Pistlar

Makrílkvóti, vanhæfi og traust Alþingis
Fréttir dagsins um vinnu við úthlutun makrílkvótans á þingi hafa vakið mikla athygli. Kvótakerfið er mjög umdeilt og sitt sýnist hverjum um ágæti þess. Við útdeilingu aflaheimilda hefur verið byggt á veiðireynslu útgerða (en ekki sjómanna). Þar gildir jafnræðisreglan – allir útgerðir sem hafa aflað sér veiðiheimilda eiga rétt á úthlutun. Um það er ekki […]

Kerfisbreyting er það sem þarf
Það er ófremdarástand í þjóðfélaginu. BHM í verkfalli og verkföll á almennum vinnumarkaði vofa yfir. Listinn yfir kjaradeilur sem vísað hefur verið til Ríkissáttsemjara er langur. Landspítalinn starfar á 40 % afköstum og þinglýsingar liggja niðri. Barnabætur verða líklega ekki greiddar út á réttum tíma og ekki verður hægt að slátra kjúklingum. Menn jesúsa sig […]

Ný ríkisstjórn fyrir vorið
Þegar litið er yfir drög að ályktunum flokksþings Framsóknarflokksins, sem haldið verður um helgina, liggur ljóst fyrir að í þeim málum sem mestu skipta á Framsóknarflokkurinn miklu fremur samleið með Samfylkingunni og Bjartri framtíð en Sjálfstæðisflokknum. Og þegar svo stendur á, liggur auðvitað beinast við að mynda nýja ríkisstjórn þeirra flokka sem hafa nokkuð sambærilega […]

VEIÐIGJÖLD 2015. Fyrsti hluti
Á vormánuðum 2014 voru samþykkt á Alþingi lög um veiðigjöld sem gilda áttu til eins árs. Í grein um frumvarpið og umsögn sem ég gaf atvinnuveganefnd Alþingis benti ég m.a. á að í frumvarpinu fælist sú breyting að horfið væri frá þeirri meginhugsun laganna frá árinu 2012 að leggja gjald á auðlindarentu í fiskveiðum og […]

Kjarasamningurinn sem aldrei var gerður
Maður veit nokkurn veginn hvað er framundan: Löng og ströng verkfallahrina, sem setur allt samfélagið úr skorðum. Svo verður samið eins og venjulega. Allir fá talsverða kauphækkun. Svo étur verðbólgan upp allar kauphækkanir og í mörgum tilvikum gott betur. Ekkert nýtt í þessu. Þetta hefur verið svona síðan ég man fyrst eftir mér – og […]

Vangaveltur um þrætur og staðsetningu mannvirkja
Sverrir Kristjánsson ritaði einu sinni að þrætulist íslenskra bænda hafi komið dönskum embættismönnum mjög á óvart. Bændurnir íslensku gátu þrætt áratugum saman um ágreiningsefni, einkum landamörk. Ekki dugðu þeim íslenskir dómstólar, enda enduðu flest ágreiningsefni fyrir Hæstarétti í Kaupmannahöfn. Það er greinilegt að Bjartur í Sumarhúsum lifir góðu lífi í íslenskri þjóðarsál. Á liðnum áratugum […]

Mæ vei
Herðubreið hefur borist fundargerð síðasta fundar starfshóps um endurbætur í peningamálum. Hún er svohljóðandi:

Frelsi og mannfórnir
Eftir Kristin Hrafnsson Í sjálfstæðisyfirlýsingu Bandaríkjanna segir að rétturinn til lífs, frelsis og sóknar eftir lífshamingju sé helgur. Ég hef alltaf verið hrifinn af þessu plaggi, ekki síst vegna þess að í fáum öðrum mikilvægum pólitískum skjölum sögunnar er talað um hamingjuna. Helgi lífs og frelsis er svo auðvitað grunnstef í okkar pólitísku hugmyndafræði. En […]

Sigríður Ingibjörg kom Samfylkingunni til bjargar
Eftir Ómar S. Harðarson Sigríður Ingibjörg Ingadóttir hefur fengið á sig harða gagnrýni úr horni stuðningsmanna Árna Páls Árnasonar fyrir það að hafa gefið kost á sér sem formaður Samfylkingarinnar á nýliðnum landsfundi flokksins. Sumt af þeirri gagnrýni kemur ekki á óvart, en allir sem hafa tjáð sig um framboðið vaða í miklum villum. Framboðið […]

Persónustríð í Samfylkingunni?
Það eru að sjálfsögðu einkum pólitískir andstæðingar Samfylkingarinnar, sem nú hamast við að útskýra að flokksfleyið logi stafna á milli. Framboð Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur er túlkað sem rýtingsstunga í bak sitjandi formanni. Að baki framboðinu er sagt hafa verið mikið plott og margir handritshöfundar tilnefndir. Sannleikurinn er hins vegar sá, að þegar komið var á […]

Ofteknir skattar
Á vinnumarkaði stefnir í harðar deilur og verkföll. Að því er allra lægstu laun varðar, gætu stjórnvöld skorist í leikinn og auðveldað kjarasamninga til muna með því einu að færa skattleysismörk í svipað horf og þau voru fyrir svo sem 15 árum. Mörgum þykir það nokkuð brött krafa að hækka lægstu laun um 50%, úr 200 […]

Slitatillaga á leið inn í þingið?
Ég er farinn að hallast að því, að á alveg næstunni muni ríkisstjórnin legga fyrir Alþingi þingsályktunartillögu um að slíta aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Eins og margir aðrir hef ég velt fyrir mér furðubréfinu, sem búið er að snúa allri þjóðfélagsumræðu á hvolf síðan fyrir helgi, og mér sýnist þetta líklegasta skýringin. Bréfið er birt í […]