Mótmæli
Stemningin á mótmælunum á mánudaginn var sérstök.
Ég skynjaði meiri gleði í loftinu en reiði þótt hún væri þarna líka. Fólk virtist almennt ánægt með að fá tækifæri til að taka þátt og sýna óánægju sína í verki og glatt að svo margir skyldu mæta. Og fólk mætti með börnin sín eins og það vildi sýna þeim að svona væri að vera borgari – manni bæri að segja sína skoðun og taka þátt í friðsömum mótmælum þegar og ef manni ofbýður framferði stjórnvalda.
Og svo fór að dimma og krakkarnir að klifra í upplýstum trjánum á Austurvelli.
Mynd: Jóhann Hansen.
- 4. apríl 2016 - 05/04/2016
- Sólin rís á ný - 22/12/2015
- Viðmælendur Bylgjunnar - 25/11/2015