Pistlar

Framsókn og Facebook
Ég á 580 vini á Facebook. Eins og gengur eru þetta fjölskylda og vinir, gamlir kunningjar en stærsti hópurinn eru þeir sem tjá sig um menn og málefni og eru áhugasamir um stjórnmál eins og ég. Mjög margir þeirra eru vistra megin við miðju. Ég get frætt ykkur á því að þessa dagana er Framsókn […]

Þeim var ég verst, er ég unni mest – eða þannig
Eftir Jón Baldvin Hannibalsson Aldrei varð hún sósíalisti, hún Svandís Nína, ekki einu sinni menntaskólaróttæklingur. Hugvekja hennar í Herðubreið nú um helgina snart satt að segja streng í mínu gamla, sósíaldemókratíska hjarta. Hvers vegna? Svandís Nína segist vera efasemdarmanneskja. Ég líka. Hún er orðin nógu lífsreynd til að vísa á bug Stóra sannleik. Hún segir, […]

Hin tæra snilld
Snilld er ekki öllum gefin. Hún er fágæt. Af og til brýst hún þó fram. Og við eigum snillinga, Íslendingar. Einn þeirra er fjármálaráðherra. Hann var að ræða stöðu Ríkisútvarpsins sem skuldar 5,5 miljarða og gat ekki greitt 190 miljónir á gjalddaga. Útvarpið er að hluta til rekið fyrir skattfé, nefskattinn útvarpsgjald, 19.400 krónur […]

Hraðlest til lægstu kjara
Markaðshyggjan hóf sig til flugs undir stjórn Margaretar Thacher forsætisráðherra Englands (1979 – 1990) og Ronald Reagans forseta Bandaríkjanna (1981 – 1989) þegar leið á síðustu öld og fylgismenn þeirra bentu m.a. á að nú væri tími stéttarfélaga liðinn. Eftir sigur Íhaldsflokksins í þingkosningunum í Englandi vorið 1979 myndaði Thatcher ríkisstjórn eitt af fyrstu verkum […]

Samkeppni eða einokun?
Getur einokun í einhverjum tilvikum verið betri en samkeppni? Ég er vafalaust einn af örfáum sérvitringum, sem er tilbúinn að svara þessari spurningu játandi, en þó að vísu að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Í samfélagsumræðunni er hugtakið „samkeppni“ orðið einshvers konar helgitákn. Það er orðin pólitísk rétthugsun, að samkeppni sé bæði góð og nauðsynleg á öllum […]

Guðlast
Fyrir nokkrum árum eyddi ég mörgum mánuðum í að lesa Biblíuna. Þar er margt skrýtið og skondið, ljótt og leiðinlegt, fallegt og fyndið. Þegar ég var komin nokkuð áleiðis ákvað ég að gera óformlega könnum á því hversu margir þeirra sem ég hitti á götum úti hefðu lesið hana. Þegar upp var staðið hafði ég […]

Ekkifréttir dagsins – og svo bein lygi
Það líður sosum varla sá dagur að maður sjá ekki a.m.k. eina ekki-frétt. Sem sagt frétt um eitthvað sem í rauninni er alls ekki fréttnæmt. Einfaldlega ekki í frásögur færandi. Ég leiði þetta yfirleitt hjá mér, en stöku sinnum ofbýður manni. Stóra ekki-frétt dagsins var sú að Sjálfstæðisflokkurinn hefði tapað 126 milljónum á síðasta ári. […]

Verjast þarf flótta með bættum kjörum
Baráttan um Ísland snýst ekki um landsbyggðina vs. höfuðborgarsvæðið. Það sést svo greinilega þessa dagana. Þeir sem hafa menntun sem auðveldlega nýtist erlendis eru í allt annari stöðu en við hin. Þau geta bara farið þegar þeim lystir eða þegar þannig árar. Og þótt marga lysti að vera hér, eða koma heim að námi loknu, […]

Af hverju ég varð aldrei sósíalisti
Ég hef aldrei nokkurn tímann verið sósíalisti. Ekki einu sinni þegar ég var í menntaskóla. Ég skildi aldrei hvernig mannlegt samfélag átti að geta rúmast í einni kenningu.

Stóra vambamálið
Ég elska slátur. Mér finnst búðaslátur alveg ætt (og hundinum mínum líka) en heimatilbúið slátur er best. Við Loki erum alveg sammála um það og hann fær að éta vambirnar og drekka soðið líka. Heimurinn er alltaf að breytast og matarsmekkur okkar með. Nú getum við keypt eða eldað indverskan, tælenskan, kínverskan og amerískan mat […]

Mannlegir eiginleikar?
Maður kemst reglulega í þá stöðu að vera gert að velta því fyrir sér hvort grimmd mannsins eigi sér einhver takmörk. Þetta er allavega ofarlega í huga þegar gengið er um hverfi gyðinga í Berlín. Sögurnar frá árunum þegar nasistar eru að ná völdunum í Þýskalandi eru svo yfirgengilega skelfilegar. Ekki einungis gagnvart gyðingum, heldur […]

Glópar
Fjórtán mál bíða nú rannsóknar hjá Sérstökum saksóknara, þar af fjögur umfangsmikil. Í dag eru þar 96 mál til rannsóknar, þar af 39 svokölluð hrunmál sem eru langt komin í vinnslu. Alls hafa 637 mál komið til kasta embættisins frá stofnun þess. Ólafur Þór Hauksson stýrir embættinu. Þetta er haft eftir konum á […]