
Úlfar Þormóðsson
Sálumessa
SÁLUMESSA Þegar fréttir bárust af því í gær, 1. júlí, að alþjóðlegur auðhringur, Storytel, með staðfestu í Svíþjóð hefði keypt stærsta hlutann í Forlaginu verkaði það eins og andlátsfrétt af nánum vinum og fjölskyldu. Og sorglegt að seljandinn var firmað Mál og menning en eðlilegt að sá sem skrifaði undir pappírana skyldi vera sami maður […]

Umhverfisvændi
Í gær, mánudaginn 20. apríl, las ég þetta á Vísi.is: „Kanadíski flugherinn hefur komið fyrir færanlegu ratsjárkerfi á Stokksnesi. Kerfið var sett upp þar svo tryggja megi órofinn rekstur á ratsjárkerfum Atlantshafsbandalagsins hér á landi á meðan endurbætur standa yfir. Samkvæmt færslu á Facebooksíðu (svo) Landhelgisgæslunnar hófst verkefnið á MIðnesheiði (svo) í febrúar og heldur […]

Er brennivínið besti kostur?
Tæplega tuttugu veitingahúsaeigendur hafa sent þremur ráðherrum ríkisstjórnarinnar bréf þar sem þeir “skora á stjórnvöld að veita frumvarpi dómsmálaráðherra um netverslun með áfengi flýtimeðferð vegna þeirra aðstæða sem uppi eru í samfélaginu” segir í net-Fréttablaðinu í dag. Það er ekki ætlunin hér að ræða það sem veitingamennirnir færa fram sem rök. Hins vegar vil ég […]

Gróðaveiran
Það merkilegasta, það eftirtektarverðasta, það gleðilegasta sem ég heyrði úr pólitískum munni árið 2018 var brot úr ræðu Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra þar sem hún talaði um að kominn væri tími til að stöðva neysluhyggjuna, framleiðsluaukningarkröfuna og huga þess í stað að leiðum til að efla hag jarðarinnar, dreifa gæðum hennar jafnt og styrkja innviði samfélags […]

Fimleikar
Primera Air var úrskurðað gjaldþrota á síðasta ári og færði Arion banki niður tæplega þrjá milljarða króna í ábyrgðum og lánveitingum vegna gjaldþrots flugfélagsins, að því er fram kom í ársreikningi bankans. Andri (Már Ingólfsson, fyrrum eigandi Primera Air og Heimsferða) segir að tap Arion hafi raunar ekki verið þrír milljarðar heldur 1,8 milljarðar […]

Hofmóður
Ég er ekki í stjórnarandstöðu. En ég játa það, áður en langra er haldið, að ég hef lengi haft ímigust á stjórnmálaferli Kristjáns Þórs Júlíussonar, sjávarútvegsráðherra. Sá illi bifur jókst mjög þann tíma sem hann svaf í embætti heilbrigðisráðherra á sama tíma og heilbrigðiskerfið morknaði vegna viljandi vanrækslu hans. Og hann minnkaði ekki ímigusturinn þegar […]

AÐ SKIPTA Á TUNGUM
Í tilefni dagsins Það er 1. des., fyrsti desember. Í Silfrinu á Rúv er verið að tala við forstjóra Air Iceland Connect. Fyrir nokkrum misserum hét þetta félag Flugfélag Íslands. Reksturinn gekk ekki sem skyldi. Þá fékk stjórn félagsins þá hugmynd að skíra félagið upp. Ætlunin var að auðvelda útlendingum að segja nafnið. Þetta átti […]

Að éta sjálfan sig
Það eru allar líkur til að komist hafi upp um meiriháttar svindl hjá öflugasta og ríkasta útgerðarfyrirtæki landsins. Við, fjöldinn allur, látumst ekki skilja neitt í því hvernig þetta gat gerst, og erum yfir okkur hneyksluð. Og spyrjum eins og álkur hvernig í ósköpunum standi á þessu. Samt eru helstu þættirnir í svarinu augljósir. Og […]

Véla þeir enn
Alltaf skríða þeir fram aftur og eftur, hrapparnir. Stundum sem frelsarar, nú sem fjölskylduvinir miðstéttarinnar sem tekist hefur að safna einhverjum krónum í varasjóð. Þeir vilja ólmir hjálpa til við að auka forðann. Þeir bjóða skattaafslátt. En. Þeir setja skilyrði fyrir liðveislunni: Þú verður að kaupa hlutabréf í fyrirtækjunum þeirra til þess að fá afsláttinn. […]

Yfirgangsmenn
Þann 26. janúar í fyrra birti ég grein hér á Herðubreið. Yfirskrift hennar var Óráðin fjegur. Þar var fjallað um tillögur nefndar sem falið hafði verið að finna ráð til þess að bæta hag einkarekinna fjölmiðla. Nú er enn einu sinni hafin umræða um að “bjarga” einkareknu fjölmiðlunum með því að deyða Ríkisútvarpið. Af þeim […]

Að horfa á boltann
Rúv 1, eins og það heitir á netinu, sendir út leik Íslands og Moldóvu í fótbolta. En það er eins og Rúvið, og reyndar Síminn og Rás 2 líka, átti sig ekki á því að upp til hópa eru áhorfendur beturvitringar. Og vilja ekki láta trufla sig við áhorfið. Og þeir vilja alls ekki láta […]

Gósentíð
Las þetta í Fréttablaðinu í fyrradag, sama dag og umsóknarfrestur um listamannalaun var auglýstur og lofar góðu með starfslaun listamanna í ár; fullt af peningum, ferðakostnaður verður greiddur svo og matur og gisting og leigubílar og laun aðstoðarmanns og hvaðeina sem til þarf og ekki þarf til þess að sinna starfinu. Það er gósentíð […]