trusted online casino malaysia

Pistlar

Nei, þetta gengur ekki

Nei, þetta gengur ekki

Enn er mótmælt á Austurvelli og útlit fyrir að svo verði áfram um hríð. Það er að verða liðinn mánuður frá Kastljósþættinum um Panama-skjölin og afsögn forsætisráðherra. Bráðum mánuður síðan menn sögðu að kjósa ætti í haust. Samt bólar ekki á ákveðinni dagsetningu og ekki heldur alvöru skrá yfir þau mál sem Alþingi þyrfti að […]

G. Pétur Matthíasson 01/05/2016 Meira →
Ætlum við að sætta okkur við þetta?

Ætlum við að sætta okkur við þetta?

Myndin sem dregin er upp í Panama-skjölunum af framferði Íslendinga verður sífellt dekkri og dekkri. Og það er ekki einsog þetta sé bara eitthvert fólk út í bæ. Þetta eru menn sem maður hefur í gegnum tíðina umgengist. Finnur Ingólfsson og Hrólfur Ölvisson voru báðir í stúdentapólitíkinni á sama tíma og ég. Þeir stofnuðu framsóknarfélag, […]

G. Pétur Matthíasson 26/04/2016 Meira →
Formaður á leið í fallöxina

Formaður á leið í fallöxina

Það er ekki óþekkt, hvorki hérlendis né erlendis, að stjórnmálaflokkur standi frammi fyrir þeirri staðreynd, að formaðurinn sé orðinn að sjálfstæðu vandamáli. Slík formannskreppa verður gjarnan svo alvarleg að seta formannsins kemur ekki aðeins í veg fyrir fylgisaukningu flokksins, heldur beinlínis tætir af honum fylgið. Einmitt núna eru tveir íslenskir stjórnmálaflokkar í þessari stöðu. Formannskrísa Framsóknarflokksins […]

Jón Daníelsson 26/04/2016 Meira →
Afmælið hans Illuga.

Afmælið hans Illuga.

Fleiri í dag en í gær, þannig var það víst með mótmælin á Austurvelli í dag. Fá hundruð þegar allt var talið, flestir stoppa stutt við, en fjöldinn segir ekki allt, þótt það væru heldur fleiri. Fólk mætir einsog það getur til að hita upp fyrir stærri mannfagnað á laugardaginn þótt ekki verði neinu fagnað […]

G. Pétur Matthíasson 13/04/2016 Meira →
Það er eitthvað verulega mikið að…

Það er eitthvað verulega mikið að…

….og það eru bara mótmælin á Austurvelli sem geta lagað það sem er að. Eða komið okkur til að taka fyrsta skrefið á endurbót númer tvö eftir hrun. Afhverju er ekki gengið hreint til verks og kosið strax? Nú heyrist frá fjármálaráðherra að hann hyggist jafnvel leggja fram fjárlagafrumvarp og svo verði kosið í október. […]

G. Pétur Matthíasson 11/04/2016 Meira →
Fyrsta þætti lokið – tveir óskrifaðir enn

Fyrsta þætti lokið – tveir óskrifaðir enn

Einn snjallasti grínhöfundur 20. aldar, P.G.Wodehouse, skapaði svo heimskar persónur, að helst mætti ætla, að það hefði alveg gleymst að setja í þær nokkurn heila. Þegar hann setti svo þessar heilalausu persónur inn í fremur vandræðalegar aðstæður, vakti útkoman eðlilega mikla kátínu. Og þótt maður ætti kannski að fyllast viðbjóði og skammast sín fyrir að […]

Jón Daníelsson 07/04/2016 Meira →
Mótmæli munu halda áfram

Mótmæli munu halda áfram

Þessi nýja ríkisstjórn sem kynnt var í stiga í Alþingishúsinu eftir að svikinn stjórnarþingmaður hafði óvart ljóstrað upp um niðurstöðuna verðu ekki langlíf. Þetta er ekki gott. Allir vita að þetta er veik ríkisstjórn og þótt hún sé með 38 þingmenn á bak við sig er hún mjög tæp. Þetta veikasta sterkasta stjórn sem lýðveldið […]

G. Pétur Matthíasson 06/04/2016 Meira →
Enginn bað um Sigurð Inga

Enginn bað um Sigurð Inga

   Þegar vinnudegi var að ljúka uppgötvar maður, eftir ansi mikla dramantík fyrri hluta dags, svo vægt sé til orða tekið, að Sigurður Ingi eigi að verða forsætisráðherra og Sigmundur Davíð sé búinn að segja af sér þeirri tign en ætli að halda áfram sem formaður Framsóknarflokksins. Þá hrökk nú út úr manni, andskotinn, verður […]

G. Pétur Matthíasson 05/04/2016 Meira →
Sigmundur á einum skó

Sigmundur á einum skó

Nú þegar komin er upp fordæmalaus staða finnst mér rétt að benda á eitt atriði.  Ég er ekki viss um að fólk almennt átti sig á hvernig það virkar þegar forsætisráðherra er ekki formaður flokks og formaður stjórnarflokks ekki heldur ráðherra. Við höfum ekki sérlega góða reynslu af því. Í stað þess að forsætisráðherra t.d. semji […]

Margrét Tryggvadóttir 05/04/2016 Meira →
Komið fram yfir tíma á afsögn

Komið fram yfir tíma á afsögn

Það væri nú gott ef forsætisráðherra hætti nú að kvelja þjóðina og segði af sér. Hann hefði átt að gera það strax í morgun. Við hin þurfum að reyna að endurreisa orðstír þjóðarinnar og það er ekki áhlaupverk eftir magnaðasta sjónvarpsþátt allra tíma, Kastljósið 3. apríl. Þjóðin brást strax við. Ég var svo heppinn að […]

G. Pétur Matthíasson 04/04/2016 Meira →
Næstu dagar og vikur ráða úrslitum

Næstu dagar og vikur ráða úrslitum

Í sameiginlegu viðtali forsætisráðherrahjónanna við sjálf sig kemur eftirfarandi fram: 1. Að mati forsætisráðherrahjónanna eru Bresku jómfrúareyjar ekki skattaskjólsland (ólíkt Svíþjóð) og félag þeirra Wintris Inc. því ekki „aflandsfélag í hefðbundnum skilningi“. Það er ekki skýrt frekar hvað átt er við. 2. Forsætisráðherrann taldi og telur enn að það hefði verið siðferðilega rangt af sér […]

Björn Valur Gíslason 27/03/2016 Meira →
Kæri Landsbanki efnaðra íslendinga

Kæri Landsbanki efnaðra íslendinga

Forsætisráðherra segir í viðtali við sjálfan sig í dag að Landsbanki Íslands hafi ráðlagt honum og konu hans ásamt öðru efnafólki að flytja eignir sínar úr hinu íslenska krónuefnahagskerfi yfir á Tortólareikninga. Þetta sé bara daglegt venjulegt brauð á borðum ráðgjafa bankanna. Hvers vegna ráðlagði Landsbankinn ekki öðrum venjulegum íslendingum að gera slíkt hið sama Ég […]

Guðmundur Gunnarsson 27/03/2016 Meira →
1,333