Vægðarbeiðni Elínar Hirst
Vægðarbeiðni Elínar Hirst segir meira en margt annað um ástandið í sjálfstæðisflokknum. Í henni kemur vel fram hversu sársaukafullt og í raun óbærilegt kverkartak Davíðs Oddssonar á flokknum er.
Jafnframt má í yfirlýsingu Elínar augljóslega greina veika stöðu Bjarna Benediktssonar, kjörformanns flokksins sem að mati þingmannsins má þola að lúta valdi Davíðs. Bjarni er í rauninni tæpast sjálfráður í starfi sínu heldur nánast eins og strengjabrúða ritstjórans á mogganum.
Síðast en ekki síst er ljóst af yfirlýsing Elínar að þingmönnum sjálfstæðisflokksins finnst ekki aðeins óþægilegt að starfa við slíkar aðstæður heldur háir það þeim hreinlega í störfum þeirra.
Svo lamandi eru áhrif Davíðs Oddsonar á þingflokk sjálfstæðisflokksins að mati innvígðra.
- Hugsanlega afdrifaríkur dómur - 26/03/2018
- Vandi Vinstri grænna - 23/01/2018
- Gamlar og vondar hugmyndir - 08/01/2018