trusted online casino malaysia
Björn Valur Gíslason 14/09/2015

Forsætisráðherra svarar ekki

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segir Landsbankann ekki alltaf hafa sinnt hlutverki sínu eins og hann (ráðherrann) hafi viljað að hann gerði. Ráðherrann er einnig gagnrýninn á fyrrum áform bankans um að byggja nýjar höfuðstöðvar.sigmundur davíð

Þetta kom fram í „svari“ hans við fyrirspurn Katrínar Jakobsdóttur formanns Vinstri grænna á Alþingi í dag.

En hún var ekki að spyrja hann um afstöðu hans til bankans eða fyrrum áform um byggingu nýrra höfuðstöðva.

Katrín Jakobsdóttir spurði hvort framsóknarflokkurinn stæði heilshugar að söluáformum á Landsbankanum eins og þau birtast í fjárlagafrumvarpi hans eigin ríkisstjórnar og fjármálaráðherra hefur útlistað svo vel í fjölmiðlum.

Katrín spurði einnig að því hvort fyrirhuguð sala á Landsbankanum væri að frumkvæði framsóknarflokksins og hvernig þetta félli að samþykktum flokksins um að bankinn ætti að vera í eigu ríkisins. Við því fengust engin svör.

Það er athyglisvert að nokkrir fjölmiðlar birta svör ráðherrans og hrósa honum sérstaklega málefnalega nálgun án þess að átta sig á því að hann svaraði engu.

Þeim er þó nokkur vorkunn þegar forsætisráðherra framsóknarflokksins er annars vegar.

Latest posts by Björn Valur Gíslason (see all)
Flokkun : Pistlar
1,526