Hinir ósnertanlegu
- 130 milljarðar voru afskrifaðir hjá fjölskyldufyrirtækjum Bjarna Benediktssonar.
- Benedikt Sveinsson tók yfir á annað hundrað milljónir af einkaskuldum sonar síns, meðal annars vegna veðmála.
- Í miðju Hruni var Bjarni ennþá að færa stórfé úr landi til að borga fyrir fasteignabrask á Flórida.
- Hvernig varð mál barnaníðings til þess að fella ríkisstjórn Íslands?
- Hvers vegna skrökvar Bjarni Benediktsson sífellt að okkur?
Hinir ósnertanlegu er leiftrandi smámynd af raunverulegum atburðum sem eru enn að gerast á meðal okkar.
„Algjör skyldulesning. Ömurleg saga sem við verðum samt að þekkja.“ – Illugi Jökulsson
„Það er þarft og rétt að benda á helvítið á honum, sannleikann. Hér er sögð nauðsynleg saga.“ – Úlfar Þormóðsson
„Þetta er ógeðslegt samfélag.“ Styrmir Gunnarsson – af allt öðru og óskyldu tilefni.
Forlagsverð 2.400. Pantanir í netfangið herdubreid@herdubreid.is