Icehot2
Til Spegilsins var lekið upptöku af samtali Bjarna Benediktssonar og Birgis Ármannssonar í gær. Það er ekki fyrir viðkvæma.
BB: Sæll Birgir minn.
BÁ: Já, sæll.
BB: Heyrðu – nú er Hanna Birna komin aftur og við þurfum að gera breytingar.
BÁ: Jæja?
BB: Já, hún er oddviti í Reykjavík, varaformaður flokksins og svona, svo að hún verður að fá sitt.
BÁ: Jæjajá?
BB: Já, þú veist hvernig þetta er.
BÁ: Jájá.
BB: Ég ætla að gera hana að formanni utanríkismálanefndar í staðinn fyrir þig.
BÁ: Ha?
BB: Já. Hún þarf að fá nefndarformennsku.
BÁ (röddin titrar örlítið): Heyrðu nú, Bjarni minn. Veit Hanna Birna eitthvað um utanríkismál? Hefur hún komið út fyrir Reykjavík? Og… Og… (hvíslar) Hvað ef hún lýgur að þinginu aftur?
BB: Hva! Hún þarf ekkert að vita um utanríkismál. Var ekki Árni Þór formaður á undan þér? Og svo kemur snilldin: Við gerum þig að fyrsta varaformanni eftirlits- og stjórnskipunarnefndar. Ef Hanna Birna byrjar að ljúga að þinginu aftur kemur þú veg fyrir að eftirlits- og stjórnskipunarnefnd geri einhverja vitleysu. Þú passar upp á hana. Líka ef nefndin ætlar að fara taka upp þetta gamla þarna.
BÁ: Af hverju ég? Getur Brynjar ekki farið í þetta? Hann er vanur að bulla fyrir hana.
BB: Ég treysti þér best. Svona ábyrgðarhlutverk fel ég ekki hverjum sem er. Þú ert maðurinn. Ef vel gengur geturðu jafnvel farið að kalla þig Icehot2.
BÁ (eftirvænting í röddinni): Heldurðu það?
BB: Engin spurning, Birgir minn. Þú ert maðurinn.
BÁ: Ókei. Gerum þetta. (Hugsi og röddin fjarar út) Icehot2…? (Heyrist kyngja)
- Kæra dagbók - 03/12/2018
- Kræst - 01/03/2018
- Engar áhyggjur, Bjarni minn - 05/05/2016