Pistlar

Að efla lögregluna
Í morgun las ég í DV að lögreglan eða yfirmenn hennar hafi verið að pukrast við að koma sér upp vopnasafni, hálfsjálfvirkum skammbyssum og hríðskotabyssum, sem ég verð að viðurkenna að ég átta mig illa á til hvers eru nytsamlegar ætli maður ekki beinlínis að drepa einhvern. Meðal þess rökstuðnings sem settur er fram í […]

Tvö púst og þroskaraskari
Það þarf hvorki mikinn lestur í mannkynssögu né yfirburðaskilning á efninu til þess að átta sig á því að ofbeldi sem mætt er með valdníðslu hefur jafnan leitt af sér enn meira gerræði. Og gerir enn. Þetta blasir við augum. Hvert sem litið er á byggðu bóli. Nú hefur það gerst hérlendis að búið […]

Skattaafsláttur fyrir skerta þjónustu?
Eftir að ríkið seldi áburðar- og sementsverksmiðjuna flokkast nær öll opinber starfsemi undir þjónustu. Það sem einkennir þjónustustarfsemi er að hún er oftar en ekki óáþreifanleg, mannaflafrek og viðskiptavinur er iðulega þátttakandi í ferlinu (maður þarf að vera viðstaddur hjá tannlækni og hárskera). Af þeim sökum leitast þjónustufyrirtæki að vera sem næst viðskiptavinum sínum. Það […]

Lekabyttur
Það eru engar líkur til þess að Hanna Birna segi af sér. Nema lekamálinu lykti með því að hinn ákærði upplýsi hver lak og að sá hinn sami hafi gert það að ósk ráðherra. Sem verður að teljast vafasamt. Hitt fer um götur í lágu hvísli, sem slúður, og komið frá lekabyttum stjórnarflokkanna, þeim […]

Stytting vinnuvikunnar
Því er gjarna haldið fram að háir skattar verði til þess að letja fólk til vinnu og hafa helstu hugmyndasmiðir frjálshyggjumanna hér á landi jafnvel haldið því fram að Íslendingar skili ekki nægilega löngum vinnudegi!!?? Prófessorar við Harvard og MIT hafa rannsakað mismunandi vinnutíma í vestrænum þjóðfélögum og kannað skýringargildi annarra þátta á […]

Árni Páll: Farðu í réttan gír
Samtöl stjórnmálamanna geta oft verið furðuleg. Við urðum vitni að einu slíku í Kastljósi í gærkvöldi, þegar formenn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar „tókust á“ um matarskattinn. Undanfarna daga hafa menn verið að leika sér með meðaltalsútreikninga á verði máltíða og fengið út lágar tölur. Árni Páll nuddaði Bjarna upp úr þessu, en umfram það hafði hann […]

Ómeðvita
Forsætisráðherra fór á NATÓ-fund til Wales. Þórunn Egilsdóttir, alþingsmaður Framsóknarflokksins og formaður Íslandsdeildar NATÓ-þingsins hefur líklega farið með honum því að hún skrifar grein um fundinn í Fréttablaðið miðvikudaginn 15. október síðast liðinn. Hvorugt þeirra virðist hafa haft tíma til þess að lesa fjárlögin áður en þau fóru í ferðina því að þingkonan skrifar, […]

Uppteknir
(Upptaka hefst) – Sæll Geir, Davíð hérna. – Já, sæll Davíð. Geir hérna. – Ég veit það maður. Annars hefði ég ekki sagt sæll Geir. – Auðvitað, alveg rétt. Eitthvað að frétta? – Heyrðu. Það er allt að fara til andskotans. – Nú? Er það? Hvernig þá? – Hagkerfið maður. Glitnir, þú manst, og núna […]

Árás úr öllum áttum að þeim sem minnst mega sín.
Íslendingar eru aldir upp í samfélagi þar sem langur vinnudagur og vinnuharka hefur til skamms tíma verið talið manndómsmerki eða jafnvel dyggð og um leið forsenda efnalegrar velmegunar í landinu. Í alþjóðlegum skýrslum hefur komið fram að menntastig fólks á íslenskum vinnumarkaði sé mun lakara en í þeim löndum sem við viljum helst bera […]

Hvað breyttist eiginlega á 30 árum?
Fyrir nánast alveg sléttum 30 árum var ég blaðamaður á NT og ákvað einu sinni að forvitnast um það, hversu mikið maður fengi að borða fyrir þær krónur sem Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar áætlaði skjólstæðingum sínum í mat. Það var gaman að vinna á NT og við gerðum ýmislegt öðruvísi en hefðin bauð. Þess vegna stillti ég […]

Tvö símtöl – hljóðrituð með leynd
Símtal þáverandi bankastjóra Seðlabankans og þáverandi forsætisráðherra um 80 milljarða króna lán Seðlabankans til Kaupþings í október 2008 hefur verið talsvert til umræðu að undanförnu. En þetta er ekki eina símtalið sem fyrrverandi seðlabankastjóri hljóðritaði án vitundar hins aðilans. Í viðtali við Viðskiptablaðið segir bankastjórinn fyrrverandi frá því að hann hafi átt símtal við seðlabankastjóra Bretlands þetta […]

Fimmþúsundkallinn
Ég horfði á „góðlátlegt viðtal“ á stöð 2 á föstudaginn og sá matinn sem forsætisráðherrann boraði í hádeginu: Feitt két og baunir og uppstúf og súpu og tvær pulsur með öllu og ís í eftirrétt. Vegna þess að ríkisstjórnin hefur reiknað það út að hver máltíð kosti einstaklinginn 248 krónur fékk ég mér göngutúr um […]