Ritstjórn
Framsókn dormar á facebook. Sá sem skrifaði síðustu færslu sagði sig úr flokknum vegna „þjóðernisíhaldssemi“ hans
Stjórnmálamenn og -flokkar nýta sér samfélagsmiðla í æ ríkara mæli til að koma stefnu sinni, hugmyndum og skilaboðum til kjósenda. Þetta virðist þó ekki eiga við um Framsóknarflokkinn í Reykjavík. Síðasta færsla á facebook-síðu flokksins í höfuðborginni er skrifuð 29. maí 2010. Hana skrifaði Einar Skúlason sem var þá oddviti flokksins í borgarstjórnarkosningum og vildi […]
Menn með skegg niður á nafla og ofurhárblásara í klofinu. Stefán Jón dæmir Skálmöld í Borgó
„Ef maður ætlaði að gera grínmynd um þungarokkhljómsveit myndi maður stilla upp Skálmöld: Trommari á pilsi en ber að ofan með sítt hár á tveggja metra palli bak við tvær bassatrommur og frumskóg af míkrófónstatívum og trjárenglum.“ Þannig hefst dómur Stefáns Jóns Hafstein um tónleika Skálmaldar í Borgarleikhúsinu, sem hlotið hafa mikið lof. Hann heldur […]
Tussan á henni Hönnu Birnu og fleira smekklegt inn í borgarstjórn? Guðni er sannarlega spaugsamur
„Það var mikið hlegið á nokkrum borðum á herrakvöldinu stuttu fyrir síðustu sveitastjórnarkosningar þegar Guðni skemmti viðstöddum með bröndurum af „tussunni á henni Hönnu Birnu“ og bólförum Sóleyjar Tómasdóttur.“ Þannig farast Birni Val Gíslasyni orð í pistli í Herðubreið þar sem hann gerir að umtalsefni hugsanlegt framboð Guðna Ágústssonar til borgarstjórnar. Björn Valur rifjar einnig […]
Pírati kemur út úr skápnum: EES er ígildi falsaðrar Gucci tösku
„Að skipta um skoðun er ekki auðvelt, hvað þá skoðun sem ég hef haft jafn lengi og afstöðu mína gagnvart ESB. Það krefst þess að viðurkenna fyrir sjálfum sér að maður hafði rangt fyrir sér og í þessu tilfelli í mörg ár.“ Þetta skrifar Arnaldur Sigurðarson pírati í grein í Herðubreið þar sem hann „kemur út […]
Fréttaskýring: Jörðin gliðnar í kringum Bjarna. Hið nýja atvinnulíf leitar annarra kosta
Innan Sjálfstæðisflokksins hafa nú myndazt slíkar sprungur að vafasamt er að forystu flokksins takist að kítta upp í þær og halda flokknum saman. Í sumum tilvikum er raunar réttara að tala um gjá en sprungur. Út á við birtast þessar jarðskorpuhreyfingar núna einkum í afstöðu til aðildarviðræðna við ESB. Svo að segja gervallt atvinnu- og viðskiptalífið […]
Til Barcelona í einkaþotunni hans Magga frænda til að hitta Eið Smára. Játningar blaðamanns
„Enginn spurði gagnrýninna spurninga og allir fjölmiðlamennirnir, þar á meðal ég, birtu jákvæðar og gagnrýnislausar fréttir um samninginn þar sem „óskabörnin“ tvö voru í fyrirrúmi. Sú grundvallarspurning hve mikið Eiður Smári fengi greitt frá Eimskipum fyrir samninginn heyrðist ekki og enn þann dag í dag hefur henni ekki verið svarað.“ Þannig segist Inga Frey Vilhjálmssyni […]
David Moyes er miðlungs heildsali. Vélarvana skip rekur til hafs
Stórlið Manchester United féll í kvöld úr keppni í Meistaradeild Evrópu eftir tap gegn Bayern Munchen. Þar með eru úr sögunni allir möguleikar liðsins á einhvers konar titli á leiktíðinni, hinni fyrstu undir stjórn hins umdeilda Davids Moyes. Sérlegur fótboltafræðingur Herðubreiðar, Sparkhéðinn, hefur þegar dæmt Moyes til vistar á þar til gerðri stofnun, og við […]
Skattgreiðendur bera og hafa borið kostnað vegna fjölmiðla 365. Fullyrðingar um annað eru rangar
Fréttastofa Stövar 2 keyrir nú auglýsingastiklu þar sem hún segist „vinna sína vinnu án þess að kosta ykkur skattfé.“ Þetta er ekki rétt, eins og Þórður Snær Júlíusson rekur í grein í Kjarnanum. Þar er rifjað upp gjaldþrot hins gamla rekstrarfélags 365, þar sem 3.700 milljónir króna töpuðust. Meðal þeirra sem höfðu lánað félaginu fé […]
Utanríkisráðherra: Engin áhrif umsóknar og viðræðna. Engin „aðlögun“ að Evrópusambandinu
Engar breytingar hafa orðið á lögum á málefnasviði utanríkisráðuneytisins vegna aðildarumsóknar og viðræðna við Evrópusambandið. Þetta kemur fram í svari Gunnars Braga Sveinssonar utanríkisráðherra við fyrirspurn Guðbjarts Hannessonar alþingismanns. Guðbjartur spurði ráðherrann þriggja spurninga um „aðlögun að Evrópusambandinu“: 1. Hvaða breytingar sem orðið hafa á lögum á málefnasviði ráðuneytisins eða á stofnunum þess frá 2009 […]
Leyndarráðgjafar með 17 þúsund á tímann. Ganga sjálfala og halda engar fundargerðir. „Er öllum virkilega andskotans sama?“
Forsætisráðherra skipaði í nóvember sex menn til að vera ríkisstjórninni til ráðgjafar um afnám gjaldeyrishafta. Um þetta var hvergi tilkynnt, hvorki alþingi né fjölmiðlum, og skipunarbréf þeirra birtist fyrst í svari forsætisráðherra við fyrirspurn Össurar Skarphéðinssonar á alþingi í dag. Í svarinu kemur einnig fram að ráðgjafarnir fá greiddar 17 þúsund krónur á tímann, en […]
Grænar og bláar krumlur: Allt rangt við að maður í þessari stöðu verði fréttastjóri Ríkisútvarpsins
Það gefur augaleið að aðstoðarmaður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra kemur síðastur umsækjenda til greina í starf fréttastjóra Ríkisútvarpsins. Þetta er niðurstaða Friðriks Þórs Guðmundssonar, blaðamanns og kennara í fjölmiðlafræði við Háskóla Íslands í grein í Herðubreið. Friðrík Þór á þarna við Benedikt Sigurðsson, einn umsækjenda um starfið. Hann var áður aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formanns Framsóknarflokksins. […]
Stofuskápurinn hennar ömmu: Lukkulegir gröfustjórar og óhamingjusamir málfræðingar. Margrét Pála segir dæmisögu
„Allur framhaldsskólinn, allar væntingar samfélagsins, þær byggjast enn á stofuskenknum hennar ömmu – á því að öll börn eiga að enda með mynd með stúdentshúfuna á stofuskápnum hjá ömmu,“ sagði Margrét Pála Ólafsdóttir í erindi á ársfundi Samtaka atvinnulífsins. Þar fjallaði hún um einsleitni í skólastarfi þar sem samræmdar kröfur eru gerðar til allra, óháð getu […]