
Úlfar Þormóðsson

Valdarán
Á Íslandi eru 74 sveitarfélög. Samtök atvinnulífsins (SA) leggja til að þeim verði fækkað í níu. SA fullyrðir að sameining sé leið til að ná fram alvöru hagræðingu í rekstri þeirra. Alvöru hagræðingu, segja þau; hagræðingu stærðarinnar. Kíkjum á hana. Samtökin leggja til landið frá Eyrarbakka að Höfn í Hornafirði verði eitt sveitarfélag. Spyrjum af […]

Ógát
Ætli einhver flokkur hafi einhverju sinni boðið fram til þings með það yfirlýsta markmið að vera í stjórnarandstöðu? Skyldi slíkur flokkur hafa náð, eða ná, fjöldafylgi? Og ef svo færi að hann hlyti meirihluta atkvæða, hvernig mundi hann bregðast við? Það er komið fram í miðtafl við stjórnarmyndun að þessu sinni. Nokkrir taflmenn eru í […]

Frjálshyggjusagnfræði
Í dag, 25.11. 2016 reynir Vilhjálmur Bjarnason, endurkjörinn þingmaður Sjálfstæðisflokksins fyrir sér í sagnfræði. Til birtingar á tilraun sinni notar hann landsfrægan sannleiksmiðil, Morgunblaðið. Eins og góðum guðsmanni sæmir hefur hann tilraunina á rangri fullyrðingu kristniboða, síbyljunni um að „að íslenskan væri vart til í dag nema af þeirri ástæðu að Svarta bókin var þýdd […]

Heyrnarleysi
Í því flóði greina sem skrifaðar hafa verið um ástæður fyrir óheillavænlegri þróun lýðræðisins undangengin misseri hef ég hvergi séð fjallað um það hvern þátt heyrnarleysi valdsins á í þeirri framvindu. Úrslit forsetakosninganna í Bandaríkjunum hafa verið skýrð með margbreytilegum hætti. Réttum eða röngum. En það er hvergi minnst á heyrnarleysið, heyrnarleysi valdsins, sem verður […]

Ofbeldi og allsleysi
Landsamband íslenskra útvegsmanna LÍÚ fór í fegrunaraðgerð og skipti um skammstöfun. Það auðkennir sig nú með stöfunum SFS. Nýr framkvæmdastjóri er Heiðrún Lind Marteinsdóttir, en hún tók við af manni sem fór til starfa hjá þrotabúum banka upp á miljarðabónus. Blaðið Stundin hefur á forsíðu eftir Heiðrúnu Lind „að skattar séu ofbeldi“ og að „þjóð […]

Ólöglegt en siðlegt
Verkalýðshreyfingin er að efla verkfallssjóði sína. Þetta merkir að hreyfingin býr sig undir harða kjarabaráttu í byrjun nýs árs. Þetta er löngu vitað og ætti að vera kunnugt öllum þeim sem fylgjast með þjóðmálum. Útgerðin, fiskvinnslan og sölusamtök fiskframleiðenda kvarta yfir háu gengi íslensku krónunnar. Ferðaþjónustan gerir það líka. Kvartanirnar fela í sér ósk um […]

Í blóðbaði
Framsóknarmaðurinn mummi skrifar á Vegginn (Veggurinn.is), stuðningsvef Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, fyrrverandi: „Sigmundur Davíð hefur rekið sína pólitík á hugsjónum og framtíðarsýn … með þeirri nálgun á stór og smá málefni hefur hann bæði náð árangri og fengið fjölda fólks á sitt band og Framsóknarflokksins … Sigurður Ingi er hins vegar ekki þekktur fyrir neitt af þessu. […]

Miljónakallinn
Miljónakall Framsóknarflokksins keypti allita tólfblöðung inn í Moggann í dag, kjördag, fyllti hann af grobbsögum og loforðum og borgaði svo fyrir aldreifingu á blaðinu. Og þarna brosa þeir, Frammararnir, í tólfblöðungnum, reyna það að minnsta kosti. En. Þeir skilja eftir stórar spurningar. Þær vakna við lestur miðopnu tólfblöðungsins. Þar er sagt frá þeim dólgslegu skrifum, […]

Gleymska
Sjálfstæðismenn eru örvæntingarfullir. Mannfæðin er slík hjá flokknum að þeir neyðast til að senda Guðlaug Þór Þórðarson, alþingismann til þess að kynna stefnu flokksins í útvarpi, sjónvarpi og blöðum. Það er alkunna að gleymskan er fylgifiskur örvæntingarinnar. Þannig hélt Guðlaugur Þór því fram í kosningaspjalli í Vísi (26.10.´16) að orðspor Sjálfstæðisflokksins hafi ekki beðið hnekki […]

Þingmóri
Við lok síðasta mánaðar birti undirritaður stuttan pistil, Stríðsfrétt, um vefinn Veggurinn.is. og þótt í djúpristu góðsemiskast að kalla mætti vefinn undarlegan. Í pistlinum kom fram að það eru stuðningsmenn Sigmundar Davíðs, formanns Framsóknarflokksins sem halda honum úti. Aðdáendur formannsins, aflögufærir á fé. Það sem af er þessum mánuði hefur undirritaður endrum og eins fylgst […]

Mínímalísk glæpasaga
Það er 18. október. Í fyrrakvöld horfði ég á sjónvarpsfréttir, sá og heyrði af sjómanni, skipstjóra á besta aldri, sem alshæmerinn hafði gleypt. Hann getur enga björg sér veitt lengur. Hann þarf hjálp við hvaðeina, allan sólarhringinn. Það er búið að senda hann út af stofnun; hann er búinn að vera þar svo lengi sem […]

Sérstaða
Staða Framsóknarflokksins í stjórnmálum er einstök nú um stundir. Hún sætir slíkum fádæmum að það er taklin frétt, meira að segja myndskreytt forsíðufrétt í Morgunblaðinu, að formaður flokksins hafi talað við þingmann flokksins. Þeir „Hafa átt trúnaðarsamtöl eftir fáleika,“ svo vitnað sé til fyrirsagnar á forsíðu Moggans. „Sigurður Ingi Jóhannsson, forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, og […]