Pistlar

Innanríkisráðuneytið og upplýsingarnar
Þegar maður trúir ekki að hægt sé að toppa vitleysuna berast af því fregnir að starfsfólki í innanríkisráðuneytinu sé óheimilt að tala við fjölmiðla, þeir megi bara tala við fjölmiðlafulltrúann og svo (ó)heppilega vill til að hann er í fríi. Þetta finnst mér ekki boðlegt – sérstaklega ekki þessa dagana þegar öll spjót standa á […]

Hinir eignalausu á húsnæðismarkaði
Ég hef lengi velt fyrir mér hvers vegna sú þörf að eignast eigið húsnæði sé svona sterk hér á landi. Líklega tengist það vistarbandinu. Allt fram undir lok 19. aldar þurfti vinnuhjú að ráða sig í vist og hreppurinn hlutaðist oft til um hvar leiguliðar bjuggu. Langafasystir mín, Helga Guðmundsdóttir, skrifaði t.d. þetta í endurminningum […]

Falsarinn gengur laus
„Jæja góði minn. Við fyrirgefum þér þá í þetta skipti. Mundu bara að gera þetta aldrei aftur, allavega ekki næstu tvö árin.“ Þetta er svona nokkurn veginn merking dómsins yfir Gísla Frey Valdórssyni. Dómur héraðsdóms er ekki löng lesning, en athyglisverð. Og reyndar er fleira skrýtið við þetta tiltekna mál. Í fyrsta lagi finnst mér […]

„You‘ll be back“
Sjálfstæðisflokkurinn er rotinn. Hann er að morkna í sundur. Innanfrá. Fyrsta nóvember átti að flikka upp á hann með því að kjósa honum ritara. Einskonar aðalritara. Það misheppnaðist algjörlega því að enginn hafði áhuga á vegsemdinni. Nema einn. Dýrasti þingmaður flokksins, sá sem enn neitar að gefa upp hverjir borguðu miljónatugi fyrir sæti hans […]

Af tilefnislausu
Já! Það er gott að elska, söng Bubbi og syngur enn. Það er alveg rétt hjá honum. Og það er líka gott að játa. Það skiptir máli fyrir þann sem það gerir að játa allt og öllu. Það léttir á þeim honum. Og öðrum líka. Sumum öðrum. Og þá breytir engu hvenær játað er. Eða […]
Jæja Hanna Birna
Eftir að hafa margoft sagt að það hafi enginn leki átt sér stað úr ráðuneyti hennar. Eftir að hafa ítrekað við almenning og Alþingi aftur og aftur að engin sambærileg gögn væru til í ráðuneytinu. Eftir að hafa ásakað fjölmarga gagnrýnendur um einelti og spuna. Eftir að hafa lýst yfir stuðningi við Gísla Frey Valdórssyni […]

Fólk er ekki fífl…
Það kennir ýmissa grasa í glærukynningu ríkisstjórnarinnar á millifærslunni. Meðal annars þetta: 20 milljarðar eru færðir beint af tekjuhlið ríkissjóðs í millifærsluna, þ.e.a.s. ríkið (við ) borgum þetta með sameiginlegum tekjum okkar allra (sjá glæru 7). Skattaafsláttur til viðbótar upp á 20 milljarða króna þýðir niðurskurð í útgjöldum upp á sömu upphæð (sjá glæru 9). 25% millifærslunnar […]

Frekar vondaufar þúsundir
Ætli það hafi ekki verið langleiðina í 3000 manns á Austurvelli í dag, færri en fyrir viku en við því var alveg að búast. Það er ekki auðvelt að fá fólk til að mótmæla viku eftir viku. Vegna þess að fólk sér ekki árangurinn, stjórnmálamönnunum dettur ekki í hug að virða það sem við erum […]

Verkföll og dauði stéttarfélaga
Frá því á sjöunda áratug síðustu aldar hafa komið fram kenningar um að tími stéttarfélaga sé liðinn – velmegun hafi orðið svo almenn að stéttarbarátta hafi liðið undir lok. Og því ekki þörf á stéttarfélögum. Árið 1960 birti bandaríski félagsfræðingurinn Daniel Bell bókin The end of ideology þar sem hann taldi að hugmyndafræði fyrri tíma […]

Uppdráttarsýki hagkerfisins
Fyrir síðustu kjarasamninga brýndi Seðlabankinn með mjög afgerandi hætti nauðsyn þess að launahækkanir væru í samræmi við batann í hagkerfinu. Verkalýðsforystan ákvað að stíga fram og standa að samræmdri kjarastefnu til langs tíma þrátt fyrir að nokkrir gengu fram fyrir skjöldu með glæsileg yfirboð um allt að 30% launahækkanir. Fyrirliði yfirboðsliðsins var einn helsti […]

Úr kýrhausnum
Það er margt skrýtið í kýrhausnum. Og ekki bara þar. Líka í Framsókn. Formaður Framsóknarflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra sagði í sjónvarpsviðtali 3.11.: „Menn eru fyrst komnir í vanda, stjórnmálamenn, ef þeir ætla að láta skoðanakannanir ráða gerðum sínum.“ Tveimur dögum síða, 5.11. lögðu allir óbreyttir þingmenn Framsóknarflokksins til að alþingi tæki af Reykjavíkurborg […]

Íslandsbörn fjölskylduhjálparinnar
Ný frétt poppaði upp á fésbókinni: Átakið Íslandsforeldri og ný starfsstöð opnuð í dag: „Mun hafa varnaleg áhrif á líf þessara barna“. „Mjög gott mál“, sagði Pressan þar sem hún dreifði eigin frétt. Ég verð að viðurkenna að ég er ekki sannfærð og reyndar langt því frá. Í lok árs árið 2010 fékk ég innsýn inn […]