Hvernig væri að hringja eitt símtal?
Már Guðmundsson, bankastjóri Seðlabanka Íslands, lýsti því í viðtali á Eyjunni sl. sunnudag að mistök og/eða handvömm við lagasetningu og staðfestingu á reglugerð um gjaldeyrishöft í nóvember 2008 hafi orðið til þess að stór mál af hálfu bankans hafi fallið um sjálf sig og ekki staðist fyrir dómi.
Svo virðist vera sem bankastjóri Seðlabankans á þessum tíma hafi gefið undirmanni sínum rangar upplýsingar og fyrirskipanir sem hafa þessar afleiðingar núna.
Hefur enginn fjölmiðill heyrt í bankastjóranum fyrrverandi og spurt hann út í málið?
Síminn er 569-1100.
- Hugsanlega afdrifaríkur dómur - 26/03/2018
- Vandi Vinstri grænna - 23/01/2018
- Gamlar og vondar hugmyndir - 08/01/2018