trusted online casino malaysia

Pistlar

En hvar eru 300/800 milljarðarnir þá?

Ég sé að aðstoðarmaður forsætisráðherra, hinn geðþekki Jóhannes Þór Skúlason, fer ófögrum orðum um tal þeirra sem eru að rukka forsætisráðherra um 300 milljarða fullyrðingarnar fyrir kosningar. Sigmundur Davíð talaði reyndar um 800 milljarða sigmundurdavid.is sem væri meira en nóg til að leiðrétta stöðu heimilanna. Fyrir mér er þetta nú hálfgerður orðhengilsháttur. Mér finnst óneitanlega […]

Valgarður Guðjónsson 28/03/2014 Meira →

Nýtt heimsmet!

Til að fá skattaafslát þarf maður greiða skatt. Þeir sem eru með lág laun greiða lítinn eða jafnvel engan tekjuskatt. Þeir geta því ekki fengið skattaafslátt. Skiljanlega. Skattabreytingar á síðasta kjörtímabili juku skattbyrði á tekjuháa og eignafólk. Það er þess vegna sá hópur fólks sem mun geta nýtt sér boðaðan skattaafslátt hægristjórnarinnar en hinir ekki. Reiknimeistari […]

Björn Valur Gíslason 27/03/2014 Meira →

Pítsulýðræðið og stóru málin

Félagi á fésbókinni, Úlfur Eldjárn, skrifaði eftirfarandi: Er mjög hugsi yfir íbúakosningunum Betri Reykjavík. Er það í alvörunni ásættanlegt að umferðaröryggi sé látið keppa um fyrirfram takmarkað fjármagn, á móti allskonar „skemmtilegum“ tillögum einsog umbótum á róló, hundagerði og bættri aðstöðu við sundlaugina? Við fengum ekki hraðahindrun á Ægisgötuna, götu sem kaótískt og illa hugsað […]

Margrét Tryggvadóttir 27/03/2014 Meira →

Strákar eru töff

Sjálfur fluttist ég að heiman 16 ára gamall og hef séð um mig sjálfur að mestu síðan þá. Bjó svo sem ekki alltaf við besta mögulegan kost fyrir tvítugt en maður bjargaði sér og lifði á sumarhýrunni sem þá var alveg hægt. Með reyndar mikilli sparsemi og dreifbýlisstyrknum sem við menntskælingar utan af landi fengum. […]

G. Pétur Matthíasson 26/03/2014 Meira →

Blár blettur á rauðu korti

Kæra Ísland, Nú höfum við Sveinn Máni búið hér í Nashville, Tennessee, USA, í góða sjö mánuði. Það er ágætis tilefni til að rita heim og deila með þeim sem lesa vilja því sem á daga okkar hefur drifið. Sveinn er í doktorsnámi við sagnfræði við Vanderbilt háskóla. Ég hefði seint talist mikill Ameríku-unnandi og […]

Halla Gunnarsdóttir 26/03/2014 Meira →
Aftur á hælið með hann

Aftur á hælið með hann

Þessi eini sem heldur því fram að David Moyes hafi flóavit á fótbolta ætti að tékka sig aftur inn á hælið þaðan sem hann er nýsloppinn. Nema sá hinn sami eigi við þessi víðkunnu sannindi: „Moyes reyndi árum saman að koma Everton upp fyrir Manchester United á stigatöflunni. Nú hefur honum loksins tekist það.“ Sá […]

Sparkhéðinn 26/03/2014 Meira →
Hroki fer stjórnmálamönnum ekki vel

Hroki fer stjórnmálamönnum ekki vel

Það er frekar leiðinlegt að sjá hve núverandi stjórnvöld eru hrokafull og þá sérstaklega þegar kemur að aðildaumsókninni að Evrópusambandinu. Það var mjög hrokafullt þegar utanríkisráðherra lagði fram tillögu á Alþingi um að slíta aðildarviðræðum áður en heldur lokið var umræðu um skýslu Hagfræðistofnunar sem stjórnvöld höfðu þó lýst yfir að ætti að vera grunnur […]

G. Pétur Matthíasson 25/03/2014 Meira →

Umsögn um þingsályktunartillög utanríkisráðherra

Nefndarsvið Alþingis b.t. utanríkismálanefndar Austurstræti 8-10 150 Reykjavík   V. : 340. Mál þingsályktunartillaga 143. Umsókn Íslands að Evrópusambandinu dregin tilbaka. Í síðustu alþingiskosningum kom það glögglega fram í málflutningi þeirra stjórnmálaflokka sem mynda ríkisstjórn í dag að það myndi verða borið undir landsmenn hvort ljúka ætti samningum við ESB. Undir þetta hafa samtök launamanna […]

Guðmundur Gunnarsson 25/03/2014 Meira →

Jú, sjáðu til Björn…

Björn Bjarnason segir í pistli á bjorn.is að það sé rannsóknarverkefni hvers vegna fólk mæti á samstöðufundina á Austurvelli. Þetta er nú hvorki flókin né erfið rannsókn. Ein hugmynd er að hlusta á það sem ræðumenn segja. Önnur góð hugmynd er lesa fundarboðið. Smá vísbending. Fólk vill að flokkarnir sem komust í stjórn að gefnum […]

Valgarður Guðjónsson 25/03/2014 Meira →

Vanhæf ríkisstjórn?

Að kalla ríkisstjórn vanhæfa er ekki eitthvað sem ætti að gera nema af fullri alvöru og af brýnni nauðsyn. Nú verður að segjast eins og er að ég studdi vantraust gagnvart síðustu ríkisstjórn enda voru margir hlutir sem betur hefðu mátt fara þá, eins og til dæmis að vísa Icesave málinu í þjóðaratkvæðagreiðslu. Sem betur […]

Arnaldur Sigurðarson 25/03/2014 Meira →

Jafnaðarmenn og ójafnaðarmenn

Því heyrist stundum slegið fram að hugtökin vinstri og hægri séu hálfpartinn úrelt í stjórnmálum. Sumir vilja fremur draga línu í sandinn milli forsjárhyggju og frjálslyndis. Aðrir nefna einhvers konar náttúruverndarás. Það má vera nokkuð til í þessu, en grundvallaratriðin breytast ekki. Stærsta og mikilvægasta viðfangsefni stjórnmálanna er tekjuskiptingin í samfélaginu, spurningin um það hvernig […]

Jón Daníelsson 24/03/2014 Meira →

Rökleysan um fullveldisafsal

Eitt af því sem truflar mig hvað mest við umræður um stjórnmál og önnur þjóðfélagsmál eru rökleysur. Þetta getur verið margs konar, beinlínis rangar fullyrðingar, rökvillur og spil á tilfinningasemi. Ein algengasta bábiljan í umræðunni um aðild Íslands að ESB er að í aðild felist fullveldisafsal. Þessu er (einmitt) gjarnan haldið fram af andstæðingur aðildar. […]

Valgarður Guðjónsson 24/03/2014 Meira →
0,944