Pistlar

Lýgur lögreglan að okkur?
Lögreglan er gríðarlega mikilvæg grunnstoð samfélagsins og um leið er algerlega nauðsynlegt að við getum treyst henni. Auðvitað getur stundum verið réttlætanlegt að lögreglan neiti að veita upplýsingar og til þess geta verið nokkrar ástæður, en langoftast ætti þá að vera um rannsóknarhagsmuni að tefla. En við verðum að geta treyst því að þær upplýsingar, […]

Flétta Sigmundar Davíðs
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, berst fyrir pólitísku lífi sínu þessa dagana. Það eitt virkar eiginlega dálítið skrýtið. Svo vonlaus virðist aðstaða hans, að maður hefði frekar átt von á að hann myndi hreinlega hætta þessu vafstri og snúa sér að öðru. En fyrst hann ákvað að snúa aftur má gera ráð fyrir að hann […]

Ósvífin samlíking
Sigurður Einarsson fyrrum stjórnarformaður Kaupþings líkir meðferðinni á sér og fleiri sakborningum í hrunmálum við framkomu lögreglu og dómsvalds í Guðmundar- og Geirfinnsmálum fyrir fjórum áratugum. Það er erfitt að finna fáránlegri samlíkingu en einmitt þessa. Hvorki Sigurður né aðrir, sem dæmdir voru í kjölfar hrunsins sættu stöðugri einangrunarvist í heilsuspillandi fangelsi árum saman. Þeir […]

Fín upprifjun og góð blaðamennska
Það reyndist furðu margt hafa gleymst á fjórum árum, þegar ég las nýútkomna bók Karls Th. Birgissonar Alltaf einn á vaktinni. Þykist ég þó yfirleitt fylgjast nokkuð vel með því sem gerist í kosningabaráttu. Og fáein atriði komu á óvart. Þarna birtist t.d. allt í einu dálítil skýring á þeirri spádómsgáfu Ólafs Þ. Harðarsonar, sem […]

Davíð: Annaðhvort með eða á móti
Davíð Oddsson sker sig áberandi úr hópi forsetaframbjóðenda að því leyti að afstaða kjósenda til hans virðist alveg á hreinu frá upphafi og verður sennilega til enda. Fólk er annaðhvort með honum eða á móti. Andstaðan gegn Davíð sést nokkuð skýrt á harkalegum viðbrögðum margra t.d. á Facebook. Sumir láta sér nægja háðsglósur, en aðrir […]

Banki sem vill ekki sjá peninga
Ég hef haft samviskubit yfir því um nokkurst skeið að hafa ekki skilað inn 300 sænskum krónum. Enda skil ég ekki málin öðruvísi en þannig að það sé lögbrot að eiga gjaldeyri, öllu slíku skuli skila inn. Venjulega notast ég nú bara við kort en álpaðist til að taka út seðla í London um daginn. […]

Draugar og gamlir uppvakningar
Ekki gat maður, bara fyrir nokkrum vikum, órað fyrir því að Icesave yrði að kosningamáli fyrir forsetakosningar á Íslandi. Það er nú ljóst að það verður afskaplega erfitt að kveða þann draug niður. Samt er nýbúið að segja fréttir af því að allur hafi nú Icesave pakkinn verið borgaður af þrotabúinu og af okkur Íslendingum […]

Burt með sérhagsmunina
Við stöndum okkur vel í því jafnaðarmenn þessa dagana að skemmta andstæðingum okkar, það er svo sem ekkert nýtt. Þetta er einhver fjandi sem hefur fylgt flokkum á vinstri vængnum frá því að ég man eftir mér – og það er ansi langt er ég fús að viðurkenna. Á milli þess að við furðum okkur […]

Panamaminni
Það er auðvitað ekki það skemmtilegasta sem maður gerir, að telja upp tilfellin þar sem maður hefur ekki skilið hlutina, eða misskilið þá. Láta vita af því hvað maður er vitlaus; samt ekki vitlausari en það að þekkja þá aðferð gáfnaljósa allra tíma að ljúga upp á sig skilningsleysi og heimsku til að gera lítið […]

Vel látinn forseti
Fyrir mér rifjast skyndilega upp nærri hálfrar aldar gömul saga. Í þá daga voru starfandi svokallaðar bindindisnefndir í hverjum hreppi. Eftir sveitarstjórnarkosningar skipaði ráðherra formann, en nýkjörin hreppsnefnd skipaði síðan tvo til viðbótar. Bindindisnefndirnar sendu ráðuneytinu árlegar skýrslur um störf sín. En nú brá svo við að frá einum tilteknum sveitahreppi bárust engar skýrslur. Ráðuneytið […]

Er þjóðinni viðbjargandi?
Einhverra hluta vegna voru mótmælum laugardagsins slegið á frest rétt fyrir klukkan tvö. Fáir voru mættir á Austurvöll og gengu svo tvo hringi í kringum Alþingishúsið fyrir siðasakir. Seinni hringurinn fór í gegnum falin fjársjóð í Reykjavík sem er Alþingisgarðurinn (en það er nú annað mál). Ætlar fólk bara að sætta sig við þetta allt? […]