Pistlar

Dúkkuheimili Borgarleikhússins
Jólafrumsýning Borgarleikhússins í ár var eitt af höfuðverkum norrænna leikbókmennta, Dúkkuheimili Ibsens. Þráðurinn í verkinu er spunninn um ung og efnileg hjón, Nóru og eiginmann hennar lögfræðinginn Þorvald Helmer. Framtíðin brosir við þeim þar sem hann er að taka við bankastjórastarfi með góðum tekjum, falleg og hraust börn og hjónin myndarleg. Nóra leggur allt í […]

Yfirtaka Framsóknar á DV
Það hefur verið þyngra en tárum taki að fylgjast með darraðadansinum í kringum DV. Ríkir karlar reyndu að kaupa það til að losna við umfjöllun um sig. Hortugir lögmenn lögðum þeim lið. Stjórnmálamenn reyndu að koma blaðamönnum DV í fangelsi vegna gagnrýnnar fréttamennsku sem á endanum leiddi til afsagnar sí ljúgandi ráðherra og starfsliðs hennar. Að lokum var það svo framsóknarflokkurinn sem tók blaðið yfir enda vantað […]

Forspá?
Herra forsetanum finnst að þegnarnir veiti því ekki næga athygli sem vel er gert. Þeir séu of gagnrýnir. Of neikvæðir. Samt er það svo að þeir velja sér mann ársins af verðleikum hans og samverkamanna hans, tala um það og skrifa um það. Þeir gleðjast yfir góðum bókum Gyrðis og Ófeigs og jafnvel lakri […]

Ólíkt hafast þau að
Í gær hlustaði ég og horfði á Harald Noregskonung flytja áramótaávarp sitt. Í því lagði hann m.a. út frá stjórnarskrá sem leikskólabörn höfðu samið og gefið Haraldi. „Store barn skal hjelpe små barn“ og „Alle mennesker må ta vare på jorda vår“ segir í því ágæta skjali. Ávarpið var laust við hroka og stærilæti. Það var innihaldsríkt og flutt af auðmýkt. […]

Staðan í kjarabaráttunni
Haustið 2013 lagðist verkalýðshreyfingin, þeas á almenna vinnumarkaðnum, í töluverða vinnu við að móta langtímastefnu í kjaramálum. Í þeirri vinnu var horft til níunda áratugar síðustu aldar, þar sem verðbólgan hafði farið með himinskautum og náð þriggja stafa tölu. Verkalýðsfélögin sömdu á þessum tíma um tugaprósenta launahækkanir á hverju ári, en þrátt fyrir það tókst […]

Áramótakveðja til ríkisstjórnarinnar
Núna er við völd versta ríkisstjórn Íslandssögunnar. Hún er verri en nokkur önnur ríkisstjórn í hinum vestræna heimi og hún er mannfjandsamleg að næstum því öllu leyti. Hún er ónýt. Þetta kunna að þykja stórar fullyrðingar en þegar ríkisstjórn ákveður með tíu daga fyrirvara að setja 500 atvinnulausar manneskjur út á guð og gaddinn og […]

Sjálfstætt fólk
Jólasýning Þjóðleikhússins í ár er uppsetning Þorleifs Arnar Arnarssonar á Sjálfstæðu fólki. Sýningin hefst með því að Rauðsmýrarhjónin sitja í forsetastúkunni og maddaman tala til okkar. Á hjartnæman hátt fer hún yfir hversu vænt henni þyki um okkur og hversu mikla áherslu hún leggi á að aðstoða þá sem minnst mega sín. Hversu heppin við íslendingar séum […]

Sterki maðurinn
Árið fjögur hundruð og fjörutíu samþykkti Rómakirkjan að telja lausnarann fæddan tuttugasta og fimmta desember árið eitt. Hún gerði það til þess að yfirtaka hátíðir sem mannkynið hafði haldið öldum saman til þess að fagna hækkandi sól á norðurhveli. Síðar bætti kirkjan í samráði við kaupmenn einum degi framan við fæðingardaginn til þess að […]

Jól hjá trantaralýð
Prédikun flutt við jólanáttsöng í Reyðarfjarðarkirkju á aðfangadagskvöld og við hátíðarmessu í Kirkjubæjarkirkju á jóladag. Náð sé með ykkur og friður frá Guði föður og Drottni Jesú Kristi. Amen. Jólin eru komin. Þessi árvissi gleðigjafi í miðju svartasta skammdeginu. Við fögnum því að daginn tekur að lengja og notum það tilvalda tákn úr gangi náttúrunnar, […]

Hvað heldur þú? Jólaleikur ársins
Af hverju hefur fátækum fjölgað á Íslandi? Ef hverju þurfa fleiri hjálp til þess að eiga fyrir mat og húsaleigu? Af hverju verða ríkir menn ríkari? Af hverju var matarskattur hækkaður og innflutningstollar af lúxusvöru felldir niður? Er þetta vegna þess að ráðherra ríkisstjórnarinnar eru að endurgjalda þeim sem veittu þeim peningastyrki og aðra […]

Stórkarlarnir stíga fram
Einhverjum þykir það sennilega að bera í bakkafullan lækinn að skrifa um fjárlagafrumvarpið. Frumvarpið var samþykkt í vikunni og og nú höfum við fjárlög sem ekki verður breytt. Fjárlögin enduspegla stefnu ríkisstjórnarinnar og þess vegna verður umræða um þau seint úrelt, ef fólk veltir fyrir sér stjórnmálum yfirleitt. Það er rauður þráður í fjárlögunum. Gert […]

Brauð og leikar
„Panem et circenses“ – Brauð og leikar. Í Rómaveldi hinu forna höfðu ráðamenn fundið leið til að halda lýðnum rólegum. Hinum bláfátæku var séð fyrir ókeypis korni í brauð og ýmiskonar skemmtunum sem kölluðust leikar. Valdhafar hafa svo flestir áttað sig á að þetta er áhrifarík leið. Svangur pöpull er hættulegur og líklegri til vandræða […]