Pistlar

Enginn bilbugur á átta þúsundum
Það var verulega góð stemming á Austurvelli á heldur nöprum sunnudegi. Það var hiti í ræðumönnunum fjórum þótt vissulega finndist þeim og okkur hinum líka að það væri búið að flytja þessar ræður allar áður. Niðurstaðan eiginlega sú, að þrátt fyrir allt, sé rétt að minna stjórnvöld á það enn og einu sinni að Ísland […]

Skemmdarverk ríkisstjórnar
Hvað á að kalla ríkisstjórn sem hundsar Alþingi, sem gengur þvert á meirihlutavilja þjóðarinnar, sem hefur margsinnis verið mældur? Hvað á að kalla ríkisstjórn sem vinnur skemmdarverk á framtíðarhagsmunum Íslands? Hvað á að kalla ríkisstjórn sem fer á bak við Alþingi, utanríkismálanefnd Alþingis, á bak við íslensku þjóðina? Ríkisstjórn sem einu sinni hefur reynt að […]

Haltu kjafti fyrir milljónir
Ýmis konar spilling hefur þrifist ljómandi vel í íslenskri stjórnsýslu svo lengi sem ég man. Samt finnst manni stundum keyra um þverbak. Nú síðast þegar í ljós kemur, að innanríkisráðuneytið hafi greitt almannatengslafyrirtæki 2,4 milljónir fyrir ráðgjöf í tengslum við lekamálið, lögfræðistofu rúma milljón og lögreglustjóraembættið á höfuðborgarsvæðinu hafi borgað hátt í milljón fyrir ráðgjöf, […]

Greiðslur gegn gjaldi
Það er fullkomlega eðlilegt að fyrirtæki sem það geta styrki starf stjórnmálaflokka. Reyndar má færa rök fyrir því að það sé samfélagsleg ábyrgð atvinnulífsins að styðja við stjórnmálaflokka og lýðræðislegar kosningar. En það er ekkert eðlilegt við það að fyrirtæki styðji ákveðna stjórnmálaflokka umfram aðra. Það felst engin samfélagsleg ábyrgð í því, heldur þvert á […]

Non mea culpa!
Í íslensku samfélagi hefur löngum þótt til siðs að neita allri ábyrgð þegar illa fer. Þrátt fyrir að þessi hvimleiði ósiður hafi verið landlægur frá ómunatíð, þá hafa óvenjulega margir fyrirmenn og -konur þjóðarinnar fallið í pytt hans að undanförnu. Í þónokkrum nýlegum og fyrirferðamiklum tilfellum hafa þessir mætu menn og konur hrakist úr einu vígi […]

Öfugmælastríð hægrimanna gegn RÚV
Enn einu sinni sem oftar fara hægrimenn hamförum við að reyna að koma vinstri slagsíðu-stimpli á RÚV og nú beinast augu þessa fólks einkum að Agli Helgasyni. Þetta er ekki fyrsta árásin og verður að líkindum ekki sú síðasta. Samt blasir við að ef það er einhver pólitísk slagsíða innan veggja RÚV þá leitar hún […]

Skattagrið og glæpahagfræði
Það tók tíma að ákveða viðbrögð við tilboði uppljóstrara um kaup á upplýsingum um hugsanleg skattsvik íslenskra skattborgara. Þegar ljóst var að ekki yrði undan kaupunum vikist varð að ráði að undirbúa löggjöf að fyrirmynd annarra landa sem linað gæti kárínur þeirra komist upp kemst og þeir um leið hvattir til iðrunar. Hópur var settur […]

Heimskan
Ég á allt eins von á því að uppáhalds rit mín hafi tilhneigingu til að vera ekki mikið að þvælast fyrir fólki og finnst það að líkum óheppilegt.

Það er mörg tilviljunin
Samkvæmt því sem fram hefur komið í fréttum segir Davíð Oddsson, fyrrverandi bankastjóri Seðlabankans, að tilviljun ein hafi ráðið því að hann hljóðritaði símtal sitt við Geir H. Haarde þar sem endanleg ákvörðun um Kaupþingslánið var tekin haustið 2008. Í því sambandi má rifja upp að DO hljóðritaði, væntanlega líka „fyrir tilviljun“, annað símtal án heimildar þess sem hann […]

Vitnaðu í Hannes
Þrátt fyrir viðvaranir lögmanna hefur Herðubreið ákveðið að birta afrit af símtali Davíðs Oddssonar og Geirs H. Haarde sem fram fór í hádeginu 6. október 2008. Til þess liggur þjóðarnauðsyn, að mati ritstjórnar.
Þjóðareign í orði eða á borði
Ekkifrétt vikunnar var að margboðað frumvarp um fiskveiðistjórnun yrði ekki lagt fram. Full eindrægni stjórnarflokkanna væri um að fiskveiðiauðlindin sé þjóðareign. Ekki sé heldur ágreiningur milli þeirra um að núverandi kvótahafar skuli stinga í vasann öllum arðinum af auðlindinni en skoðanamunur á því hversu vel falin sú niðurstaða verður. Hvað þýðir orðið “þjóðareign” hjá þeim […]

Og á svo bara að fyrirgefa?
Ekki er fyrr búið að kveða upp dóma yfir stórtækustu bankaræningjum Íslandssögunnar, en menn hlaupa upp til handa og fóta og vilja fara að fyrirgefa þeim allt saman. Ég ætla fyrir mína parta að fara aðeins hægar í sakirnar. Á Eyjunni er haft eftir Eiríki Bergmann Einarssyni: „Þeir einstaklingar sem hér um ræðir þurfa að […]