
Úlfar Þormóðsson

Af erfingjum
Eigendur HB Granda eru hættir að verka fisk og gera út frá Akranesi. Þeir eru búnir að gleypa kvóta Skagamanna og hafa enga ástæðu til þess að vera þar lengur; það borgar sig ekki, það rýrir arðinn. Bæjarstjórnin á Akranesi hefur legið við lappir eigendanna, erfingja Ísbjarnarins, erfingja Hvals hf. og forstjóra álversins í Straumsvík, […]

Ef með spurn
Ef ríkisstjórnarflokkarnir hefðu sagt fyrir kosningar að þeir ætluðu að svelta Landsspítalann af rekstrarfé, hefðu þeir þá náð það góðri kosningu að þeir væru við stjórn nú? Ef ríkisstjórnarflokkarnir hefðu fyrir kosningar sagst ætla að efla einkarekstur í heilbrigðiskerfinu með greiðslum úr ríkissjóði, hefðu þeir þá náð það góðri kosningu að þeir væru við stjórn […]

Bellibrögð
Kristján Þór Júlíusson, menntamálaráðherra hefur verið að pukrast við það síðan í febrúar að færa einkafyrirtækinu, Tækniskólanum – Skóla atvinnulífsins – Fjölbrautarskólann við Ármúla (FÁ) að gjöf. FÁ er vel rekinn og rómaður skóli. Ráðherrann var í útlöndum þegar upp komst um brallið. Þá dreif hann sig heim, byrjaði að tala, var óðamála og […]

Óland
Það hefur oft orðið raunin þegar íslenska krónan hefur fengið frið fyrir atvinnulífinu og stjórnvöldum til að viðra sig á heimsmarkaði, að hún hefur staðið sig vel og hækkað miðað við aðra mynt. Þá hefur það og verið jafn öruggt og árstíðaskipti að þeir, sem fá borgað fyrir vöru og þjónustu með erlendum peningum, krefjast […]

Lyktin, kaupmaður
Í tíu-fréttum Sjónvarpsins í gær (02.05´17) gerði utanríkisráðherra úttekt á samningi um evrópska efnahagssvæðið. Honum þótti hann mikilvægur, samningurinn, afar mikilvægur, og tiltóki eitt atriði. Eitt atriði. Af því hlýtur að mega draga þá ályktun að það sé aðalatriði, mikilvægasti þáttur samningsins. Þetta: „Það er enginn vafi. Þetta er okkar mikilvægasti viðskiptasamningur og hefur leitt […]

Gufuvélin
Um miðjan janúar 2016 var ég orðinn afar mæðinn og þróttlítill til göngu eftir reykingar í tæp 60 ár. Auk þess hóstaði ég í tíma og ótíma; einkum þegar ég hló. Og ég hafði grun um að ég væri með lungnaþembu á frumstigi vegna slímmyndunar í öndunarveginum. Allt var þetta bagalegt. Þar sem ég þóttist […]

Landeyðingur
Einu sinni var bæjarútgerð á Dalvík, Ísafirði og Akureyri. Einu sinni var Kristján Júlísson bæjarstjóri á Dalvík, Ísafirði og Akureyri. Eftir það voru engar bæjarútgerðir á þessum stöðum. Á sama tíma óx útgerðarfélagið Samherji hf. Kristján Þór var formaður stjórnar þess jafnframt því að vera bæjarstjóri á Ísafirði. Kristján Þór var heilbrigðisráðherra þegar búið var […]

Förum í manninn
Það er dagur jarðar (22.04.´17). Vísindafélag Íslendinga efndi til göngu og fundarhalda um mikilvægi vísinda við náttúruvernd og þá hættu sem steðjar að vísindafólki og störfum þess. Þetta er fínt og þarft og gott. Og nauðsynlegt. Það er ekki ljóst hvort fréttamaður Ríkisútvarpsins fann það upp hjá sjálfum sér í hádegisfréttatímanum, eða hafði það eftir […]

Það er kúkur í lauginni
Staksteinar Moggans segja frá því í dag (21.04.´17) að Styrmir Gunnarsson, fyrrum ritstjóri blaðsins telji vandamál vera að hrannast upp „á sjóndeildarhring ríkisstjórnarinnar“. Styrmir álítur að andstaða fimm þingimanna Sjálfstæðisflokksins vegna fyrirhugaðrar hækkunar virðisaukaskatts á ferðaþjónustu sé alvöru uppreisn og „gæti verið vísbending um meiri pirring innan þingflokksins af einhverjum (öðrum) ástæðum en fram hefur […]

Snilld
Það er ókyrrð í heiminum. Og ofbeldi. Rétt eins og verið hefur í árþúsund. En nú fréttum við af ótuktarskap oftar og fyrr en áður; stundum sjáum við myndir af ofbeldi um leið og það er haft í frami, hvort sem það á sér stað í Flórída eða Frakklandi, Súrinam eða Svíþjóð. Í Stokkhólmi ók […]

Þögn er gulls ígildi
Fyrir rúmum 7 árum tók starfsmaður ríkisskattstjóra á móti fölsuðum virðisaukaskattskýrslum, endurgreiddi upploginn virðisaukaskatt og lagði féð inn á bankareikning. Með þessum hætti gerði hann mönnum í jakkafötum fært að stela 278 miljónum króna úr ríkissjóði. Að launum fékk hann 9 miljónir til viðbótar við kaupið frá hinu opinbera. Þegar upp komst um gjörninginn höfðu […]

Vindhanar
Í morgun sendi Íslandsbanki auglýsingu í hvert hús með Fréttblaðinu. Þar segir að kominn sé tími til að gefa í og braska líkt og í Bólunni. Bankinn ætlar að ginna ungt fólk til þess að taka lán og byggja, taka lán og taka lán og flytja svo inn í ofurveðsett húsnæði sem bankinn hirðir upp […]