Cohen
Cohen (sérnafn) = hebreskt nafn að uppruna. Orðið merkir í raun prestur eða trúarkennimaður.
Þeir sem bera þetta ættarnafn eiga að vera komnir í beinan karllegg af Aroni, bróður Mósesar.
Í nútímasamhengi er kannske rétt að geta þess, að Aron á sér ekki síður sess í Kóraninum en Biblíunni. Og að cohen er samstofna arabíska orðinu kahin, sem merkir líka ´prestur´ eða ´kennimaður´. Bæði arabíska og hebreska eru semísk tungumál.
Cohen er eitt af algengustu eftirnöfnum gyðinga og er til í ótal útgáfum: Coen, Cohn, Kahn, Kohn, Kagan, Kaganovich o.fl.
- Nú ertu (endanlega) búinn að missa það, Brynjar - 20/02/2022
- Þegar streðinu lýkur – Guðni Már (og mamma) - 03/01/2022
- Afplánunin - 02/12/2021