Herðubreiðarlindir

Ljótustu bindin í bænum í fallegri og bráðskemmtilegri bíómynd
Kvikmynd Ásgríms Sverrissonar, Reykjavík, er falleg, bráðskemmtileg og launfyndin.

Verðtryggingarvitleysan
Það er skrýtið að sumir einlægir Evrópusinnar taki að sér málsvörn fyrir hina séríslensku verðtryggingu og verða fyrir vikið eins og talsmenn þess vaxtaokurs sem hún er hluti af og einkennir íslensku krónuna.

Glæpur með lögheimili í kolsvörtum myrkviði sálsýkisfræðinnar: Kaldrifjuð morð á hvítvoðungum
Þá brá Jón Einarsson á glens við hana og sagði að víst væri hún ekki ólétt, þetta væri allt hugarburður hennar.

Hvernig Jónas frá Hriflu fletti ofan af spillingu kapítalsins. Stórfróðleg bók um sígilda sögu
Neyðarfundur til að bjarga Íslandsbanka. Gjaldeyrishöft. Nauðasamningar við kröfuhafa. Rannsóknarnefnd alþingis.

Hvað gerist ef verðtryggingin er bönnuð? Stuttur fyrirlestur um stórt viðfangsefni
Hvað gerist ef verðtrygging lána er bönnuð? Ýmislegt verra en þú heldur líklega.

Eftirmæli: Gutti 1950-2015
Guðbjartur Hannesson var aldei kallaður annað en Gutti og svaraði eiginlega ekki öðru nafni. Hann átti hins vegar ekkert sameiginlegt með nafna sínum úr vísunni góðu sem mér er kunnugt um, en sjálfsagt tók hann einhverjar rispur hér áður.

Dansinn hvín í þýðingu bæði Davíðs Þórs og Þórarins Eldjárns
Reglulega sannast lögmálið um að glöggir menn hugsa á svipuðum nótum. Sjaldan þó eins rækilega og í þýðingu Þórarins Eldjárns á textum ABBA.

Í landi gestrisninnar: Á að gefa hungruðum krakka mat og hröktum húsnæði? Nei, sagði ráðherrann
Blendin – eða jafnvel neikvæð – viðbrögð Íslendinga við vanda fólks í lífsháska eru ekki ný af nálinni. Eftirfarandi grein birti Katrín Thoroddsen læknir í Þjóðviljanum 28. apríl árið 1939.

Ritdómur: Svaka draugalegar sögur, en vinir mínir skrifa ekki endilega skemmtilegustu sögurnar
Mér finnst þetta skemmtileg bók og svaka draugalegar sögur. Fyrst þegar ég las söguna sem mér finnst draugalegust var kvöld, ég átti verulega erfitt með að sofna.

Sumarlesning Herðubreiðar (XII): Skáldin eru augu þjóðarinnar. Þau leggja mælispjald á flögðin og afhjúpa þau
Skáldin brýna þjóðina og eggja að horfast í augu við sjálfa sig, við örlög sín, við hugrekki og manndóm, hrista af sér svefninn og tröllskapinn, leggja mælispjald á flögðin.

Sumarlesning Herðubreiðar (XI): Af dauðra manna beinum. Eða: Dýrasta tilraun sögunnar til tannlækninga?
Þótt fólk ætti ýmislegt fáséð á heimilum sínum til lækninga, þá var enginn svo birgur, að hann ætti tennur úr dauðum manni.