Pistlar

176 sentimetrar af hreinum hæfileikum
Guðni Bergsson hefur sett fram merka kenningu: Varnarmenn eru mun mikilvægari en sóknarmenn í fótbolta.

Beinlínis tær snilld
Verkfallslögin sem stjórnarmeirihlutinn er nú að troða gegnum Alþingi, hefðu betur verið sett strax í mars – áður en fyrstu verkföllin hófust. Þótt sjaldan valdi einn þá tveir deila, hefur verið augljóst frá upphafi að ríkisstjórnin ætlaði aldrei að semja. Þar með er ljóst verkföllin höfðu aldrei neina þýðingu. Þau hafa hins vegar valdið miklum […]

Hver var tilgangurinn með lekanum?
Það er afar mikilvægt að upplýst verði um lekann, hvaðan hann nákvæmlega kom og hver tilgangur hans var af hálfu forsætisráðuneytisins.

Höddi bjargar deginum
Þegar við neyðumst til að horfa á leiðindi eins og úrslitaleik í meistaradeildinni kemur einn maður til bjargar: Höddi Magg.

Hálfur sigur – eftir 35 ár
Loksins fara svonefnd Guðmundar- og Geirfinnsmál aðra umferð fyrir dómstólum. Og kominn tími til. Sú niðurstaða setts ríkissaksóknara, Davíðs Þórs Björgvinssonar, að „rök séu fyrir endurupptöku“ að því er varðar þátt Guðjóns Skarphéðinssonar leiðir nánast óhjákvæmilega til þess, að bæði málin verði galopnuð á ný. Ástæðurnar eru tvær: Annars vegar byggðist málatilbúnaðurinn í Geirfinnsmálinu fyrst […]

Tilkynningar lögreglu í fjölmiðlum
Í gær var ótrúlega klikkaður fréttadagur og hálf þjóðin nánast óvinnufær af flissi. Tvær fréttir sem tengjast lögreglunni og aðilum mála finnast mér undarlegar og kannski líka furðulegt að þær hafi ekki fengið meiri athygli. Fyrra atriðið sem ég hnaut um kom fram í viðtali við Malínu Brand sem hafði að eigin sögn verið „lent í“ […]

Kleina
Siðferði Morgunblaðsins hefur oftar en ekki verið undarlegt. Reikult? Hæpið? Breytilegt? Já, það er kannski helsta einkennið, breytilegt viðmið eftir um hvað og hvern er fjallað. Eins og flestir vita ræðst siðferði blaðs að mestu af því hver stýrir því. Í síðustu viku reiddi Mogginn til höggs og vildi rota þrjótinn Steingrím J. Sigfússon fyrir […]

Firring
Hvað eftir annað óskapast formaður Sjálfstæðisflokksins og fjármálaráðherra yfir því að verkalýðsfélög leggi áherslu á mismunandi atriði við gerð kjarasamninga. Hann segir að það sé ekki hægt að semja við slíkar aðstæður. Það sé ómöguleiki. Hann spyr, hann þráspyr, hvernig þetta megi vera. Þetta er merkilegt. Eða ómerkilegt. Eða hefur maðurinn ekki hugmyndaflug eða getu […]

Lokaorð
Þessi grein eftir mig birtist í Austurglugganum í dag í dálki sem heitir Lokaorð. Um daginn var mér sagt að ég skynjaði ekki mörk raunveruleika og ímyndunar. Þetta hefur mig lengi grunað og nú þegar sjálfur forsætisráðherra lýðveldisins segir mér þetta, veit ég að þetta er satt. Mér hefur nefnilega fundist hann vera hálfgerður […]

Til hamingju Ísland
Forsætisráðherra landsins sagði fyrir örfáum dögum að það kæmi til greina að hækka skatta ef samið yrði um verulegar launahækkanir í kjaraviðræðum. Í dag, 29. maí, lofar hann skattalækkun. Af þessum orðum ber að draga þá ályktun að maðurinn viti ekki hvað hann segir þegar hann talar, skrökvi eftir hentugleikum eða líti svo á að […]

Lygi, valdhroki og ósvífni
Þetta eru ekki falleg orð. Saman mynda hugtökin nokkuð eitraðan kokkteil. En sá kokkteill er nú borinn fram og mér ofbýður. Hreint út sagt. Mogginn lýgur því fullum fetum á forsíðu í morgun að Steingrímur J. Sigfússon hafi framselt hluti ríkisins í núverandi Arion- og Íslandsbanka haustið 2009 án þess að hafa til þess lagaheimild. […]

Verður sett ný gjaldmiðilsstefna?
Nú er farið að sjá yfir endann á þessari samningahrinu, segja sumir og anda léttar. En er það svo? Það er eftir að semja við stóra hópa úr millistéttinni, iðnaðarmenn og opinbera geirann. Og svo er það aðalmálið; Hvað ætla menn að gera í gjaldmiðilsmálum? Á meðan við höfum núverandi gjaldmiðil skiptir í raun […]