trusted online casino malaysia

Pistlar

Um staðsetningu ríkisstofnana

Um staðsetningu ríkisstofnana

Út um land allt er mikið af ríkisstofnunum – framhaldsskólar, háskólar, heilsugæslustöðvar, sjúkrahús, sýslumannsembætti, lögregluumdæmi og eftirlitsstofnanir. Þar hefur verið skorið mikið niður á liðnum árum eftir efnahagshrunið. Fæðingardeildum og skurðstofum hefur verið lokað, embætti sameinuð og samdráttur í mennta- og heilbrigðismálum. Nú virðast stjórnvöld ætla að snúa þessari þróun við með því að flytja Fiskistofu […]

Ingi Rúnar Eðvarðsson 02/10/2014 Meira →
Lifi einkaframtakið!

Lifi einkaframtakið!

Ég hef stöku sinnum nefnt það í bloggpistlum mínum, að sennilega þurfi lögreglan sáralitlar eða kannski engar fjárveitingar úr ríkissjóði. Ekki þarf annað, en að gera út hluta starfsliðsins til að sekta ökumenn fyrir of hraðan akstur, ranga (eða oftast enga) notkun stefnuljósa, akstur gegn rauðu ljósi o.s.frv. o.s.frv. Ég þarf ekki annað en að […]

Jón Daníelsson 01/10/2014 Meira →
Einokun, fyrr og nú

Einokun, fyrr og nú

Það er ótrúlega stutt síðan útflutningur á fiskafurðum var einokaður af fáum fyrirtækjum, eða sölusamtökum, eiginlega bara þremur. Það fyrirkomulag var að brotna upp í kringum 1990 og var hluti hinna gömlu helmingaskipta. Eignarhald og stjórn sölusamtakanna, sem höfðu ein leyfi til útflutnings, var nátengt Framsóknar- og Sjálfstæðisflokki. Þessir flokkar stóðu enda dyggan vörð um […]

Svanfríður Jónasdóttir 01/10/2014 Meira →
Ásta Sigurðardóttir og Kamp Knox

Ásta Sigurðardóttir og Kamp Knox

Kamp Knox ku hún heita nýja bókin, sem Jói Páll ætlar að gefa út undir bókaútgáfunafni Ólafs heitins sómamannsins Ragnarssonar, sem yfirgaf okkur alltof snemma. Þetta fágæta smekk-, prúð- og heiðursmenni. Ungur bar eg út dagbl. Vísi á Melana og í Kamp Knox. Þetta var heilmikið braggahverfi, líklega það stærsta í stríðinu, sem reis millum […]

Bragi Kristjónsson 01/10/2014 Meira →
Sjálfsskaparvíti

Sjálfsskaparvíti

  Heilbrigðisráðherra skilur þörf lækna fyrir launahækkun, nýjan Landsspítala og lækningatæki sem virka þegar gripið er til þeirra. En hann kveðst ekkert geta gert í málinu annað en að tala við fjármálaráðherra sem skilur hann en kveðst ekkert geta gert í málinu því að það eru engir peningar í ríkissjóði vegna þess að hann hefur […]

Úlfar Þormóðsson 30/09/2014 Meira →
Er mögulegt að stofna nýjan fjölmiðil fyrir 100 millur?

Er mögulegt að stofna nýjan fjölmiðil fyrir 100 millur?

Barack Obama ku hafa safnað saman mestu fé í kosningasjóð sinn sem sögur fara af í bandarísku forsetakosningunum þegar hann bauð sig fram í fyrsta sinn. Það tókst með því að virkja almenning í stað þess að reiða sig eingöngu á auðjöfra, stórfyrirtæki og aðra fjáröflun líkt og tíðkaðist. Fjölmargir einstaklingar þar vestra gáfu litla […]

Ingi Rúnar Eðvarðsson 30/09/2014 Meira →
Myrkrakompurnar í Valhöll

Myrkrakompurnar í Valhöll

Vorið 2009 komst upp um stórfelld styrkjamál stórfyrirtækja til sjálfstæðisflokksins og þingmanna hans. Í stórum dráttum þá snérist málið um tvo stóra styrki til flokksins árið 2006 upp á kr. 55 milljónir á þávirði. Annarsvegar var um að ræða styrk frá Landsbankanum gamla upp á 25 milljónir og hins vegar frá FL Group upp á 30 milljónir. […]

Björn Valur Gíslason 29/09/2014 Meira →
Ein aðferð

Ein aðferð

  Heilbrigðisráðherra hefur látið í sér heyra. Hann vill ekki taka lán til að byggja nýjan Landsspítala. Honum dettur ekkert ráð í hug til þess að koma húsinu upp annað en að selja Landsvirkjun, RARIK, Landsbankann, ÁTVR og aðrar ríkisstofnanir. Vinstri grænir hafa lagt fram ályktun á alþingi um að leggja sérstakan skatt á hátekjur […]

Úlfar Þormóðsson 29/09/2014 Meira →
Erindi til stjórnarskrárnefndar

Erindi til stjórnarskrárnefndar

Í júní s.l. sendi stjórnarskrárnefnd, undir forystu Sigurðar Líndal frá sér áfangaskýrslu. Hún hefur kallað eftir viðbrögðum við því plaggi, sjá nánar hér. Mér finnst sjálfsagt að verða við því og vil hvetja sem flesta til að gera slíkt hið sama. Svona er mitt bréf: Ágæta stjórnarskrárnefnd, ég vil nota tækifærið og þakka fyrir áfangaskýrslu […]

Margrét Tryggvadóttir 29/09/2014 Meira →

Hver stjórnar skattrannsóknum?

Íslenskum skattyfirvöldum býðst að kaupa upplýsingar sem snerta hugsanleg lagabrot íslenskra skattborgara. Í fréttum hefur komið fram að það sé í höndum fjármálaráðherra að ákveða hvort af kaupunum verður. Eitt mikilvægasta efnisatriði íslenskra skattalaga og reyndar skattalaga flestra réttarríkja er að framkvæmd skattalaga á að vera óháð pólitísku valdi. Ráðherra má ekki skipta sér af […]

Indriði Þorláksson 27/09/2014 Meira →
Paradísarmissir

Paradísarmissir

  Fyrir nokkrum vikum var skýrt frá því að skattrannsóknarstjóra hafi verið boðið að kaupa lista með nöfnum mörg hundruð íslenskra félaga, einstaklinga og fyrirtækja sem stálu fé undan skatti og földu það í skattaskjólum úti í heimi. Skattrannsóknarstjóri leit svo á – með réttu eða röngu – að hann gæti ekki einn og sjálfur […]

Úlfar Þormóðsson 26/09/2014 Meira →
Raddir úr Kleppsholtinu

Raddir úr Kleppsholtinu

Nú frétti ég af einhverju fólki sem vill ekki skrýtið fólk í sitt hverfi… mitt hverfi. Eitthvað fólk í snobbhill vill ekki sjá fatlaða á almannafæri nálægt sér. Ég las þetta í Vísi. Nú ætlaði ég mér að þegja í tvö ár og mánuðirnir 24 eru ekki liðnir fyrren núna þann fyrsta… En því miður […]

Pétur Tyrfingsson 25/09/2014 Meira →
0,822