Hentugleikasiðferði
Eyþór Arnalds er ekki bara þjóðkunnur bílstjóri, hann er líka framkvæmdamaður. Hann sat í stjórnum meira en tuttugu fyrirtækja þegar best lét hjá honum. Þegar hann fór í framboð í Reykjavík sem borgarstjóraefni Guðlaugs Þórs og Sjálfstæðisflokksins lofaði hann að segja sig úr stjórnum fyrirtækja. Ef marka má Vísi.is hefur hann sagt sig úr stjórnum 10 félaga, þar á meðal Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðsins, og Thorsil Holding sem ætlar að reisa kísilver í Helguvík.
Viðskiptablaðið hefur eftir honum að hann vilji “aðskilja mögulegan hagsmunaárekst-ur í aðdraganda kosninganna 26. maí. ”Ég geri það sem ég lofa”, segir frambjóðandinn, fánaberi siðferðis í Sjálfstæðisflokknum af auðmýkt og án oflætis.
En.
Þótt hann hafi ákveðið að ganga úr stjórn Thorsil Holding og Árvakurs er hann áfram eigandi, hluthafi, í þeim og mörgum öðrum, m.a. einhverjum félögum sem eiga byggingarlóðir í Reykjavík.
Hugmynd frambjóðandans um viðskiptasiðferði er sem sagt þetta: Það veldur ekki hagsmunaárekstrum fyrir stjórnmálamann að vera eigandi fyrirtækis ef hann er ekki í stjórninni.
Þetta hlýtur að mega teljast frumleg siðfræði og hentug fyrir bisnesmenn.
- Sálumessa - 02/07/2020
- Umhverfisvændi - 21/04/2020
- Er brennivínið besti kostur? - 26/03/2020