Pistlar

Skapillir ráðherrar
Eftir áralanga dvöl í útlöndum vakti það eftirtekt mína hve íslenskir stjórnmálamenn voru margir hverjir viðskotaillir. Sérstaklega voru þau sem sátu í ríkisstjórn frekar pirruð. Þetta var fyrir 13 árum. Þau höfðu flest setið lengi á ráðherrastólum og kannski ekki skrýtið að þau væru orðin bæði þreytt og úfin. Ekkert þeirra sem nú gegnir ráðherraembætti […]

Icesave-guðir Illuga
Illugi Gunnarsson ráðherra segist þakka guði fyrir það á degi hverjum að við (Íslendingar) hefðum sloppið við að borga Icesave. Þetta kom fram í einkaviðtali við hann á Bylgjunni á sunnudaginn. Ekki veit ég hvaða guð það er sem Illugi beinir þakklæti sínu til enda skiptir það ekki neinu máli. Fyrsta greiðsla úr þrotabúi gamla Landsbankans til […]

Ójafnrétti er dauðans alvara
Sænski félagsfræðingurinn og fyrrum prófessor við Cambrigde-háskóla, Göran Therborn, gaf út mjög fróðlega bók í fyrra sem hann nefnir The killig fields of inequality. Þar rekur hann afleiðingar vaxandi misskiptingar og ójafnaðar innan landa og milli ríkja þjóða og fátækra. Einnig ræðir hann rót vandans og getur um mögulegar lausnir. Therborn styðst við rannsóknir fræðimanna […]

Birgðavörðurinn
Þegar ég var að velta því fyrir mér hvers vegna viðtal við Georg Lárusson, forstjóra Landhelgisgæslunnar vegna byssumálsins var klippt til 7 sinnum fyrir útsendingu í fréttatíma Sjónvarpsins í gærkveldi (26.10.) skaut upp í kollinum tæplega 50 ára gömlum vísuparti úr Sóleyjarkvæði Jóhannesar úr Kötlum: Mikið er hún voldug varnarbyssan þín Meðal […]

Ungverjaland / Ísland
Hef verið undanfarna daga í Ungverjalandi. Víða um landið voru nú um helgina töluverð mótmæli á götum úti. Lögreglan var allstaðar og fylgdist vel með. Efnahagsleg staða landsins er mjög slæm, heilbrigðiskerfið í miklum vanda, tryggingakerfið líka lífeyrir er liðlega 40 þús. kr. á mán. og algeng laun opinberra starfsmanna eru um 80 þús. kr. eftir skatta. […]

Traust samstaða
Þær voru saman á kirkjuþingi tvær konur, kirkjumálaráðherra og biskup. Þær töluðu um traust. Og nauðsyn á trausti. Innihaldið í viðtali biskups í kvöldfréttum Sjónvarpsins (25.10.) var að úr því að þjóðfélagið væri svona óskaplegt, og útlönd líka, þyrfti lögreglan að hafa byssur. Segði hún. Og við verðum að treysta henni, lögreglunni. Sagði biskupinn. […]

Ja, hver andinn í skotinu
Í hádegisútvarpinu fullyrti norskur herforingi að samningur hefði verið gerður við Landhelgisgæsluna um kaup á hríðskotabyssum. Vegna óvissu um að ráðherrar og embættismenn viti hvað orðið samningur ber í sér skal vitnað í tvær (net)-bækur: Orðabókin Snara segir ma.: „… samkomulag, sætt, sáttmáli … samþykkt tilboð, fyrirkomulag sem tveir (eða fleiri) aðilar hafa lýst […]

Hallgrímur Helgason og Eggert Stefánsson
Það er einsog venjulega þegar vinur minn Hallgrímur Helgason gefur út hugverk, eftir að blekið er þornað á blöðunum tekur hin ógurlega propagandamaskína við keflinu og hleypur með það útí móa – venjulega flestum til nokkurrar skemmtunar. Eins er það nú, þegar hann ofl. hafa unnið leikgerð útfrá verkinu hans, Konan við 1000 gráður, þá […]

Kvótinn I – líffræðin
Eftir Krumma í Rjóðri „[X] stjórninni til afsökunar er það að segja, að þessi nýbreytni (að sameina [X] í einn í Reykjavík) átti ekki upptök sín í duttlungum hennar, heldur í braski og tilhögun tiltekinna Íslendinga, er reyndu að láta líta svo út, sem breyting þessi mundi verða landinu hin hagkvæmasta.” Þessi klausa er ekki […]

Lögreglan að verða mesta ógnin
Við horfum of mikið á bandarískar bíómyndir. Sjónin er sú tegund skynjunar sem mannskepnunni er eðlilegt að treysta best og þess vegna þarf engan að undra þótt bíómyndir og sjónvarpsþættir hafi áhrif á okkur. Það verður ekki ósatt þótt við gerum okkur ekki meðvitað grein fyrir því. Almenn ímynd lögreglunnar skiptir máli. Það skiptir máli, […]

Vá
Fyrir síðustu þingkosningar tókst núverandi stjórnarflokkum með faguryrðum að telja bjartsýni í stóra hópa landsmanna. Þeir unnu glæstan kosningasigur. Fólk fékk von um betri tíma og stórlega dró úr landflótta sem brostið hafði á í kjölfar Hrunsins. Svo settust nýir herrar til valda umvafðir fögrum fyrirheitum. Og enn fækkaði landflóttamönnum. Svo tóku þeir til […]

Byssur og traust
Traust er vafið úr mörgum þráðum. Heiðarleiki, ráðvendni og hreinskilni eru mikilvægir þræðir. Einnig góðvild, hollusta og velvilji. Íslensk þjóðfélag hefur verið einsleitt hvað varðar trú, kyn og tungumál. Það eflir traust milli þegna. Ættartengslin næra traustið enn frekar. Fjármálakreppan haustið 2008 og síðar Búsáhaldabyltingin juku mjög á torgryggni, andúð og vantraust. Mér finnst að […]