Spilling sem verður að stöðva
Arion banki, sem er í 13% eigu ríkisins, seldi fyrir einungis nokkrum vikum handvöldum aðilum hluti í Símanum hf í tveimur 5% skömmtum.
Fyrri hópurinn sem fékk að kaupa á genginu 2,5 kr á hlut innihélt Orra Hauksson forstjóra Símans og nokkra aðra íslenska og erlenda fjárfesta sem flestir tengjast Símanum ekkert. Seinni hópurinn samanstóð af svokölluðum „einkabankakúnnum“ Arion banka sem fékk að kaupa á genginu 2,8 kr á hlut.
Einkabankakúnnar eru ríkustu viðskiptavinirnir í eignastýringu Arion banka. Spyrja má hverjir vildarvinir Arion banka eru í þessu samhengi. Eru ráðherrar og eða þingmenn stjórnarflokkanna í þeim hópi?
Allir þessir aðilar keyptu hluti í fyrirtækinu á verði sem er talsvert undir því sem almenningi og öðrum stendur til boða að kaupa núna. Einstaklingar fá að kaupa á genginu 3,1 kr á hlut en fagfjárfestar á genginu 3,4 kr á hlut.
Á einungis nokkrum vikum sem liðinn er frá því Arion banki seldi forstjóra Símans og öðrum fjárfestum hlut í fyrirtækinu hefur verðgildi þess hlutar aukist um 21-36% miðað við útboðsgengið 3,4 kr á hlut sem kynnt var í dag. Með öðrum orðum; velgerðargjörningur Arion banka hefur skilað forstjóra Símans gríðargóðri ávöxtun á einungis einum mánuði. Aðrir stjórnendur Símans og hinir handvöldu kúnnar og fjárfestar Arion banka hafa einnig grætt mikið á sínum bissness við bankann.
Þetta heitir spilling.
Hana verður að stöðva.
Þó hlutur ríkisins í Arion banka sé ekki mjög stór, þá ber handhafa þess hlutar (fjármálaráðherra) að svara fyrir sinn þátt í þessum vafningi. Þingmenn í stjórn jafnt sem stjórnarandstöðu hljóta að láta sig þetta mál varða og krefja ráðherrann um viðbrögð.
Annað væri hneyskli.
- Hugsanlega afdrifaríkur dómur - 26/03/2018
- Vandi Vinstri grænna - 23/01/2018
- Gamlar og vondar hugmyndir - 08/01/2018