Hvílíkt og annað eins
Konur ganga út af vinnustöðum fyrir lok vinnudags og verkalýðurinn heimtar hærri laun en hægt er að borga. Það er allt á hverfanda hveli. Lýðræðið riðar til falls. Þetta sjá allir. En þeir eru fáir sem hafa kjark til þess að segja allt sem er í þessum efnum. Sem betur fer eigum við þó ennþá vel siðað fólk, vel alið fólk með skarpa greind og þor. Og dirfsku. Þar er Hildur Sverrisdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins framarlega í sveit. Kanski fremst. Hún lét lýðinn hafa´ða á Alþingi í dag, 24.10.´18. Þetta sagði hún fullum rómi samkvæmt mbl.is:
„Undanfarið hef ég fylgst með orðræðu núverandi verkalýðsforystu vegna komandi kjarasamninga og orðið hreint út sagt hálfhvumsa við. Þar eru boðaðar byltingar með blótsyrðum sem ekki er hægt að hafa eftir í pontu Alþingis.“
Er nema von að konunni blöskri. Það er ekki nóg með að fólk heimti laun til þess að frílista sig eins og það sé einhverjir bubbar, það heimtar líka styttri vinnudag. Og ef það nær ekki sínu fram hótar það að gera byltingu. Og hefur hana. Og svo bölvar það í ofanálag. Í byltingunni. Það gengur ekki að bölva í byltingu. Bara alls ekki.
- Sálumessa - 02/07/2020
- Umhverfisvændi - 21/04/2020
- Er brennivínið besti kostur? - 26/03/2020