs. Í sjálfu sér er þó um tvö tiltölulega einföld mál að ræða. Í fyrsta lagi takast stjórn og stjórnarandstæðingar á um málefni Landspítalans. Stjórnarliðar vilja ekki setja nægilegt fjármagn í spítalann svo komast megi hjá hallarekstri á næsta ári. Þeir […]
Átta milljarðar í peningum
Samkomulag ríkisins við kröfuhafa í þrotabú föllnu bankanna kveður á um að búin leggi 379 milljarða króna í svokallað stöðugleikaframlag. Samkvæmt samkomulaginu skiptist það svona: 1. Peningar 8 milljarðar 2. Íslandsbanki 185 milljarðar 3. Ýmsar eignir og kröfur 83 milljarðar 4. Hlutdeild í sölu á Arion banka 20 milljarðar 5. Skuldabréf með veði í Arion banka […]
Dansinn er hafinn að nýju
Landsbankinn verði samfélagsbanki í eigu þjóðarinnar með það markmiði að þjóna samfélaginu í stað þess að hámarka hagnað. (Ályktun flokksþings framsóknarflokksins 2015 bls. 4) Bankasýslan í umboði formanns sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra auglýsir nú eftir starfsmanni til að selja Landsbankann. Fjármálaráðherra gerir ekkert með ályktanir framsóknarflokksins eða yfirlýsingar forystufólks framsóknarflokksins í aðra veru. Það er litið […]
Spilling sem verður að stöðva
Arion banki, sem er í 13% eigu ríkisins, seldi fyrir einungis nokkrum vikum handvöldum aðilum hluti í Símanum hf í tveimur 5% skömmtum. Fyrri hópurinn sem fékk að kaupa á genginu 2,5 kr á hlut innihélt Orra Hauksson forstjóra Símans og nokkra aðra íslenska og erlenda fjárfesta sem flestir tengjast Símanum ekkert. Seinni hópurinn samanstóð […]
Besta ríkisstjórn lýðveldissögunnar
Þrátt fyrir linnulausan áróður og óhróður öflugustu hagsmunasamtaka landsins, stjórnmálamanna af hægrivængnum og margra fjölmiðla í garð þeirra sem stjórnuðu landinu í kjölfar Hrunsins er þetta niðurstaðan. Jóhanna Sigurðardóttir var forsætisráðherra í bestu ríkisstjórn lýveldissögunnar. Fólk er ekki fífl, þó margir haldi það. Svo einfalt er nú það.
Forsætisráðherra svarar ekki
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segir Landsbankann ekki alltaf hafa sinnt hlutverki sínu eins og hann (ráðherrann) hafi viljað að hann gerði. Ráðherrann er einnig gagnrýninn á fyrrum áform bankans um að byggja nýjar höfuðstöðvar. Þetta kom fram í „svari“ hans við fyrirspurn Katrínar Jakobsdóttur formanns Vinstri grænna á Alþingi í dag. En hún var ekki að […]
Vægðarbeiðni Elínar Hirst
Vægðarbeiðni Elínar Hirst segir meira en margt annað um ástandið í sjálfstæðisflokknum. Í henni kemur vel fram hversu sársaukafullt og í raun óbærilegt kverkartak Davíðs Oddssonar á flokknum er. Jafnframt má í yfirlýsingu Elínar augljóslega greina veika stöðu Bjarna Benediktssonar, kjörformanns flokksins sem að mati þingmannsins má þola að lúta valdi Davíðs. Bjarni er í […]
Hann skilur ekkert
Þingmenn hægriflokkanna lögðu allt upp úr því að valda sem mestum usla og öngþveiti á kjörtímabilinu eftir Hrun.
Þing þarf að kalla saman
Hjúkrunarfræðingar kolfelldu nýgerðan kjarasamning við ríkið. Heilbrigðiskerfið er að hruni komið.
Epli og appelsínur
Að bera saman 110% leiðina og stóru millifærsluna er eins og að bera saman epli og appelsínu. Í 110% leiðinni fólst að fjármálafyrirtækjum var gert að afskrifa hluta af húsnæðisskuldum einstaklinga og fjölskyldna niður að 110% af verðmati viðkomandi húsnæðis. Það var því ekki um millifærslu úr ríkissjóði til fjármálafyrirtækjanna að ræða heldur hreina afskrift […]
Ef þau kunna að skammast sín
Samkvæmt skýrslu fjármálaráðherra eru megin niðurstöður stóru millifærslunnar sem hér segir: Tekjuhæstu hóparnir fengu mest greidd inn á lánin sín Næst tekjulægsti hópurinn fékk minnst allra Skuldarar á höfuðborgarsvæðinu fengu mun meira en skuldarar á landsbyggðunum Meginniðurstaða af aðgerðinni sem veitir fólki skattaafslátt gegn því að greiða húsnæðisskuldir með eigin sparnaði var sem hér segir: […]
Ítrekaðar spurningar – engin svör
Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna, beindi í fyrra ítarlegri fyrirspurn til Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra um 80 milljarða millifærsluna sem kölluð hefur verið „leiðréttingin“. Fjármálaráðherrann kom sér undan því að svara fyrirspurninni og sagðist þess í stað ætla að skila þinginu skýrslu um málið þar sem Katrín fengi svör við spurningum sínum. Skýrslunni sagðist ráðherrann ætla að skila í […]