Efst á baugi

Leiðindanöldur um heilbrigðiskerfið – listin að styggja engan
Flestir virðast vera sammála því, að umræðuþáttur Rúv á fimmtudagskvöld hafi verið frekar daufur. Ekki mikið kjöt á beinunum. Það sem vakti helst athygli er þetta tvennt: Frammistaða Sigmundar Davíðs og Bjarna Bens var sérstök. Til að gera langa sögu stutta skulum við orða það þannig, að þeir félagar hafa vaxið mjög af sinni reynslu […]

Framsóknarflokkurinn langöflugastur í kjördæmi Sigurðar Inga
Fylgi Framsóknarflokksins mælist hvergi meira en í suðurkjördæmi, þar sem Sigurður Ingi Jóhannsson forsætisráðherra er oddviti flokksins.

Flóttamaðurinn
Þau eru skilin að skiptum, hið hugumstóra og djarfmælta par, Vigdís Hauksdóttir og Guðlaugur Þór; formaður og varaformaður fjárlaganefndar alþingis. Þau sem voru svo sæl saman. Og eindregin í öllu. Forsaga skilnaðarins er að þau hjúin sömdu saman „skýrslu“ um löngu upplýst mál og birtu hana í nafni meirihluta fjárlaganefndar alþings. Þau töluðu fyrir henni […]

Ástsæll útvarpsmaður gefur út bók: Við Steina Elena erum miklir vinir
Nafnið Guðni Már Henningsson þekkja allir sem komnir eru á giftingaraldur og hlusta á útvarp.

Þensla, nei
Til leigu er fjögurra herbergja íbúð við Lindargötu; verð 380 þúsund krónur á mánuði (fyrirframgreiðsla aðeins eitt ár). Þetta er ekki merki um þenslu. Áformað er um að selja erlendis hlutabréf í Arion-banka; ekki ber að líta á það sem merki útrásar og þenslu. Reiknað er með að ferðamenn verði 1 miljón og 700 þúsund […]

„Enginn ágreiningur“
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson hélt sæti sínu sem foringi Framsónarmanna í Norðurlandskjördæmi eystra. Það kom utansveitarmönnum á óvart. Einkum þeim sem voru ekki í Framsóknarflokknum; mest þó þeim sem einhvern tíma fyrr á ævinni höfðu verið Framsóknarmenn. Þetta eru ekki merkileg tíðindi ein og sér. En ef spurt er, hvers vegna vann hann, verður málið áhugavert. […]

Sjálfstæðisflokkurinn hatar ekki konur. Vestmanneyingarnir unnu bara
Gleymum kallpúngum og kjéllingum. Gleymum þessum rosalegu mikilvægu málefnum. (Geisp.) Tölum frekar um landafræði.

Athlægi
Formaður Framsóknarflokksins „lenti“ í sjálfsköpuðu stormviðri og gerði sig að athlægi. Hann varð heimsfrægur fyrir vikið en hefur ekki ennþá áttað sig á niðurlægingu sinni. Fyrir vikið hrekst hann nú undan þeim flokksfélögum sínum sem sjá hvernig komið er fyrir honum. Formaður og varaformaður fjárveitingar „lentu“ í skýrslugerð fyrir meirihluta fjárlaganefndar um löngu upplýst mál. […]

Vandamálið er ekki of fáar konur í stjórnmálum. Vandinn er of margir kallar
Er eðli kvenna að halda sig til hlés og dást að sigrum karlmanna?

Panamalekinn
Það var ánægjulegt að lesa grein þeirra Vilhjálms Árnasonar, prófessors í heimspeki, og Henrys Alexanders Henryssonar, aðjunkts í heimspeki sem birtist í Fréttatímanum síðastliðinn föstudag (09.09.´16). Þeir fjölluðu um siðferði og varla er ofmælt að þarft sé að hugleiða það sem þar er ritað. Niðurlag greinarinnar er þetta: „Kjörnir fulltrúar verða að gangast við ákveðnum […]

Það þarf nýtt fólk!
Við erum enn að vinna úr hruninu. Stjórnmálin eru mörkuð deginum sem Geir bað guð að blessa Ísland en þó ekki síst undanfaranum og eftirleiknum. Óþolið gagnvart stjórnmálum og stjórnmálamönnum er mikið. Það er auðvitað algjörlega skiljanlegt enda ábyrgð stjórnmálamanna gríðarleg og vissulega brugðust þeir margir í aðdraganda hrunsins. Alþingi ályktaði meðal annars svo í kjölfar skýrslu […]

Titringur og trúnaðarbrot innan Samfylkingar
Svo virðist sem kjörskrá Samfylkingarinnar í prófkjöri flokksins um helgina hafi ratað til fjölmiðla.