Afkoma ríkissjóðs batnað jafnt og þétt
Fyrirsögn þessa greinarkorns er fengin að láni af vef Viðskiptablaðsins á dögunum, en þar er vitnað í umfjöllun greiningardeildar Arion banka um nýframkominn ríkisreikning. Greiningardeildin bendir réttilega á að afkoma ríkissjós á árinu 2013 var mun betri en gert var ráð fyrir að afgreiddum fjáraukalögum og reyndar betri en sjálf fjárlög ársins 2013 gerðu ráð fyrir. Þannig varð tekjuhallinn aðeins 732 milljónir króna í stað 3,7 milljarða sem fjárlögin gerðu ráð fyrir og í stað 19,7 milljarða samkvæmt fjáraukalögum.
Hræðsluupphlaup oddvita núverandi stjórnarflokka í sumarbyrjun í fyrra, þeirra Sigmundar og Bjarna, sem þá töldu útlitið kolsvart og héldu um það blaðamannafund, hefur því sem betur fer reynst tilefnislaust með öllu. Jafn innistæðulaust reyndist tal stjórnarliða um ófjármagnaða fjárfestingaráætlun fyrri ríkisstjórnar í ljósi hárrar arðgreiðslu Landsbankans í ár sem þegar hefur verið greidd.
Óreglulegir liðir
Svonefndir óreglulegir liðir hafa vissulega nokkur áhrif á endanlega niðurstöðu ríkisreiknings. Aukinn eignarhlutur ríkisins í Landsbankanum, sem ríkið fékk í sinn hlut án endurgjalds þegar uppgjör fór fram milli nýja og gamla bankans, veldur tekjufærslu upp á tæpa 25 milljarða. Á móti kemur t.d. tæplega 12 milljörðum króna hærri gjaldfærsla tapaðra skattkrafna.
Afkoman batnað frá 2009
Aðalatriðið er þó að ef horft er fram hjá óreglulegum liðum er afkoman orðin jákvæð og batnar um 20 milljarða milli ára. Á sama mælikvarða, það er án óreglulegra liða, hefur afkoman batnað jafnt og þétt frá árinu 2009 eða um heila 120 milljarða segir í áðurnefndri umfjöllun greiningardeildar Arion banka. Hér veldur mestu um að mikilvægustu tekjustofnar ríkisins styrkjast með auknum þrótti í hagkerfinu. Efnahagsbatinn, sem gekk í garð undir lok árs 2010, er því að skila nákvæmlega því sem til var ætlast á sviði ríkisfjármálanna.
40,7 milljarðar á milli ára
Með því að leggja traustan grunn að tekjuöflun ríkisins eins og gert var með breytingum á skattkerfinu, einkum á árunum 2009-2010, skila aukin umsvif í hagkerfinu auknum tekjum í ríkissjóð án þess að skattar séu hækkaðir. Það jafnvel svo að hlutfall tekna ríkisins af landsframleiðslu hækkar frekar en hitt og er stundum talað um sjálfvirka margfaldara í þeim efnum. Þannig aukast tekjur um 40,7 milljarða króna milli áranna 2012 og 2013 að frátalinni eignaaukningunni í Landsbankanum eða um 3,7% að raungildi.
Mikill árangur
Ríkisreikningur ársins 2013 staðfestir enn frekar þann mikla árangur sem harðsnúin fjármálaglíma allt síðasta kjörtímabil skilaði. Í fyrstu lotu varð að forða ríkissjóði frá þroti og síðan rétta hann af og koma rekstrinum í jafnvægi sem nú hefur tekist. Upphafleg ríkisfjármálaáætlun frá vordögum 2009 og með þeirri endurskoðun sem hún sætti, aðallega haustið 2011, hefur í öllum meginatriðum gengið eftir. Næstu ár þarf að mynda afgang og hefja niðurgreiðslu skulda.
Steingrímur J. Sigfússon, 21. ágúst 2014