Glósubókin

Diplómati vikunnar
„Þau er náttúrlega mjög gott team, þó að þau séu að leggja saman krafta sína á öðrum vettvangi núna en áður.“

Eru þeir Ólafur Ragnar skyldir?
„Ef félagið rekur mig, þá rekur það besta stjórann sem það hefur haft frá upphafi.“

Er búið að loka villibráðarverksmiðjunni?
„Það var líka löngu tímabært að lækka eða afleggja tolla á vörur sem sáralítið eða ekkert er framleitt af hér á landi eins og villibráð.“

Er ekki rétt að semja söngleik?
„Guðmundur Steingrímsson er alltaf eins og vel innrætt en pínu lúðaleg íslensk kvikmyndapersóna á krossgötum leikin af Birni Thors.“

Hvers eiga rauðhærðir og tvíkynhneigðir að gjalda?
„Eygló segir að áhersla verði lögð á að taka á móti þeim sem gætu átt erfiðar uppdráttar annars staðar: einstæðar mæður, hinsegin fólk og fólk sem þarf á heilbrigðisþjónustu að halda.“

Auðvitað ekki. Getur þetta níska pakk ekki verið heima hjá sér?
„Er eitthvað sérlega jákvætt við það að fólk geti ferðast til nýrra áfangastaða og gist ódýrt?“

Einungis fyrir þá sem vilja lesa sér til gagns
Hefurðu lent í því að missa síma í klósettið? Svona er best að hreinsa hann.

Þar væri nú gott að hafa rafbyssur
„Mikið vona ég að allar heimildir verði nýttar til að leita á dópistalýð í Laugardalnum.“

Ekki rétt. Hann er með eldvörpu
„Menntamálaráðherrann er í raun ekkert annað en tuttugustu aldar Neró með stóran eldspýtustokk.“