Pistlar

Ráðningarkjör opinberra starfsmanna
Guðlaugur Þór Þórðarson og Vigdís Hauksdóttir telja að þörf sé á að breyta ráðningakjörum opinberra starfsmanna hér á landi. Rökin eru ekki alveg skýr, en líklega til auðvelda niðurskurð í opinberum rekstri og auka skilvirkni. En hver eru ráðningakjörin í dag? Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar (sem skipuð var Sjálfstæðiflokki og Framsóknarflokki) gerði margar veigmiklar breytingar á […]
Smásögur Þorsteins Joð.
Það er auðvelt að láta Þorstein Joð fara í taugarnar á sér. Ef maður er þannig innréttaður gæti manni fundist hann ofboðslega tilgerðarlegur og uppskrúfaður vegna þess að hann leyfir sér að skrifa stíl sem fellur ekki undir reglur Jónasar Kristjánssonar um „alþýðlegan og einfaldan“ texta sem allir fjölmiðlamenn eiga að tileinka sér (einkum fréttamenn). […]

Litlu börnin leika sér
Forsætisráðherrann var í „góðlátlegu viðtali“ við Loga Bergmann á Stöð 2 í opinni dagskrá á föstudagskvöldið. Logi sagðist ekki ætla að ræða við hann um pólitík og spurði hann þess vegna hverslags flokkur Framsókn væri. Ráðherrann var kímileitur og sagði:„Við erum kosningaflokkur … ekki ímyndarflokkur!“ Þetta er merkilegt svar og af þeirri gerð sem illmögulegt […]

Guðfaðirinn Guðni
Eitt sinni héldum við að Guðni Ágústsson væri seinheppinn sveitamaður sem vildi Ísland fyrir Íslendinga og konuna á bakvið eldavélina. En þar höfðum við rangt fyrir okkur. Því Guðni reyndist miklu klárari en við héldum og varð á endanum “darling of the nation”, ástkær skemmtikraftur og sjarmatröll, konungur eigin kjördæmis á Kanarí. Og lengi vel […]
Friðarverðlaun Nóbels skortir kjark
Í dag var tilkynnt hverjir fá friðarverðlaun Nóbels í ár. Það eru þau Malala Yousafzai og Kailash Satyarti. Vissulega er það sem þau hafa gert aðdáunarvert og eiga þau sannarlega stórt hrós skilið fyrir baráttu sína fyrir friði. Saga Malala Yousafzai er sérstaklega aðdáunarverð í ljósi þess að hún berst fyrir menntun kvenna í Pakistan […]

Ómótstæðilegt tilboð
Í morgun heyrði ég í útvarpinu, einhvern frá Mjólkursamsölunni, kveinka sér undan árásum á bændur. Svo bætti hann við að MS hefði bara verið að vinna innan þeirra laga sem sett voru 2004 um undanþágu frá samkeppnislögum. Hann virtist ekki skilja hvað fólk gæti haft út á það að setja. Í fyrsta lagi, þá er […]

Ævintýri
Einu sinni voru karl og kerling í koti sínu. Þau áttu son. Hann óx upp, varð limafagur og hvers manns hugljúfi. Þegar hann hafði aldur til bauð hann sig fram til setu á þjóðþinginu til þess að vinna að bættum hag þeirra sem minna máttu sín. Hann fékk góða kosningu og sæti á þinginu. […]

Einkennileg tík þessi pólitík
Hún er skrítin tík þessi pólitík. Nú tala menn mikið um hagræðingu hjá hinu opinbera og að það þurfi að tálga innan úr hinni og þessari stofnuninni. Einsog það sé ekki nóg að opinberum starfsmönnum hafi fækkað um tæp 11 prósent á sex árum á sama tíma og verkefnunum hefur fjölgað. Þá upplýsist það að […]

Heiftarheimska
Ríkisútvarpið er sívirk menningarstofnun. Ekkertfyrirbæri í landinu hefur upp á aðra eins fjölbreytni að bjóða. Það heldur líka úti trúverðugustu fréttastofu landsins. Eigi að síður er sífellt sótt að því. Þessa dagana skammast fjárlaganefnd yfir eyðslusemi þess, ráðherrar byrsta sig yfir ofsóknum rannsóknarblaðamanna sem skýra frá vanhæfni þeirra við stjórn þjóðarbúsins og kirkjumenni skæla […]

Elliði syngur falskt
Elliði Vignisson sendir þingmönnum sjálfstæðisflokksins neyðarkall í dag. Ekki vegna fjárlagafrumvarpsins, niðurskurðarins í heilbrigðis- og menntakerfinu og ekki vegna þess að hætt hefur verið við byggingu á nýjum Herjólfi. Neyðarkallið er send út fyrir hönd útgerðamanna í Vestmannaeyjum og þeim til bjargar. Ástæðan er frétt í dagblaði útgerðarmanna um að afkoma sjávarútvegsins hafi orðið lítið eitt verri á árinu […]
Ég lýsi hér með yfir stríði gegn jólunum
Því hefur lengi verið haldið fram, þá sérstaklega í fjölmiðlum vestanhafs, að veraldlega sinnað fólk hái stríð gegn jólunum sem verði verra og verra með hverju ári. En hver gæti verið skýringin á því að við sem erum í veraldlegri kantinum séum orðin meira en svolítið þreytt á „kristnu” jólahátíðinni? Ég hef oft verið kallaður […]

Lán
Ég vildi gjarnan að ég væri að misskilja umræðuna þegar ég heyri talað um að fólk eigi ekki að halda áfram að greiða af námslánum sem það hefur ekki greitt upp þegar það er orðið 67 ára gamalt. En ég held því miður að ég sé ekki að misskilja neitt. Ég er ekki að […]