
G. Pétur Matthíasson

Vandi er að velja rétt
Vandi Landspítalans og heilbrigðiskerfisins í heild sinni er ekki útgjaldavandi heldur tekjuvandi. Það ætla stjórnarherrarnir greinilega ekki að horfast í augu við, ekki miðað við tal um brottrekstur forstöðumanna, hækkun sjúklingaskatta eða ákall um auðveldari leiðir til að reka starfsfólk. Það er búið að skera niður í heilbrigðiskerfinu árum og áratugum saman. Það er búið […]

Laugavegurinn lifir – lengur og lengri
Það er frábært að vera laus þessa sumardaga við bílana á Laugaveginum. Þegar það er þannig. Það virðist nefnilega bara vera stundum þannig. Veit ekki hvernig það er skipulagt en mér finnst það skrítið. Ég vildi sjá Laugaveginn lokaðan bílum miklu meira og á miklu stærra svæði, t.d. frá alveg Snorrabraut.Og auðvitað á hann að […]

Það er bara ein leið…
Hagstofa birti í dag frétt þess efnis að hallinn á vöruskiptunum við útlönd hafi numið 2,4 milljörðum á fyrstu sex mánuðum ársins. En í fyrra voru þau hagstæð um 25,1 milljarð króna á sama tíma. Hallinn í júní var 7,7 milljarðar króna en var hagstæður í fyrra um 1,1 milljarð króna. Þetta er mikil breyting […]

Neitar að afneita
Verði maður var við rasisma, verði maður var við hugmyndir sem eru andstæðar mannréttindum, andstæðar stjórnarskrá Íslands þá þarf maður ekkert að hugsa sig um til að vera á móti. Hvort sem maður er ungur Framsóknarmaður eða formaður flokksins. Setjum það dæmi sem nú er í umræðunni öðruvísi upp: Ef efsti maður á lista Framsóknarflokksins […]

Nú er maður alveg hættur að skilja
Hvað er í gangi? Varðandi loforðið mikla, heimsmetið, skuldaniðurfellinguna? Þetta átti að vera leiðrétting á forsendubresti. Það var í raun það eina sem réttlætir þessa aðgerð, að það hafi orðið þannig óréttlæt gagnvart okkur, fólkinu í landinu, að það þurfi að bæta. Reyndar hefur líka verið bent á óréttlætið sem felst í þessari leiðréttingu sjálfri, […]

Um óskiljanleikann og stríðsdansinn
Það er erfitt að átta sig á því á hvaða vegferð stjórnvöld dagsins eru. Seðlabankinn segir að skuldaniðurfærslan geti leitt til þess að viðskiptajöfnuður á næstu fjórum árum verði allt að 125 milljörðum króna lakari en ella. Á næstu fjórum árum þurfum við að útvega eina 600 milljarða króna í gjaldeyri til að borga af […]

Gunnar Bragi Evrópumaður ársins?
Þegar kemur að því að finna út hver hefur mest gert fyrir okkur á árinu 2014, okkur sem viljum ná góðum samningi við Evrópusambandið og fá þar aðild með okkar bestu vina- og ná grannaþjóðum, hlýtur utanríkisráðherra Gunnar Bragi Sveinsson að koma sterklega til álita. Ef maður skoðar kannanir MMR um afstöðu landsmanna til aðildar […]

Sigur Evrópu
Sigur Conchitu Wurst frá Austuríki í Evróvisjón í kvöld var sigur Evrópu allrar. Sigur yfir fordómum einsog okkar eigin Pollapönkarar minntu á. Sigur fjölbreytileikans, sigur þeirrar staðreyndar að það eru ekki allir eins, ekkert sérstakur sigur homma og lesbía eða transfólks, heldur okkar allra, því við erum öll mismunandi. Þetta var sigur frelsis, þetta voru […]

Stemming í rigningunni
Svo sem við mátti búast þá mættu heldur færri en vanalega á Austurvöll í dag í rigningunni. En margir létu hana ekki á sig fá og hlustuðu að snillinginn Hallgrím Helgason flytja magnaða tölu en það gerðu líka Katrín Fjeldsted, Svanur Kristjánsson og Stefán Jón Hafstein þótt tilþrifin væru ekki eins mikil. Orð skulu standa […]

Fiskur, fiskur og fiskur
Á hverju lifum við? Við höfum lengi og munum enn lifa mikið til á fiski og fiskveiðum. En eitthvað annað skiptir miklu máli. Og nú þegar ferðaþjónustan er kannski orðinn stærri en sjávarútvegurinn þá sér fólk að það er kannski eitthvað annað. Sumir segja að það sé böl að eiga auðlindir, einsog fiskinn, og fallorkuna, […]

Umræðan, góð eða ógeð?
Það er orðin ansi langt síðan ég hætti að lesa komment, nema hjá þeim sem maður þekkir á facebook og þar fer fram oft á tíðum mjög fín umræða. Komment á Eyjunni, eða á DV les ég nánast aldrei. Lendi einstaka sinnum í því að sjá ekki að komment á fésinu er komment við eitthvað […]

Berbrjósta í ræktinni
Fyrir mörgum árum þegar nýbúið var að banna reykingar í flugvélum sat ég aftast í vélinni. En í nokkur ár hafði verið leyft að reykja í öftustu sætunum og vei þeim sem fengu sæti fyrir fram reykingasætin, þeir reyktu sum sé einsog lífið lægi við — óviljugir. Nema hvað, þarna í aftasta sætinu, situr við […]