Redneck
Redneck (no., kk.) = amerískt orð sem lýsir tiltekinni manngerð, en á sér bókstaflegan uppruna.
Uppruninn – hinn rauði háls – vísar til sólbrennds hnakka. Sambærilegt íslenskt orð gæti verið ´bændabrúnka´ eða önnur svipuð, sem lýsir sólbrúnni húð á hnakka og jafnvel á bringu þar sem opið hálsmál hleypir að sólargeislum.
Manntegundin er hins vegar sá sem í augum annarra er óupplýstur og óuppdreginn, hefur ógeðfelldar og jafnvel ruddalegar skoðanir og lífsviðhorf. Hann er durgur eða durtur, eða hvort tveggja.
Í Bandaríkjunum vísar orðið einkum til hvítra Suðurríkjamanna, sem hugsanlega aka um á pallbíl með hlaðna haglabyssu til taks. Viðkomandi býr ekki endilega í sveit – og er því ekki endilega sveitalubbi – en hugsanlega í smábæ á stærð við Garðabæ.
Hann á alveg áreiðanlega ekki lögheimili á eyðibýli.
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021