trusted online casino malaysia

Pistlar

Nú ættum við að lána Grikkjum

Nú ættum við að lána Grikkjum

Íslensk stjórnvöld ættu nú að bregðast við tafarlaust og tilkynna, að Íslendingar veiti Grikkjum peningalán án skilyrða. Upphæðina mætti t.d. miða við það sem Sameinuðu þjóðirnar ætlast til að ríku löndin veiti árlega í þróunarstoð, sem sagt kringum fjóra milljarða króna eða um 27 milljónir evra. Þeir peningar ættu að vera til í Seðlabankanum. Slíkir […]

Jón Daníelsson 15/07/2015 Meira →
Þar sem pabbi fæddist

Þar sem pabbi fæddist

Á ferðum um löndin við Miðjarðarhafið er ekki þverfótað fyrir nokkur þúsund ára gömlum fornminjum. Rómverskar minjar eru um allt. Maður kemur kannski inn í lítið þorp og þar eru leifar af súlum og byggingum á opnu svæði þar sem ferðamaðurinn sest á fallna súlu til að hvíla sig. Á Íslandi eru engar slíkar minjar […]

G. Pétur Matthíasson 12/07/2015 Meira →
Epli og appelsínur

Epli og appelsínur

Að bera saman 110% leiðina og stóru millifærsluna er eins og að bera saman epli og appelsínu. Í 110% leiðinni fólst að fjármálafyrirtækjum var gert að afskrifa hluta af húsnæðisskuldum einstaklinga og fjölskyldna niður að 110% af verðmati viðkomandi húsnæðis. Það var því ekki um millifærslu úr ríkissjóði til fjármálafyrirtækjanna að ræða heldur hreina afskrift […]

Björn Valur Gíslason 05/07/2015 Meira →
Skerum niður niðurskurðarstefnuna

Skerum niður niðurskurðarstefnuna

Hvernig má það vera að menn ríghalda í stefnur sem eru ekki bara úr sér gengnar heldur hafa aldrei fært okkur nokkuð fram á veg? Hversvegna erum við ekki búin að koma okkur saman um að frjálshyggjan er gersamlega ónothæf? Það var á sínum tíma býsna auðvelt fyrir þau Thatcher og Reagan að búa til […]

G. Pétur Matthíasson 03/07/2015 Meira →
Breytingar á fjölda starfa eftir hrun

Breytingar á fjölda starfa eftir hrun

Að undanförnu hefur því verið slegið upp í fjölmiðlum að nær eina fjölgun starfa eftir hrun hafi verið í ferðaþjónustu. Það er ekki rétt. En hverjar hafa verið breytingar í fjölda starfa eftir hrun? Þær hafa verið margvíslegar eins og hér verður rakið. Stuðst er við tölur frá Hagstofu Íslands (fjöldi í aðalstarfi eftir atvinnugreinum). […]

Ingi Rúnar Eðvarðsson 01/07/2015 Meira →
Ef þau kunna að skammast sín

Ef þau kunna að skammast sín

Samkvæmt skýrslu fjármálaráðherra eru megin niðurstöður stóru millifærslunnar sem hér segir: Tekjuhæstu hóparnir fengu mest greidd inn á lánin sín Næst tekjulægsti hópurinn fékk minnst allra Skuldarar á höfuðborgarsvæðinu fengu mun meira en skuldarar á landsbyggðunum Meginniðurstaða af aðgerðinni sem veitir fólki skattaafslátt gegn því að greiða húsnæðisskuldir með eigin sparnaði var sem hér segir: […]

Björn Valur Gíslason 29/06/2015 Meira →
Loksins eitthvað af viti

Loksins eitthvað af viti

Eftir áratuga argaþras um Reykjavíkurflugvöll fæddist í gær plagg, sem virðist fela í sér vitræna niðurstöðu. Að því einu tilskildu að athuganir, sem vonandi verða gerðar í vetur, samræmist því sem þegar er vitað, ætti öllum að mega vera ljóst að Hvassahraun er heppileg lausn. Á þessari lausn er sá galli, að þaðan tekur lengri […]

Jón Daníelsson 26/06/2015 Meira →

Halldór Halldórsson kvaddur

Í dag fer fram útför Halldórs Halldórssonar blaðamanns. Halldór var og er helsta innlenda fyrirmynd þeirra blaða- og fréttamanna sem vilja ástunda krefjandi og gagnrýna blaðamennsku – rannsóknarblaðamennsku, fylgja málum eftir, velta öllum steinum við, svara öllum spurningum, auðsýna hvers kyns valdhöfum aðhald, sinna hagsmunagæslu fyrir almenning. Og að því frátöldu, að Halldór hjó heldur […]

Friðrik Þór 23/06/2015 Meira →
Ítrekaðar spurningar – engin svör

Ítrekaðar spurningar – engin svör

Katrín Jakobsdóttir formaður Vinstri grænna, beindi í fyrra ítarlegri fyrirspurn til Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra um 80 milljarða millifærsluna sem kölluð hefur verið „leiðréttingin“. Fjármálaráðherrann kom sér undan því að svara fyrirspurninni og sagðist þess í stað ætla að skila þinginu skýrslu um málið þar sem Katrín fengi svör við spurningum sínum. Skýrslunni sagðist ráðherrann ætla að skila í […]

Björn Valur Gíslason 20/06/2015 Meira →
Sagan og samningarnir

Sagan og samningarnir

Þegar verkföllin, atvinnuleysið, þennslan og niðurstöður samninga á 20. öld eru skoðaðar er niðurstaðan afar einföld. Sigrarnir – hærri laun, styttri vinnutími, lengra orlof og fleiri veikindadagar – unnust þegar þennsla var í atvinnulifi. Þegar samdráttur ríkti og atvinnuleysisvofan herjaði voru samningar ýmist framlengdir eða samið um málamyndahækkanir. Flest ár var kaupmáttur þokkalegur, með nokkrum […]

Ingi Rúnar Eðvarðsson 17/06/2015 Meira →
Svigrúmið — til hvers dugar það?

Svigrúmið — til hvers dugar það?

Það er erfitt að átta sig á þessu svigrúmi sem samkomulagið við kröfuhafa gömlu bankanna og þrotabúin hefur skapað. Hvað felst í þessu. Þetta eru engar smá upphæðir. Eru menn ekki að tala um 500 til 850 milljarða króna? Bara talan er óskiljanleg fyrir venjulegt fólk. Alveg jafn óskiljanleg og 7-8000 milljarðar króna sem útlendingar […]

G. Pétur Matthíasson 16/06/2015 Meira →
Sjúklingar eða sægreifar?

Sjúklingar eða sægreifar?

Stundum finnst mér að ráðamenn þessarar þjóðar – og kannski landsmenn allir – mættu hugleiða forgangsröðun aðeins betur. Þrátt fyrir auð og velsæld höfum við ekki efni á alveg öllu sem hugurinn girnist. Í nútímasamfélagi gerum við miklar kröfur og veltum sennilega ekki oft fyrir okkur nákvæmlega í hvaða röð við myndum raða lífsþægindunum ef […]

Jón Daníelsson 14/06/2015 Meira →
1,031