Leikhús fáránleikans
Fátt þrái ég meira en að við getum öll haldið áfram með lífið eins og við byggjum í eðlilegu þjóðfélagi. Jafnvel grætt svolítið á daginn og grillað á kvöldin. Nú eru að verða sex ár frá hruni og daglega eru fjölmiðlar troðfullir af fréttum um það. Úrvinnslan er enn í fullum gangi. Dómstólar troðfullir af hrunmálum. Lánamál almennings enn í rugli. Það er orðin sérstök atvinnugrein að hjálpa fólki að fá botn í gengislánin.
Svo koma fréttir af ákvörðunum stjórnvalda sem ganga algjörlega fram af manni. Nú eiga Hannes Hólmsteinn, Ásgeir Jónsson og Birgir Þór Runólfsson að fara að rannsaka hrunið á kostnað skattgreiðenda. Hvar endar þetta?
- Baráttan um Ísland - 27/10/2017
- Hvaða máli skiptir ný stjórnarskrá? - 23/10/2017
- Forsetinn veitir undanþágur frá lögum … - 20/10/2017