Krísur siðferðis
Var að lesa ágæta grein eftir formann Eflingar, Sólveigu Önnu Jónsdóttur; Nokkur orð um leikreglur. Hún birtist á Kjarnanum. Í henni fjallar formaðurinn um siðferði og leikreglur samfélagsins. Þar segir m.a:
“Þegar við látum eins og það sé sjálfsagt mál að konur vinni langa og erfiða daga en geti samt aldrei látið sig dreyma um efnahagslegt öryggi, geti ekki látið enda ná saman, geti ekki leyst út lyf, þurfi að sætta sig tilveru sem er eins og synda í tjöru höfum við gengið til liðs við óréttlætið. Því það er augljóst að það er einfaldlega óréttlátt að ætlast til þess að við sem vinnum á útsölumarkaði íslensks atvinnulífs samþykkjum möglunarlaust að okkar yfirgengilega lágu laun séu lykilinn að stöðugleika á Íslandi.
Við getum ekki samþykkt að áframhaldandi kúgun á okkur sé eina niðurstaðan í leiknum. Ef að leikreglurnar eru svo gallaðar eigum við einfaldlega ekki annara kosta völ; við verðum að breyta leiknum, reglunum og niðurstöðunni. Og það ætlum við, verka- og láglaunakonur, að gera.”
Þegar ég las þetta minntist ég síðustu greinar sem Jónas Kristjánsson, ritstjóri birti á heimasíðu sinni, Jonas.is, fáum dögum fyrir andlát sitt. Ég stelst til að birta hana hér, án sérlegs leyfis, því mér þykir það við hæfi:
Mánaðarlegar lífskrísur
17/06/2018 — PUNKTAR
Í annað sinn á síðustu hef ég haft þá ánægju að rúlla sem viðskiptavinur gegnum bráðadeildir og líknardeildir Landspítalans. Þar er þröng á þingi, sjúklingar í ofsetnum herbergjum, á göngum og lagerum. Kringum þá stendur þyrping ættingja og koma þá oft ekki bara sjúkdómar við sögu. Kliðurinn berst til annarra hópa og frá einum hópi til annars. Heimsleikarnir eru fólki ofarlega í huga, brauð og leikir fátæka mannsins. Næst kemur lífsbarátta sumra ættingja. Fólk, sem skrapar á 250 þús kr strípuðum taxtalaunum, atvinnuleysisbótum, örorku, eða ellilaunum, er mánaðarlega í óviðráðanlegum lífskrísum. Í gær var það bílaverkstæðið. Þessu þarf að breyta með því að útrýma bófaflokknum og setja 500 þús kr lágmarkslaun.
- Sálumessa - 02/07/2020
- Umhverfisvændi - 21/04/2020
- Er brennivínið besti kostur? - 26/03/2020