Pistlar

Sá sem á slíka vini …
Í ríkisstjórn Íslands er einn ráðherra, sem reynir í fullri alvöru að vinna að almannahag. Sá ráðherra heitir Eygló Harðardóttir. Hún mætir nú fullum fjandskap og verulegum tuddaskap frá Sjálfstæðisflokknum með formanninn og fjármálaráðaherrann, Bjarna Benediktsson, í fararbroddi. Og frá samflokksmönnum hennar heyrist ekki aukatekið orð henni til varnar. Sá sem á slíka vini, þarfnast […]

Mesta auðlind Íslands
„Hálendi Íslands er mesta auðlind Íslands, hvernig sem á það er litið,“ sagði Páll heitinn Skúlason fyrrv. háskólarektor. Á íslenska hálendinu eru öll af 10 mestu lindasvæðum landsins, reyndar nokkur af mestu lindarsvæðum heimsins. Þau spanna yfir stóran hluta af hálendinu. Þarna er að finna mestu verðmæti íslenskrar náttúru til framtíðar. Hreint vatn […]

Hver lak núna?
Bjarni Benediktsson er kominn í stríð við samráðherra sinn, Eygló Harðardóttur, og svífst einskis til að koma á hana höggi. Fréttastofa RÚV „hefur undir höndum“ einhvers konar „umsögn“ fjármálaráðuneytisins um frumvarp Eyglóar um húsnæðisbætur, nýtt kerfi sem á að leysa húsaleigubætur og vaxtabætur af hólmi. Auðvitað er ekkert eðlilegra en að fréttastofan birti meginatriði þessarar […]

Aftakan
Það komu fram merkilegar upplýsingar um húsnæðismálafrumvörp Eyglóar Harðardóttur í fréttum RÚV í kvöld. Í fyrsta lagi að þau færu gegn markmiðum sínum og myndu helst gagnast húseigendum og tekjuháu fólki næðu þau fram að ganga. Í öðru lagi kom fram að fréttastofa RÚV hefði undir höndum umsögn fjármálaráðuneytisins um frumvörpin. Samkvæmt þessu liggur fyrir að […]

Ósannindamaðurinn
Forsætisráðherra landsins hefur farið mikinn síðustu daga og talað frá sér vit og rænu eins og sagt er um þá sem fara með þrugl og þylja skæting. Hann segir: … „skynjun fólks á raunveruleikanum er röng… að rof á milli raunveruleika og skynjunar hjá þjóðinni valdi því að ríkisstjórnin er með aðeins stuðning hjá þriðjungi […]

Kostir
Fyrirtæki sem greiða þúsundir miljóna í arð geta greitt hærri laun en þau gera. Það er eðlilegt. Það er sanngjarnt. Fyrirtæki sem ekki geta greitt lífvænleg laun eiga ekki tilverurétt nema með því eina móti að eigendur þeirra vinni þar einir og sjálfir svo lengi sem þeir hafa þrek til. Slík fyrirtæki eiga ekki að […]

Þessu brjálæði verður að linna
Yfirstandandi kjaradeilur eru komnar svo langt frá heilbrigðri skynsemi, að tæpast er unnt að kalla þær annað en brjálæði. Það er vissulega afar auðvelt að hafa samúð með þeirri kröfu, að lægstu laun verði komin í 300 þúsund á mánuði eftir þrjú ár. Það er reyndar ekki nema 25-30% raunhækkun miðað við mjög hóflega verðbólgu tímabilinu. […]

Er Skrokkalda kjarabót?
Ein dapurlegasta tilraun til að réttlæta náttúruofbeldi stóriðjusinna kom fram í vikunni þegar fullyrt var að frekari virkjanir væru forsenda þess að bæta megi kjör almennings. Þetta er dapurlegt af þeirri ástæðu að það sýnir veruleikafirringu stjórnvalda og virðingarleysi fyrir rökum og staðreyndum. Áttatíu prósent raforkuframleiðslu í landinu, sem er um 13.000 gígawattstundir, eru seldar […]

Á að kjósa?
Það eru þúsundir launamanna í verkfalli þessa dagana. Þar á meðal fjölmennir hópar opinberra starfsmanna. Og þeim mun fjölga á næstu dögum. En ríkisstjórnin gerir ekkert til þess að liðka fyrir samningum. Þvert á móti. Einstaka ráðherrar og þingmenn herða deilur með óhefluðum orðum og athugasemdum. Það er fjöldi mála, vondra og miðlungsgóðra, sem stjórnin […]

Ferðaþjónusta fatlaðra og útboð
Í gær birti Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar skýrslu um sameiningu ferðaþjónustu fatlaðs fólks á höfuðborgarsvæðinu. Skýrsluna má finna hér. Í stórum dráttum má segja að orsök þess að svo illa tókst til sem raun ber vitni megi rekja til slæmrar tímasetningar, skort á samráði við hagsmunaaðila, að þekking hafi glatast með uppsögn starfsfólks og ekki hafi […]

Spurn
Núorði dregur ferðamennska betur í þjóðarbúið en aðrar atvinnugreinar. Meginástæðan fyrir áhuga útlendinga á landinu eru víðáttur þess, óbyggðir og óspillt náttúra. Ríkisstjórnin veit þetta. Samt rífur hún upp rammaáætlun um virkjanir og línulagnir sem augljóslega munu spilla náttúrunni, draga úr ferðamennsku og lækka þjóðartekjur. Ríkisútvarpið eitt fjölmiðla sagði frá því í síðustu viku að […]

Þrenna
Síðustu daga hefur verið mikið fjör í andlegu lífi landsmanna heima og erlendis. Og gróska. Í vikulokin barst út sú frétt með öllum fjölmiðlun að Ólafur Ólafsson á Kvíabryggju óski eftir endurupptöku á markaðsmisnotkunar- og umboðssvikamáli sem hann var dæmdur í tukt fyrir. Hann vill fá úr því skorið fyrir dómi hvort hann sé […]