Hvaða máli skiptir ný stjórnarskrá?
Ég á mér draum. Ég vil meira lýðræði, manneskjulegra samfélag, réttlæti, heiðarleika, virðingu og ábyrgð. Ég vil að þjóðin fái arðinn af auðlindunum sínum. Eftir hrun var farið var í margvísleg verkefni sem áttu að skapa betra samfélag. Skýrasta dæmið var ný stjórnarskrá, samin af þjóðinni í einstöku ferli sem vakið hefur verðskuldaða athygli víða um heim.
Ýmislegt varð til þess að nýja stjórnarskráin okkar tók ekki gildi. Það var ekki vegna þess að fólki fyndist hún ekki skipta máli. Aðspurðir svöruðu kjósendur því til í könnunum að hún skipti máli. Hún skipti hins vegar ekki mestu máli heldur var svona í þriðja eða fjórða sæti. Okkur, sem vildum breyta kerfinu, mistókst nefnilega að tengja nýju stjórnarskrána við daglegt líf fólks, aðstæður þess og budduna.
Samt er ekkert eitt sem við gætum breytt sem hefði meiri áhrif á líf okkar og aðbúnað en eitt lítið – en þó svo stórt – ákvæði í nýju stjórnarskránni. Auðlindaákvæðið sem kveður á um að auðlindir sem ekki eru í einkaeigu séu sameiginlega og ævarandi eign íslensku þjóðarinnar og að þær megi aðrir ekki nýta nema gegn fullu gjaldi og í takmarkaðan tíma í senn. Þetta þýðir að fiskveiðikvótinn yrði að fara á markað og útgerðin fengi sjálf að ráða hvað hún vildi borga fyrir veiðiheimildirnar. Og stjórnmálamenn þyrftu að hætta að gefa orkuna. Við getum líka velt fyrir okkur hvort ferðaþjónustufyrirtækjunum væri heimilt að selja ferðir til okkar helstu náttúruperla án þess að greiða okkur eðlilegt gjald fyrir það.
Stjórnmálamenn allra flokka tala eins og brýnt sé að setja auðlindaákvæði í stjórnarskrána og allir hafa haft það á stefnuskránni. En það er ekki sama hvernig slíkt ákvæði er orðað. Við skulum ekki treysta þeim sem hingað til hafa staðið fyrir pilsfaldakapítalisma og einkavinavæðingu til að orða það því þá breytist ekki neitt.
Greinin birtist fyrst í Jöfn og frjáls, málgagni Ungra jafnaðarmanna, október 2017.
- Baráttan um Ísland - 27/10/2017
- Hvaða máli skiptir ný stjórnarskrá? - 23/10/2017
- Forsetinn veitir undanþágur frá lögum … - 20/10/2017