trusted online casino malaysia

Pistlar

Um fjarlægðir

Um fjarlægðir

Það er um fjarlægðir eins og flest annað í heiminum. Það sem einum finnst langt, telur annar stutt. Allt virðist afstætt í þeim efnum. Líklega mótast fjarlægarskyn okkar út frá því hvar við ölum manninn. Ég er staddur í Brisbane, Ástralíu. Það tók mig tvo daga að fjúga hingað frá Keflavík. Það segir sína sögu, […]

Ingi Rúnar Eðvarðsson 16/02/2015 Meira →
Er hægt að hrista háskóla?

Er hægt að hrista háskóla?

Það er ákveðinn hressandi blær yfir því að Einar Steingrímsson skuli gefa kost á sér sem rektor Háskóla Íslands. Hann sækist nefnilega ekki eftir stólnum til að sitja í honum, heldur er á honum að skilja að hann ætli sér öllu fremur að standa uppréttur í vinnunni og vera þar að auki með uppbrettar ermar. […]

Jón Daníelsson 11/02/2015 Meira →
Launkofi

Launkofi

  Það berast sífellt fleiri fréttir erlendis frá um íslenska skattaþjófa. Og meiri upplýsingar eiga eftir að bætast við. Fjármálaráðherrann vill ekki fá þær þó að margar „vinaþjóðir“ hafi keypt þær og halað inn miljarða í sína ríkiskassa. Þegar skattrannsóknarstjóri sneri sér að honum til þess að fá aur fyrir listanum umlaði ráðherrann og sagði […]

Úlfar Þormóðsson 09/02/2015 Meira →
Útboðsruglið

Útboðsruglið

            Í vetur hafa komið upp nokkur mál þar sem opinber „félög“ bjóða út ákveðna þætti þjónustunnar til einkaaðila með hörmulegum afleiðingum. Það er erfitt fyrir sæmilega skynsamt fólk að átta sig á því hvers vegna það á að vera ódýrara fyrir hið opinbera að einkafyrirtæki þrífi spítala og stjórnarráð en […]

Margrét Tryggvadóttir 05/02/2015 Meira →
… HAFA KJARK TIL AÐ ÞORA …

… HAFA KJARK TIL AÐ ÞORA …

  Sjávarútvegsráðherra var spurður að því á alþingi hvað ylli því að hann legði ekki fram lögnu boðað lagafrumvarp um auðlindirnar í sjónum og aðganginn að þeim. Ráðherrann skýrði máli í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins (05.02.´15) og sagði að „ólíkir hagsmundir innan stjórnmálaflokkanna“ væri ástæðan fyrir því að frumvarpið hefði ekki enn litið dagsins ljós  Ólíkir hagsmunir. […]

Úlfar Þormóðsson 05/02/2015 Meira →

Heimsóknin

Leiðið hans pabba er rétt við kirkjugarðshliðið. Það komu ekki nema tveir staðir til greina og við Halldór, elsti bróðir minn, völdum þennan stað með mömmu. Yfir reitnum er ljósastaur sem lýsir leiðið upp í svartasta skammdeginu. Mömmu hugnast vel að það sé einhver birta yfir kallinum. Hún býr í húsi rétt hjá og þarf […]

Jón Knútur Ásmundsson 05/02/2015 Meira →
Uppgjör milli launamanna og stefnu forsætisráðherra.

Uppgjör milli launamanna og stefnu forsætisráðherra.

Því er ákveðið haldið að almenning á Íslandi að krónan sé bjarghringur Íslands af tilteknum hópi fólks. Krónan er góð fyrir skuldlaust efnafólk, sem í reglulegum gengisfellingum krónunnar er gert sífellt ríkara með stórkostlegum eignatilfærslum innan íslensks samfélags. Í umræðum um stöðu okkar í efnahagslega séð er rætt eins og líf hafi byrjað á Íslandi […]

Guðmundur Gunnarsson 04/02/2015 Meira →
Maður heitir Hólmsteinn

Maður heitir Hólmsteinn

Maður heitir Hólmsteinn og er prófessor að starfsheiti. Svo er frá sagt, að hann hafi litið í spegil um daginn og séð þar nokkur grá hár. Þetta mislíkaði prófessornum mjög og atyrti spegilinn lengi dags. Þegar spegillinn ansaði engu, skrifaði hann kjarnyrta grein á bloggsíðu sína og hnýtti þar rækilega í spegilinn í lokin. En […]

Jón Daníelsson 02/02/2015 Meira →
Náttúran, almannarétturinn og náttúrupassinn

Náttúran, almannarétturinn og náttúrupassinn

Að svo miklu leyti sem við getum skynsamlega sagt að fólk eigi land og náttúru þess, þá hljótum við að vera sammála því—af einni eða annarri ástæðu, ullartreflar jafnt sem álhausar og hinir þar á milli—að dýrmætasta eign Íslendinga sé náttúra Íslands. Þrátt fyrir að sumir telji sig eiga meira tilkall til náttúrunnar en aðrir—einkum […]

Guðmundur Andri Hjálmarsson 01/02/2015 Meira →
Allsleysi

Allsleysi

  Á Bessastöðum er því þráfaldlega haldið fram að Ísland sé best í heimi og Íslendingar eftir því. Það er líka gert annars staðar innan Framsóknarflokksins svo sem í stjórnarráðinu við Lækjartorg. Það er því ekki að undra að þeir sem þarna ráfa um og rausa skuli ekki hafa brugðist við fréttum um fátækt á […]

Úlfar Þormóðsson 01/02/2015 Meira →

Sexgreining ríkisvaldsins

*** Ég tel misskilning þá útbreiddu kenningu að sjálfgefið sé að greinar ríkisvaldsins séu fyrst og fremst eða jafnvel aðeins þrjár – enda oft talað um þríþættingu eða þrískiptingu ríkisvalds eins og eitthvert mantra. Með því gleymist ekki aðeins sveitarstjórnarstigið sem fellur hvorki að formi né efni til vel undir neina eina af þessum þremur […]

Gísli Tryggvason 01/02/2015 Meira →
Bjarni veit ekkert

Bjarni veit ekkert

Fjármálaráðherra hefur í annað sinn svarað fyrirspurnum mínumog Katrínar Jakobsdóttur um stóru millifærsluna. Í svarinu segist hann ekki getað svarað spurningum okkar. Sem er hreint út sagt ótrúlegt þegar um er að ræða málið af þessari stærðargráðu, þ.e. 80 milljarða króna greiðslur úr ríkissjóði. Það er óásættanlegt með öllu að ráðherra sem tekið hefur að sér að fara með […]

Björn Valur Gíslason 30/01/2015 Meira →
0,877