trusted online casino malaysia
Ritstjóri Herðubreiðar 30/10/2015

Cameron

Cameron (sérnafn) = nafnið er skoskt, en hvað það merkir er svo önnur saga.Cameron og Pútín

Ein skýringin er sú að það sé gelískt gælunafn og merki ´spilltur´ eða ´viðsjárverður´.

Önnur er að nafnið sé komið frá fjölmörgum samnefndum stöðum í Skotlandi. Þó er ólíklegt að sá sé uppruninn, heldur að staðirnir hafi fengið heiti sitt síðar.

Þriðja skýringin er að Cameron sé skoska útgáfan af Cambernon, sem er þorp eða smábær í Normandí í norðvestur-Frakklandi, en þaðan komu einmitt innrásarherir Frakka til Englands á sínum tíma.

Ef Cameron veit ekki svarið gæti Pútín grafið það upp.

Flokkun : Orðið
1,740