Herðubreiðarlindir

Allt þetta hlýtur að rumska dálítið við kvenfólkinu. Þær fara að setjast upp og nugga stýrurnar úr augunum.
Það er vonandi að þessi kvennaþrældómur í Reykjavík fari þverrandi, því vér teljum það engar framfarir, þótt Reykvíkingar kæmu upp þrælastétt í landinu eða nýrri kynslóð af hálfvitum.

Aðsópsmikill sómamaður – Strandamaðurinn sem gerðist tryggasti Sandarinn. Eftirmæli um Skúla Alexandersson
Skúla fannst ekki mikið til um fallegu myndirnar af Jöklinum, sletti í góm eða hnussaði öllu heldur þegar hann skoðaði þær. En það lifnaði yfir honum þegar hann sá hinar.

Portrett af stjórnmálamanninum sem ungum manni. Nokkur orð í minningu Halldórs Ásgrímssonar
Eftir Svein Aðalsteinsson
Við Halldór vorum æskufélagar og mjög nánir bekkjarbræður í landsprófi Gaggó Aust. 1961.

Eftirmæli: Bjarnfríður Leósdóttir
Bjarnfríður Leósdóttir er ein þeirra sem gleymast ekki svo glatt eftir að kynni hafa tekist. Þessi einbeitta kona var sannfæringarkrafturinn holdi klæddur og lét sig ekki í rökræðum fyrr en í fulla hnefana.

Andlit atvinnulífsfélagsfræðinnar – eða: Frá Benidorm til Kasakstan. Palladómur um ráðherra
Að gefnu svosum öngvu tilefni hefur Herðubreið afráðið að endurbirta ársgamlan palladóm um Gunnar Braga Sveinsson utanríkisráðherra.

Gömul saga af gömlum körlum. Eða: Hver var eiginlega uppljóstrari Styrmis Gunnarssonar?
Aðeins einn stjórnmálaflokkur á Íslandi hefur stundað skipulögð lögbrot gegn öðrum Íslendingum – njósnir, vopnaburð og þjófnað: Sjálfstæðisflokkurinn.

Hinir fengu rödd, hann fékk auga. Eftirmæli um Þorfinn Guðnason
Eftir Andra Snæ Magnason
Ég var að minnsta kosti impóneraður þegar hann mundaði 16mm Bolex vélina þegar fengitími iðnaðarráðherra og ofurforstjóra Alcoa stóð sem hæst.

Vingjarnlegi nasistinn sem elskar Ísland: Lærdómar frá Louisiana
Landið sjálft skiptir ekki höfuðmáli; greint, kraftmikið og duglegt fólk býr til merkileg samfélög. Ef íslenzka þjóðin hefði byggt suðlægari slóðir þá hefði hún skapað þar paradís.

Sterkur bjánahrollur: Samkrull viðskipta- og stjórnmálalífs í lipurlega skrifaðri bók laskaðs manns
Ritdómur – Hjálmar Gíslason
Það er nær ómögulegt að dæma þessa bók án þess að dæma um leið manninn að baki henni.

Frábær saga Orra um glataða snillinginn. Of gáfaður fyrir skóla. Of viðkvæmur fyrir lífið
Eiríkur Bergmann Einarsson – ritdómur
Í sínum yfirþyrmandi breyskleika er Arinbjörn Hvalfjörð einkennilega heillandi. Æðislegur. Óbærilegur.

Flísin í auga náungans – auðmýktarlaus Afhjúpun Reynis Traustasonar
Líkt og gefur að skilja er Reynir fráleitt sáttur við niðurstöðuna með DV og víða örlar á biturð í þeim texta. Til dæmis þegar Reynir agnúast út í klæðaburð andstæðinga sinna á hluthafafundi DV.

Lágstemmd og heiðarleg glæpasaga. Dómur landsbyggðartúttu með einfaldan smekk
Ritdómur – Brynhildur Ólafsdóttir
Ég er glæpasögufíkill. Hana. Þá er það sagt.